Fréttablaðið - 13.07.2019, Blaðsíða 2
Í frumvarpinu
sjálfu var
aðeins talað um
að ferðaþjónusta
fatlaðs fólks hefði
þessa heimild.
Pawel Bart
oszek, borgar
fulltrúi Við
reisnar
Veður
Suðlægari vindur í dag, 813 við
suðausturströndina síðdegis. Víða
skúrir, Hiti yfirleitt 12 til 18 stig.
SJÁ SÍÐU 36
Stöngin inn!
Ungar boltastelpur verða á fleygiferð á sparkvöllum Breiðabliks í Kópavoginum
um helgina þar sem Símamótið er nú haldið í 35. skipti. Mótið á sér langa og merki-
lega sögu en forveri þess, Gull og silfur-mótið, var fyrst haldið 1985 og þá fengu
stelpur loksins að eigast við á alvöru knattspyrnumóti. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
FERÐALÖG „Íslendingar eru mjög
vinnusamir, það líkar mér mjög
vel,“ segir Anthon Geisler, sem er
rúmlega aldargamall og ferðaðist
hringinn í kring um Ísland. Ant-
hon fæddist þann 21. febrúar árið
1919 og býr í Ilulissat, bæ á vestur-
strönd Grænlands. Í bænum rekur
hann litla verslun, nokkurs konar
krambúð þar sem er hægt að fá
allt mögulegt. Hann vinnur enn í
verslun sinni þrátt fyrir háan aldur
og þótt röddin bregðist honum
stundum vegna aldurs, er sjónin
enn góð og hann hefur gott úthald.
Hann er kominn aftur til vinnu í
verslun sinni eftir ferðalagið.
Íslandsferðina fékk hann í hundr-
að ára afmælisgjöf frá vinum og
fjölskyldu. Frændi hans, Hugo, var
leiðsögumaður hans á ferðalaginu.
Hringvegurinn er rúmlega 1.300
kílómetrar en þeir frændur fóru
enn víðar. Þeir komu meðal ann-
ars við á Ísafirði, Akureyri, Höfn
í Hornafirði, Suðurnesjum og við
Gullfoss og Geysi. Anthon sagði á
ferðalaginu ljóst að Íslendingar
hefðu lagt mikið á sig við að byggja
upp ferðaþjónustu síðustu árin
og var einnig hrifinn af náttúru-
fegurðinni og þeirri gestrisni sem
hann varð aðnjótandi.
Lífsstíll Anthons telst harla
óvenjulegur miðað við aldur og því
kannski ekki að undra að blaða-
maður hafi þráspurt um verslunar-
störfin og hans daglegu iðju.
„Hann vinnur nánast alla daga,
marga klukkutíma á dag,“ segir
Hugo og segir frænda sinn leggja
mikið upp úr vinnusemi. Hann
hafi til dæmis mætt strax til vinnu
eftir langt ferðalag á Íslandi og hafi
ekki látið sér verk úr hendi falla.
Vinnudagurinn sé alla jafna frá
klukkan tvö á daginn til klukkan
níu á kvöldin.
„Að leggja rækt við ævistarfið er
að mati Anthons mikil dyggð. Ég
held að vinnusemin og áhuginn
fyrir starfinu sé lykillinn að langlífi
hans. Hann hætti líka að reykja og
drekka fyrir sjötíu árum og sjálfsagt
hefur það haft mjög mikið að segja,“
segir hann frá högum Anthons.
Og ætla þeir að leggjast í frekari
ferðalög?
„Það er ekkert útilokað! Hann
skemmti sér vel á Íslandi.“
kristjanabjorg@frettabladid.is
Rúmlega hundrað ára
í hringferð um landið
Anthon Geisler þakkar
vinnusemi og hollum
lífsstíl háan aldur.
Hann vinnur enn í
lítilli verslun sinni í
Ilulissat á Grænlandi.
Anthon Geisler og frændi hans Hugo á ferðalagi. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Ég held að vinnu-
semin og áhuginn
fyrir starfinu sé lykillinn að
langlífi hans. Hann hætti
líka að reykja og drekka
fyrir sjötíu árum og sjálfsagt
hefur það haft mjög mikið
að segja.
Hugo, leiðsögumaður AnthonsBir
t m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
r r
étt
til
le
iðr
étt
ing
a á
sl
íku
. A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fy
rir
va
ra
.
595 1000
Strandbærinn Albir á Costa Blanca
Albir Playa Hotel & Spa
aaaa
Frá kr.
74.99527. ágúst í 7 nætur
Frá kr.
97.445
Á sérstöku tilboðsverði á öllum brottförum í ágúst
BORGARMÁL Pawel Bartoszek, borg-
arfulltrúi Viðreisnar, telur löggjaf-
ann hafa verið á villigötum þegar
ný umferðarlög voru samþykkt.
Samkvæmt þeim mega hreyfihaml-
aðir, með svokölluð P-kort, keyra á
göngugötum. Með þessu segir hann
hugtakið göngugata í lausu lofti.
„Það er umtalsverður fjöldi af bif-
reiðum með þessi merki í umferð,“
segir Pawel við Fréttablaðið. „Ef
mikill fjöldi þeirra myndi aka í
gegn þá myndi það breyta heildar-
ásýndinni. Þetta er of fortakslaust.“
Lögin voru samþykkt einhljóða.
Pawel segir frumvarpið hafa breyst
í meðförum þingsins og þessi breyt-
ing hafi þá komið inn. Hún hafi þá
farið fram hjá borgarfulltrúum
en þessi breyting hefur ekki verið
rædd þar.
„Í frumvarpinu sjálfu var aðeins
talað um að ferðaþjónusta fatlaðs
fólks hefði þessa heimild. Þetta
hefur væntanlega farið fram hjá
borginni og ég tel að það hefði verið
tilefni til að fá sjónarmið borgar-
innar fram.“
Pawel segir að það séu til fjöl-
breyttari leiðir til að auka aðgengi
hreyfihamlaðs fólks að verslunum
og þjónustu á göngugötum.
„Við erum með miklu meira
pláss á göngugötum þannig að
það er hægt að koma fyrir lyftum
og skábrautum, lyfta götunni upp
og útrýma þar með þrepum,“ segir
Pawel. – khg
Ásýnd
göngugatna
gæti gjörbreyst
H E I L B R I G Ð I S M Á L S a m k v æ mt
tölum frá Embætti landlæknis
hafa 19 manns greinst með sára-
sótt fyrstu fimm mánuði ársins.
Hafa greiningarnar f lestar verið á
vormánuðum.
Ef fram heldur sem horfir verða
tilfellin álíka mörg og árið 2017
þegar Íslendingar urðu Evrópu-
meistarar í sárasóttarsmiti.
Sárasótt hefur færst gríðarlega
í aukana undanfarin ár. Árið 2007
var hér aðeins eitt smit eða 0,3 á
hverja 100.000 íbúa sem var lægsta
hlutfall í álfunni.
Árið 2014 varð sprenging í
greiningum og árið 2017 var Ísland
komið í efsta sætið með 52 smit eða
15,4 á hverja 100.000 íbúa. Staðan
lagaðist umtalsvert árið 2018 en þá
greindust 30 manns með sárasóttar-
smit hérlendis. – khg
Stefnum á nýtt
Evrópumet í
sárasóttarsmiti
Fleiri myndir frá mótinu er að finna á +Plússíðu
Fréttablaðsins. Fréttablaðið +Plús er í Frétta-
blaðs-appinu og PDF-útgáfu á Fréttablaðið.is.+PLÚS
1 3 . J Ú L Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
3
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:1
1
F
B
0
7
2
s
_
P
0
7
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
6
C
-3
0
F
8
2
3
6
C
-2
F
B
C
2
3
6
C
-2
E
8
0
2
3
6
C
-2
D
4
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
7
2
s
_
1
2
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K