Fréttablaðið - 13.07.2019, Page 16
Ef þú spyrð mig þá sá ég það ekki fyrir að fara í pólitík. Ef þú hefðir hins vegar spurt æskuvin-konur mínar, var það samdóma álit þeirra að
ég myndi hvergi annars staðar enda,“
segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð
Gylfadóttir, ráðherra dómsmála,
ferðamála, iðnaðar og nýsköpunar
og varaformaður Sjálfstæðisflokks-
ins. Mikið hefur gengið á innan
flokksins, þriðji orkupakkinn hefur
reynst erfiður og tveir fyrrverandi
formenn fara mikinn í gagnrýni
sinni á forystuna; sérstaklega rit-
stjóri Morgunblaðsins. Þá tók Þórdís
Kolbrún við dómsmálunum eftir að
Sigríður Andersen vék úr embætti
eftir að Mannréttindadómstóll
Evrópu komst að þeirri niðurstöðu
að pottur hefði verið brotinn við
skipan fimmtán dómara við hinn
nýstofnaða dómstól, Landsrétt.
Þórdís tók við ráðuneytinu. „Þetta er
tímabundin ráðstöfun. Við stefnum
á að vera komin með nýjan ráðherra
með haustinu,“ segir Þórdís, sem vill
ekkert gefa upp um eftirmann sinn.
Hún var 19 ára gömul þegar hún
hóf þátttöku í stjórnmálum og hefur
gegnt embætti formanns Þórs, Félags
ungra Sjálfstæðismanna á Akranesi,
verið í stjórn Sambands ungra Sjálf-
stæðismanna, framkvæmdastjóri
þingf lokksins, aðstoðarmaður
Ólafar Nordal heitinnar í innan-
ríkisráðuneytinu, síðar þingmaður
og loks ráðherra. Hún var samt ekki
alin upp í Sjálfstæðisflokknum en
segist hafa verið alin upp til að vera
sjálfstæð. „Nei, málefnin voru alveg
tekin heima og rædd, en það var ekki
á flokkspólitískum nótum.”
Hún þróaði náið samband með
Ólöfu og segir hana hafa kennt sér
margt. „Þetta geta orðið merkileg
sambönd, ráðherra og aðstoðar-
manna. Ráðherrar alla jafna leggja
töluvert traust á þá sem vinna fyrir
þá, að minnsta kosti gerði Ólöf það
og ég geri það sjálf. Við Ólöf náðum
vel saman og ég kannski gerði mér
ekki grein fyrir því fyrr en seinna, að
það var ekki bara ég sem hafði hlut-
verk gagnvart henni, heldur var hún
að sinna ákveðnu hlutverki gagnvart
mér. Fyrir það er ég þakklát og finn
hvað ég bý alltaf að því að hafa unnið
fyrir hana.”
WOW hrun?
Ferðamannabransinn hefur tekið
stakkaskiptum undanfarin ár.
Þórdís hefur leitt málaf lokkinn
síðan í byrjun árs 2017. Síðan hafa
miklar breytingar orðið á lands-
laginu, aðallega með falli WOW air.
Íslenskt efnahagslíf hefur að mörgu
leyti verið talað niður eftir fall flug-
félagsins og áhrif þess á ferðamanna-
bransann. Hvað heldur þú með fram-
tíð ferðamennsku á Íslandi?
„Ég hef mikla trú á henni. Það
hefur margt gott gerst í greininni.
Við höfum undanfarin ár verið að
byggja ofan á greinina og undirstöð-
ur. Ég hef frá því að ég kom í ráðu-
neytið verið mjög skýr með þá sýn
mína að fjöldi ferðamanna er ekki
það sem skiptir öllu máli. Þessi vöxt-
ur sem hefur verið var ósjálfbær. Það
er ekki hægt að byggja upp atvinnu-
grein eins og þessa með 25 prósent
vöxt ár eftir ár. Það að WOW hafi
horfið af markaði er högg fyrir grein-
ina og afleidda starfsemi sömuleiðis,
atvinnuleysi og högg fyrir ríkissjóð.
Það eru og verða afleiðingar af þess-
ari breytingu, en í viðbrögðum við
þeirri stöðu þá skiptir máli að missa
ekki sjónar á þeirri langtímasýn sem
ég tel ferðaþjónustuna þurfa. Sú sýn
grundvallast á virði framar fjölda
ferðamanna, ávinningi heima-
manna um allt land, skýrum leik-
reglum og fyrirsjáanleika, gæðum og
fagmennsku og loks þessu jafnvægi
á milli verndar og hagnýtingar. Þetta
er grunnurinn í leiðarljósum ferða-
þjónustunnar sem unninn var með
fulltrúum greinarinnar og sveitar-
stjórnarstigsins.“
Átök fylgja pólitík
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins,
segir tækifæri fólgin í þrengri stöðu ferðaþjónustunnar eftir fall
WOW air. Hún segir Reykjavíkurbréfin ekki hafa mikil áhrif á sig.
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir er ráðherra ferðamála, iðnaðar, nýsköpunar og dómsmála. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK
Anda í kviðinn
Sumir sérfræðingar hafa sagt að fall
WOW muni ekki hafa teljandi áhrif.
WOW kom með fólkið á tíma þegar
landið þurfti á öllum ferðamönn-
unum að halda og gerði vel í því. Nú
er búið að byggja upp innviðina,
reynslan og þekkingin er til staðar
og við erum að fá betur borgandi
ferðamenn, þótt þeir séu færri. Hvað
finnst þér um það?
„Þetta er alltaf spurning um hvort
glasið er hálftómt eða hálffullt. Það
eru tækifæri í þessari stöðu eins
og alltaf þegar staðan verður erfið.
Við þurfum að nýta þau. Við sjáum
að ferðamenn eru að dvelja lengur,
meðaleyðsla þeirra er að aukast
og við erum þannig ferðamanna-
land að við stefnum ekki á fjöldann
með sama hætti og aðrir kunna að
gera. Við eigum að byggja ferða-
þjónustuna þannig upp að verð og
gæði haldist í hendur. Við erum 350
þúsund og erum með sjö ferðamenn
á hvern íbúa. Það er ein jafna sem
þarf að horfa til. Staðan er sú að með
aðgerðum stjórnvalda, en fyrst og
fremst með einkaframtakinu, erum
við að koma okkur í góða stöðu. Það
eru að byggjast upp framúrskarandi
fyrirtæki, afþreying og þjónusta. Það
eru flott hótel að byggjast upp. Það
er mín staðfasta trú að ef við höldum
rétt á spöðunum, sköpum réttar
aðstæður, þá kemur rest. Við eigum
að anda aðeins ofan í kviðinn og
hugsa, hvað viljum við?“ spyr Þórdís.
„Ég setti til að mynda af stað verk-
efni sem heitir Jafnvægisásinn sem
gengur út á að finna hver þolmörk
okkar eru út frá efnahagslegum,
umhverfislegum og samfélagslegum
þáttum. Ég vildi búa til eitthvað sam-
bærilegt fiskveiðistjórnunarkerfinu
nema fyrir ferðaþjónustu – þó svo að
ferðaþjónusta sé eðlisólík. Þetta eru
manneskjur sem eru að heimsækja
landið og það snertir á öllum helstu
innviðum og fólkinu sem hér býr.
En ég held að við eigum heilmikið
inni, ekki síst úti á landi. Fall WOW
var högg, en engin endalok heldur,“
útskýrir Þórdís.
Sjálfsprottin byggðaaðgerð
„Við eigum að vera óhrædd við að
vera selektív á ferðamenn og mark-
aði,“ segir hún. „Það þarf að stýra
aðgengi að ferðamannastöðum,
þannig dreifist ferðaþjónusta um
landið og árstíðir. Það er stórmerki-
legt að fara um landið og sjá það
berum augum hverju ferðaþjónust-
an hefur skilað. Blómlegri byggðir
úti um allt land, meiri þjónusta,
menning, veitingastaðir, afþreying.
Þetta er sjálfsprottin byggðaaðgerð.
Það skiptir máli að vel takist til.
Okkur hefur tekist að dreifa ferða-
mönnum yfir árið, en eigum mikið
inni varðandi dreifingu um landið.
Ég trúi því að þau svæði verði eftir-
sóknarverðari með tímanum, en við
þurfum að markaðssetja þau. Símar
og samfélagsmiðlar breyttu „word of
mouth“ þannig að í stað þess að einn
vinur ferðamannsins heyri af frá-
bæru ferðalagi til Íslands upplifa það
svo miklu fleiri í beinni útsendingu,“
segir Þórdís og bætir við að það sé
mikilvægt að elta ekki eftirspurn á
öllum stöðum án þess að taka með-
vitaða ákvörðun um hvaða staði við
viljum byggja upp með innviðum.
„Sumir staðir eru bara þannig
og eiga að vera þannig áfram að þú
byggir ekki upp. Hlutverk mitt er
að skapa réttar aðstæður – passa að
ríkið sé ekki fyrir. Kæfandi umsvif
hins opinbera skila engu. Ferða-
þjónustan er eitt besta dæmið um
hverju einkaframtakið getur skilað.
Ég hef mikla trú á ferðaþjónustunni.
Þótt við þurfum að fara í ákveðnar
aðgerðir til þess að takast á við næsta
vetur, því það urðu vissulega svipt-
ingar, þá bara förum við í það.“
Ekki endilega afsláttur
Hún á ekki endilega við um afslátt
af lendingargjöldum eða annað sem
hefur verið rætt í samhengi við fall
WOW. „Aðallega markaðssetningu
á landinu. En það má ekki gleymast
að við höfum verið í samfelldu mark-
aðsátaki síðan 2010. Stundum er eins
og fólki tali um Inspired by Iceland
í þátíð en það er enn þá í gangi. Það
er búið að vera svo gott sem á fullum
afköstum frá því fór að gjósa.“
Var þetta Inspired by Iceland
myndband endilega besta markaðs-
setningin? Var það ekki einmitt gosið
í Eyjafjallajökli sem setti okkur á
kortið? Myndbandið hvatti til utan-
vegaaksturs og þess að fólk baðaði sig
í sjóðheitum hverum.
Þórdís hlær. „Við höfum auðvitað
lært mikið og erum farin að mark-
aðssetja landið miklu meira í sam-
hengi við náttúruvernd og ábyrga
ferðahegðun. Við erum á réttri leið.
Heimagistingarvaktin er dæmi um
það,“ segir Þórdís og á þar við átaks-
verkefni á vegum ráðuneytis hennar
um ólöglega skammtímaleigu á borð
við Airbnb.
„Að ná tökum á nýjum veruleika.
Það hefur skilað sér í því að ríkis-
sjóður fær út úr þessu meira en það
sem við lögðum í verkefnið. Og það
réttir af samkeppnisstöðu fyrir-
tækja í greininni sem eru að borga
skatta og skyldur. Svo hefur það þau
afleiddu áhrif að fleiri íbúðir eru að
fara á sölu og í langtímaleigu.“
Edition er stórmál
Þórdís hefur frá mörgu að segja
þegar ferðaþjónustan er annars
vegar. „Sjáðu bara hópinn sem er að
byggja Edition-hótelið við Hörpu.
SJÁÐU BARA HÓPINN SEM
ER AÐ BYGGJA EDITION.
ÉG ER EKKI VISS UM AÐ
ALLIR ÁTTI SIG Á ÞVÍ HVAÐ
ÞETTA ER STÓRT.
Ólöf
Skaftadóttir
olof@frettabladid.is
1 3 . J Ú L Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R16 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
3
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:1
1
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
6
C
-4
E
9
8
2
3
6
C
-4
D
5
C
2
3
6
C
-4
C
2
0
2
3
6
C
-4
A
E
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
7
2
s
_
1
2
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K