Fréttablaðið - 13.07.2019, Side 30

Fréttablaðið - 13.07.2019, Side 30
Rannveig Snorra- dóttir farar- stjóri skellti sér í ævintýraför með mömmu sinni og vinkonu hennar. Rannveig, móðir hennar, Birna Hauksdóttir, og vinkona hennar, Auður Yngvadóttir, eru nýkomnar heim frá Tansaníu. Þar eyddu þær nokkrum dögum í að klífa hæsta fjall Afríku, Kilimanjaro, en hæsti tindur þess er tæpum 6.000 metrum yfir sjávarmáli. „Við mamma höfum alltaf verið mjög afrískar í okkur. Við bjuggum í Namibíu með fjölskyldunni og keyrðum í gegnum alla Afríku árið 1996. Ég vinn sem fararstjóri í dag og fer í ferðir með Íslendinga um Namibíu,“ segir Rannveig. Það var fyrir ári síðan sem mæðgurnar fengu þá hugmynd að klífa Kilimanjaro. „Besta vinkona mömmu fór með okkur svo við urðum á endanum þrjár. Ég verð Hver einasti dagur er ný upplifun Rannveig í um það bil 4.300 metra hæð, ný- komin yfir Barr- anco-vegginn og nálgast toppinn. Sandra Guðrún Guðmundsdóttir sandragudrun@frettabladid.is að viðurkenna að við undirbjugg- um okkur ekkert rosalega vel. Við hentum okkur bara út í þetta ævintýri,“ útskýrir Rannveig. Ferðin var alls ekki auðveld og segir Rannveig að hver dagur hafi verið sigur út af fyrir sig. Sumir dagar voru erfiðari en aðrir þar sem við vorum að venja líkamann við breytt loftslag. Því hærra sem við komum því erfiðara verður hvert skref. „Auður vin- kona mömmu handleggsbrotnaði vikuna fyrir ferðina en hún lét það sko ekki stoppa sig! Hún fór þetta bara með höndina í gifsi. Þá var gott að hafa mig og mömmu með til að renna upp úlpum, reima skó og hjálpa við að pakka.” Sjálf fékk Rannveig slæma matar eitrun svo að fyrstu þrír dagarnir af sjö voru sérlega erfiðir. Þrátt fyrir þetta er Rannveig ánægð með ferðina. „Aðstæður þarna eru rosalega flottar. Við vorum heppnar að fara rétt á undan helsta ferðamannastraumnum svo það var ekki troðið af fólki. Hver einasti dagur var algjört ævintýri því við völdum fallegustu leiðina upp á toppinn. Það eru margar leiðir til að fara þarna upp. Við völdum klárlega ekki þá auð- veldustu. Við byrjuðum á að labba einn dag gegnum regnskóg. Svo breyttist umhverfið eftir því sem við komum hærra og það varð kaldara með hverjum deginum. Af því að Kilimanjaro er eldfjall þá fór heill dagur í að ganga gegnum hraun, á svæði sem kallast Lava Tower. Þar eru alveg geggjaðir hraunveggir, þetta minnti svolítið á umhverfið á Íslandi. Þegar við snerum niður aftur gengum við í gegnum gjörólíkt svæði með trjám og blómum sem líkjast engu sem ég hef séð áður.“ Þurftum að klifra á fjórum fótum Rannveig segir að einn dagur í ferðinni hafi staðið alveg sérstak- lega upp úr. „Það er stór veggur þarna, um 260 metra hár. Leið- sögumennirnir bentu okkur á hann og sögðu: Þetta er Barranco- veggurinn frægi. Við störðum hver á aðra og svo leiðsögumennina og sögðum: Þið eruð ekki að fara að láta okkur klifra þetta. Við fengum alveg í magann þegar við sáum veginn frá búðunum. En svo var þetta bara hápunktur ferðarinnar. Maður þarf svo mikið að klifra og klöngrast og þetta var svo ævin- týralegt. Við þurftum stundum að klifra á fjórum fótum. Auður komst upp vegginn handleggs- brotin og mamma, með mestu lofthræðslu sem ég hef kynnst, tæklaði hann með stæl.“ Starfsfólk sá um að bera allan farangurinn svo þær gátu einbeitt sér alveg að göngunni. „Það er magnað að sjá hvernig þau bera hlutina. Ekki bara töskur heldur öll tjöldin, svefnpoka, matartjald og klósett. Þau voru að hlaupa fram og til baka fram hjá manni allan daginn og þegar við komum í búðirnar í lok dags þá var bara búið að setja allt upp fyrir okkur. Svefntjöldin, matartjald og klósett tjald.“ Þær komust því miður ekki alla leið á toppinn en voru nálægt því. „Gifsið hennar Auðar fraus og leið- sögumennirnir ráðlögðu henni að halda ekki áfram. Mamma fékk í magann og þrátt fyrir að vilja halda áfram gat hún það ekki. Ég var svo óheppin að fá háfjallasýki þegar ekki voru nema 200 metrar eftir upp á toppinn. Ég byrjaði að sjá ofsjónir og finna fyrir ógleði og leiðsögumaðurinn skipaði mér að hlaupa niður,“ segir Rannveig. Þrátt fyrir þetta segir Rannveig að hana langi að reyna aftur. „Það eru ekki nema 60% þeirra sem leggja af stað upp á Kilimanjaro sem komast alla leið. Háfjalla- sýkin getur slegið hvern sem er. En ég verð að láta á það reyna að ná toppnum og vona að háfjallasýkin grípi mig ekki aftur.“ Af því að Kilimanj- aro er eldfjall þá fór heill dagur í að gtanga í gegnum hraun. Það minnti svolítið á Ísland. Rannveig, Birna og Auður ánægðar að vera komnar niður fjallið. Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Opið: Virkir dagar 11-18 | Laugardagar 11-15 Kíkið á myndir og verð á Facebook Margir litir Bolur 4.900 kr. - stærð: 38 - 48 Hnébuxur 9.900 kr. - stærð: 34 - 54 4 KYNNINGARBLAÐ 1 3 . J Ú L Í 2 0 1 9 L AU G A R DAG U RFERÐIR 1 3 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :1 1 F B 0 7 2 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 6 C -7 B 0 8 2 3 6 C -7 9 C C 2 3 6 C -7 8 9 0 2 3 6 C -7 7 5 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 7 2 s _ 1 2 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.