Fréttablaðið - 03.07.2019, Qupperneq 30
Þrjátíu ár eru liðin frá
rýmkun vínsöluleyfis.
Þrjátíu ár eru nú liðin frá því að leyft var að selja áfengi á nóttunni. Var það gert í júlí-byrjun árið 1979 að undir-lagi Steingríms Hermanns-sonar dómsmálaráðherra.
Undirbúningur að endurskoðun lag-
anna var eitt af fyrstu embættisverkum
Steingríms sem ráðherra. Fram að þeim
tíma hafði aðeins verið heimilt að selja
áfengi á veitingastöðum til klukkan
23.30 en með breytingunni var tíminn
lengdur til klukkan 3.00 á föstudögum
og laugardögum. Þá var vínveitingabann
á miðvikudögum afnumið en vínveit-
ingatími í hádeginu og síðdegis styttur
til að koma til móts við óánægjuraddir.
Tilgangurinn var einfaldur með
breytingunni: að auka frelsi og var sér-
staklega horft til ferðamannaiðnaðarins
í því samhengi. En víða erlendis þekktist
að heimilt væri að selja áfengi fram á
nætur. Var stefnan strax sett á að rýmka
tímann á öðrum dögum vikunnar.
Skömmu áður en lögin voru samþykkt
hafði borgarstjórn samþykkt sams
konar tillögu frá Sjálfstæðisflokknum.
Birgir Ísleifur Gunnarsson, borgarfull-
trúi og fyrrverandi borgarstjóri, benti á
að þegar væru veitingastaðir opnir fram
á nætur og þar væri mikið fyllerí þrátt
fyrir vínveitingabann. Þáverandi löggjöf
þjónaði því ekki tilgangi sínum.
Ekki voru allir sáttir við breytinguna.
Þá sér í lagi þeir sem beittu sér almennt
gegn áfengisneyslu og voru uggandi að
sjá töluverða fjölgun vínsölubúða á átt-
unda áratugnum. Í viðtali við Alþýðu-
blaðið sagði Ólafur H. Árnason, for-
maður áfengisvarnanefndar:
„Þetta er hlutur sem framkvæmdur
var í öðrum löndum fyrir tíu árum og
gafst illa. Þessi lönd eru nú þegar að
þrengja þessar reglur sínar á meðan við
stígum spor í hina áttina.“
Sumir vildu hins vegar ganga lengra í
rýmkun áfengisreglna. Til dæmis hinir
ungu þingmenn Vilmundur Gylfason,
Ellert B. Schram, Eiður Guðnason og
Friðrik Sophusson. Lögðu þeir fram
frumvarp um að vínveitingatíminn yrði
gerður algerlega frjáls og áfengiskaupa-
aldurinn færður niður í átján ár.
Helstu skemmtistaðir í Reykjavík árið
1979 voru Ártún, Glæsibær, Hollywood,
Hótel Borg, Hótel Saga, Ingólfscafé,
Klúbburinn, Leikhúskjallarinn, Óðal,
Sigtún, Snekkjan og Þórscafé.
kristinnhaukur@frettabladid.is
Barinn opinn til þrjú
Fjör á Óðali. MYND: DAGBLAÐIÐ 5. OKTÓBER 1979.
Þökkum innilega auðsýnda
samúð og hlýhug við andlát og
útför frænda okkar,
Helga Gunnars Þorkelssonar
skrifstofumanns,
Barmahlíð 51, Reykjavík.
Starfsfólki á Borgarspítalanum deild B2,
Vífilsstöðum og Sóltúni sendum við sérstakar þakkir.
Sigríður Helga Þorsteinsdóttir, Jón Ingi Guðmundsson,
Þorsteinn Kári, Guðmundur Kristján og Friðgeir Ingi
Jónssynir,
Þorsteinn, Guðrún Ása og Friðgerður Ósk Jóhannsbörn,
Elva Dögg Gunnarsdóttir, Vagn Leví Sigurðsson
og fjölskyldur.
Yndislegi eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Aðalsteinn Finnur
Örnólfsson
vélfræðingur,
Hrafnistu, Hafnarfirði,
áður Gullsmára 7,
lést fimmtudaginn 27. júní sl.
Útför hans fer fram frá Digraneskirkju þriðjudaginn
23. júlí kl. 13.00.
Elín Eiríksdóttir
Eiríkur S. Aðalsteinsson Ingibjörg Jónmundsdóttir
Aðalsteinn V. Aðalsteinsson Birna Kristbjörnsdóttir
Ragnar Aðalsteinsson Ingibjörg Jónsdóttir
Margrét Aðalsteinsdóttir Steinar Magnússon
Þorbjörg Aðalsteinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýndan
hlýhug og vinsemd við andlát og útför
eiginkonu, móður, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
Guðríðar Karlsdóttur
(Rúrí)
Mosabarði 8, Hafnarfirði.
Innilegar þakkir til allra sem önnuðust hana af alúð og
umhyggju í veikindum hennar.
Árni Rosenkjær og fjölskylda.
Eiginmaður minn, faðir og bróðir,
Brian Henry Roff
lést á heimili sínu í Sacramento,
Kaliforníu, sunnudaginn 16. júní sl.
Patricia
Julie, Kelsie, Arnold, Stefanía, Allan og Kristín
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Laufey Guðbjörg
Jóhannesdóttir
Aðalgötu 1,
Reykjanesbæ,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þann
29. júní. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju 16. júlí kl. 13.
Jóhannes M. Ingiþórsson Guðbjörg M. Jónsdóttir
Margrét Ingiþórsdóttir Jóhann Ingi Grétarsson
Ragnheiður Ása Ingiþórsdóttir Gunnar Einarsson
Heiðar Ingiþórsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum innilega auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför
ástkærs eiginmanns, föður,
tengdaföður og afa,
Gísla Guðmundssonar
húsasmíðameistara.
Sólveig Margrét Ásmundsdóttir
Ásmundur Óli Gíslason
Aron Freyr Gíslason Katla Sif Friðriksdóttir
Hafdís Gerður Gísladóttir Bjartmar Ingi Sigurðsson
Lilja Björg Gísladóttir Jón Baldvin Jónsson
Erla Guðrún Gísladóttir Finnur Dellsén
Guðmundur Garðar Gíslason
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn,
Hafsteinn Steinsson
rennismiður,
frá Hrauni á Skaga, síðast til heimilis
að Suðurlandsbraut 58,
lést á Landspítalanum í Fossvogi
þriðjudaginn 25. júní sl.
Útför hans fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn
5. júlí kl. 13.
Kristín Þórdís Davíðsdóttir
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir,
afi og besti vinur,
Atli Freyr Guðmundsson
fyrrum skrifstofustjóri í iðnaðar- og
viðskiptaráðuneytinu,
lést 15. júní síðastliðinn.
Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Þökkum auðsýnda samúð.
Þorgerður Jónsdóttir
Svava María Atladóttir
Guðmundur Páll Atlason
Sigríður Arna Sigurðardóttir
tengdabörn og barnabörn.
Merkisatburðir
1187 Saladín, soldáninn af Egyptalandi, gersigrar kross-
faraherinn í Jerúsalem.
1863 Orrustunni um Gettysburg, í amerísku borgara-
styrjöldinni, lýkur með stórsigri norðanmanna.
1885 Fyrsta Benz-bifreiðin er afhjúpuð í Mannheim í
Þýskalandi. Þaklaus og með þremur hjólum.
1921 Fálkaorðan stofnuð með konungsbréfi Kristjáns X.
Hann er sjálfur á meðal fyrstu orðuhafa.
1928 Bifreið ekið yfir Öxnadalsheiði í fyrsta sinn.
1948 Íslendingar fá 39 milljónir dollara í Marshall-að-
stoð frá Bandaríkjunum.
1971 Jim Morrison, söngvari The Doors, deyr í París.
2000 „Rauði“ Ken Livingstone tekur við völdum sem
fyrsti almenningskjörni borgarstjóri Lundúna.
3 . J Ú L Í 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R14 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT
0
3
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:0
0
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
5
A
-3
F
D
C
2
3
5
A
-3
E
A
0
2
3
5
A
-3
D
6
4
2
3
5
A
-3
C
2
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
0
s
_
2
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K