Fréttablaðið - 13.07.2019, Síða 10
Ég lærði í raun að
slá upp á nýtt þegar
ég byrjaði að æfa undir
handleiðslu Arnars Más
Ólafssonar árið 2016.
1 3 . J Ú L Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R10 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
FÓTBOLTI Jón Daði Böðvarsson,
landsliðsframherji í knattspyrnu,
hefur fært sig um set frá Reading til
Millwall en bæði liðin leika í ensku
B-deildinni og voru í fallbaráttu
deildarinnar á síðustu leiktíð.
Jón Daði er fimmti leikmaðurinn
sem Neil Harris, knattspyrnustjóri
liðsins, fær til liðs við sig í sumar.
Þetta er þriðja enska liðið sem Jón
Daði leikur með en hann hefur auk
Reading leikið með Wolves.
Kaupverðið á Jóni Daða er
750.000 pund en ekki kemur fram
í fréttinni á heimasíðu Millwall
hversu langan samning hann geri
við félagið.
Hann hélt í herbúðir Reading frá
Wolves sumarið 2017 en Jón Daði
skoraði 10 mörk á sinni fyrstu leik-
tíð með liðinu og svo sjö mörk á
síðasta keppnistímabili.
Eftir síðasta tímabil gerði José
Manuel Gomes, knattspyrnustjóri
Reading, Jóni Daða ljóst að hann
væri ekki í framtíðaráformum
hans og í kjölfar þess var hann orð-
aður við Millwall. Nú hefur hann
eytt óvissunni um framtíð sína og
ákveðið að leika með Millwall.
Auk ensku liðanna hefur Jón
Daði leikið með uppeldisfélagi
sínu Selfossi, norska liðinu Viking
Stavang er og þýska liðinu Kaisers-
lautern.
Þá hefur hann leikið 41 landsleik
og skorað í þeim leikjum tvö mörk
en hann hefur leikið með íslenska
liðinu á lokakeppni Evrópumótsins
árið 2016 og heimsmeistaramótsins
sumarið 2018.
„Ég heyrði af áhuga Millwall fyrir
nokkru síðan og ég er sáttur við að
félagaskiptin séu gengin í gegn. Ég
er spenntur fyrir því að hitta nýju
liðsfélagana mína og byrja að æfa
með liðinu. Ég hlakka mikið til
fyrsta leiks tímabilsins og vona
innilega að okkur gangi vel á næsta
tímabili,“ seg ir Jón Daði um skiptin
til Millwall og framhaldið. – hó
Jón Daði til þriðja enska liðsins
Jón Daði Böðvarsson er genginn til liðs við Millwall. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
GOLF Guðmund ur Ágúst Kristjáns-
son, kylf ing ur úr Golf k lúbbi
Reykjavíkur, bar í gær sigur úr
býtum á Svea Leasing Open mót inu
í Svíþjóð en mótið er hluti af Nordic
mótaröðinni. Guðmund ur Ágúst
hefur nú borið sigurorð á þremur
mótum á mótaröðinni á þessu
keppnistíma bili. Þar með tryggði
hann sér rétt til þess að keppa á
Áskor enda mótaröð Evrópu út yfir-
standandi tímabil.
Er núna að uppskera laun erfiðsins
Kylfingurinn Guðmundur Ágúst Kristjánsson náði í gær áfanga sem hann stefndi að þegar yfirstandandi keppnistímabil hófst.
Hann vann sitt þriðja mót á tímabilinu í Nordic-mótaröðinni og tryggði sér þar með þátttökurétt á Áskorendamótaröð Evrópu.
Guðmundur Ágúst Kristjánsson segir að vendipunktur hafi orðið á golfferli
hans þegar Arnar Már Ólafsson byrjaði að þjálfa hann. MYND/SIGURÐUR ELVAR
35 ára afmælistilboð
allt að 45%
afsláttur
út Ágúst- Hjólsagarblöð
- Bandsagarblöð
- Tifsagarblöð
- Fræsitennur
- Fræsihakar
- Hefiltennur
- Dósaborar
- Þrepaborar
- Handfræsitennur
- Fræsitannahausar
- Sagarblöð fyrir plastparket
Gul Gata
AFMÆLIS
TILBOÐ
35ára
EMBASSY OF CANADA
TWO YEAR RENTAL
The Embassy of Canada in Reykjavik
seeks an apartment containing
2 bedrooms, living-dining room
kitchen, toilet-bathroom with
washer/dryer & refrigerator
Please contact:
rkjvk@international.gc.ca
tel. +354-575-6503
Hann lék þriðja og síðasta hring-
inn í gær á 67 högg um eða fimm
högg um und ir pari vallarins. Guð-
mundur Ágúst fékk sjö fugla á
lokahringn um en hann lék hringina
þrjá á 200 högg um eða 16 högg um
und ir pari. Hann varð fjór um högg-
um á und an næstu kylfingum þegar
upp var staðið.
Þriðji íslenski kylfingurinn
til að fá fullan þátttökurétt
Áskorendamótaröðin er næst
sterkasta mótaröð í Evrópu en
Guðmundur Ágúst er þriðji íslenski
kylfingurinn sem fær fullan þátt-
tökurétt á mótaröðinni. Áður hafa
Axel Bóasson og Birgir Leifur Haf-
þórsson náð þeim áfanga.
„Það er alveg yndisleg tilfinning
að vera kominn inn á Áskorenda-
mótaröðina, sérstaklega þar sem ég
er að uppskera eftir þrotlausa vinnu
síðustu þriggja ára. Ég fékk nýjan
þjálfara, Arnar Má Ólafsson, árið
2016 og með honum hef ég gengið
í gegnum mjög mikla tæknivinnu,"
segir Guðmundur Ágúst í samtali
við Fréttablaðið um áfangann sem
hann náði í gær.
„Ég lærði í rauninni að slá upp á
nýtt eftir að ég byrjaði að æfa undir
handleiðslu Arnars Más og ég næ
að spila mun afslappaðra og betur
tæknilega útfært golf. Hann kenndi
mér að slá lengra og tók í gegn öll
tæknileg atriði sem þarf til þess að
bæta mig í golfi. Ég er í mínu besta
formi þessa stundina og það að ná
að vinna tvö mót á Nordic-mótaröð-
inni gerði það að verkum að ég kom
fullur sjálfstrausts inn í þetta mót,"
segir kylfingurinn um ástæðu þess
að hann er að spila svona vel þessa
stundina.
Mun betri umgjörð á allan hátt
„Ég náði góðri forystu eftir fyrstu
tvo hringina og mér leið vel fyrir
lokahringinn. Það var frábært að ná
að landa þessum sigri og ég er mjög
spenntur fyrir því að leika á Áskor-
endamótaröðinni. Ég fékk smjör-
þefinn af því að spila þar í síðustu
viku og það var mjög gaman,“ segir
Guðmundur Ágúst en hann fékk
boð um að leika í móti sem er hluti
af Áskorendamótaröðinni í Slóvak-
íu í upphafi þessa mánaðar.
Auk þess að leika þar og vinna
þau þrjú mót á Nordic-mótaröðinni
sem fleyta honum inn á Áskorenda-
mótaröðina hefur Guðmundur
Ágúst tekið þátt í móti á Evrópu-
mótaröðinni, sterkustu mótaröð
Evrópu, á tímabilinu. Það var í
annað skipti sem hann leikur í móti
á Evrópumótaröðinni.
„Það eru mun sterkari andstæð-
ingar, betri aðstæður og umgjörð
og hærra verðlaunafé á Áskorenda-
mótaröðinni. Þangað hefur mig
langað að komast í töluverðan tíma
og nú er næsta markmiðið að festa
mig í sessi þarna. Ég er á leiðinni
heim núna í stutt stopp og svo tek
ég þátt í móti á Áskorendamóta-
röðinni í Austurríki strax á þriðju-
daginn. Ég get ekki beðið eftir því
að spila þar,“ segir kylfingurinn um
framhaldið. hjorvaro@frettabladid.is
1
3
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:1
1
F
B
0
7
2
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
6
C
-3
F
C
8
2
3
6
C
-3
E
8
C
2
3
6
C
-3
D
5
0
2
3
6
C
-3
C
1
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
7
2
s
_
1
2
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K