Fréttablaðið - 03.07.2019, Síða 28

Fréttablaðið - 03.07.2019, Síða 28
Stjórnar- maðurinn 27.06.2019 MARKAÐURINN Instagram fréttablaðsins@frettabladidfrettabladid.is Miðvikudagur 3. júlí 2019FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS UM VIÐSKIPTI OG FJÁRMÁL | Íslenska fyrirtækið sem framleiðir trefjapappírinn Filt, sem meðal annars er ætlaður til munntóbaks- notkunar, hagnaðist um 13 milljónir króna á síðasta ári. VTJ heldur utan um reksturinn en það er í jafnri eigu Vals Hermannssonar, eins af stofnendum Eldum rétt, og Hreins Loftssonar hæsta- réttarlögmanns. Félagið hafði 36 milljóna króna tekjur upp úr sölu á trefjapappírnum á síðasta ári sem þýðir að hlutfall hagnaðar af sölunni var 37 prósent. Tekjurnar námu 24 milljónum árið 2017 og hagnaður- inn 7 milljónum. Þá námu eignir félags- ins tæplega 20 milljónum króna í lok síðasta árs og eigið féð 14 milljónum. Skömmu eftir stofnun félagsins árið 2015 sagði einn stofnendanna í viðtali við Viðskiptablaðið að fyrirtækið væri komið með einkaleyfi fyrir hönnunina á Norður- löndunum. Samkvæmt upplýsingum á heimasíðu fyrirtækisins er íslenski trefjapappírinn í virkri sölu í Svíþjóð og Sviss en auk þess er hann seldur í alþjóð- legri vefverslun fyrir munntóbaksvörur. – tfh Trefjapappírinn skilar hagnaði  PwC | Sími 550 5300 | www.pwc.is PwC á Íslandi er framsækið og traust fyrirtæki sem veitir sérfræðiþjónustu á sviði fyrirtækja- skatta- og lögfræðiráðgjafar, endurskoðunar og reikningsskila. Fyrirtækið er íslenskt og er hluti af alþjóðlegu neti sjálfstæðra fyrirtækja sem aðstoðar viðskiptavini sína við að auka verðmæti, stjórna áhættu og bæta árangur sinn. Hafðu samband því þinn árangur er mikils virði. Hámarkaðu árangurinn þinn og verðmæti með því að nýta þér fjölbreytta þekkingu og víðtæka reynslu PwC á öllum sviðum rekstrar Verðmæti Reykjavík | Akureyri | Reykjanesbær | Húsavík | Selfoss | Hvolsvöllur | Vestmannaeyjar Það hefur lengi verið mín skoðun að þegar búið er að koma lagaum- gjörð um þessa starfsemi í betra horf og gera nauð- synlegar breytingar á rekstrinum þá sé ekkert því til fyrirstöðu að ríkið selji [Íslandspóst]. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra Nú virðist sem þíða sé komin í samskipti Bandaríkjanna og Kína, en stórveldin hafa skipst á skotum allt frá því að Donald Trump tók við embætti. Trump hefur til þessa sett verndartolla á hinn ýmsa kín- verska varning. Kínverjar kunna þó krók á móti bragði og hafa einkum sett verndartolla á banda- rískar landbúnaðarvörur. Þar kom vel á vondan en Trump hefur notið mikils stuðnings meðal bænda í miðríkjunum sem verst verða úti. Málið verður því sífellt erfiðara fyrir Trump nú þegar styttist í kosningar og skýrir það sennilega vinahótin við Xi Jinping. Þetta kalda stríð hefur nú þegar haft talsverð áhrif á alþjóðahag- kerfið. Mark Carney, seðlabanka- stjóri Breta, lét hafa eftir sér í gær að hagkerfi heimsins gæti beðið skipbrot ef haldið yrði áfram á sömu braut. Benti hann á að viðskiptahindranir sem þessar væru í raun einsdæmi. Heimurinn sé mun tengdari en áður og því ljóst að áhrifin geti orðið marg- föld miðað við það sem þekkst hefur sögulega. Í því samhengi nefndi hann að viðskipti milli Kína og Bandaríkjanna nemi um 2 milljörðum dala á dag. Viðskipti Bandaríkjanna við Sovétríkin sálugu þegar best lét námu sömu upphæð á ársgrundvelli. Hagfræðingurinn Nouriel Roub- ini virðist á sama máli, en hann telur merki um að sjálf hnatt- væðingin sé að ganga til baka. Slíkt muni valda kreppu áður en langt um líður. Tollastríðið hafi nú þegar valdið samdrætti í fjár- festingum fyrirtækja sem aftur hafi keðjuverkun á framleiðslu og atvinnustig. Alheimskreppa sé óumf lýjanleg. Ef Roubini og Carney reynast sannspáir mun allur heimurinn þurfa að súpa seyðið af popúlisma Donalds Trump. Forsetinn höfðaði til lægstu kennda kjósenda í kosn- ingabaráttunni, og reyndi að búa til óvini í hverju horni. Kínverjar, Mexíkóar, innf lytjendur og svo mætti áfram telja. Okkur er vandi á höndum þegar tækifærissinnaðir lýðskrumarar þurfa að fara að efna loforðin. Bretar eru að upplifa það sama í Brexit-lönguvitleysunni, og meira að segja hér á landi er hópur manna sem virðist leynt og ljóst vilja að Ísland dragi sig út úr alþjóðasamstarfi. Vítin eru til að varast þau. Um það bera Brexit og Trump ófagurt vitni. Þá er bara vonandi að við berum gæfu til að koma auga á okkar eigin víti. Varist vítið  0 3 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :0 0 F B 0 4 0 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 5 A -5 3 9 C 2 3 5 A -5 2 6 0 2 3 5 A -5 1 2 4 2 3 5 A -4 F E 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 0 s _ 2 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.