Fréttablaðið - 13.07.2019, Page 28
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Kristín Þorsteinsdóttir Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Ingibjörg Elsa Eysteinsdóttir, forstöðumaður hjá Úrval Útsýn, segir að sumarið hafi verið mjög
gott ferðasumar hjá Íslendingum.
Margir sæki til sólarlanda og
Kanarí hafi aukið mikið vinsældir
sínar að undanförnu. Tenerife
hefur um árabil verið einn vinsæl-
asti áfangastaðurinn en nú sækir
Kanarí á enda hefur mikil
breyting og uppbygging
átt sér stað þar síðustu
ár. „ Það eru sífellt
f leiri sem velja að
dvelja á Mel-
oneras-svæðinu
þar sem glæsileg
hótel hafa risið,
en þar eru einn-
ig golfvellir og
margir góðir veit-
ingastaðir. Verðið á
hótelgistingu á Kanarí
er mjög gott og þar af
leiðandi getum við boðið
frábært verð til Kanarí,“ segir Ingi-
björg Elsa. „Þótt Tenerife sé enn
mjög vinsæll staður þá finnum við
fyrir mikilli aukningu og áhuga
á Kanarí,“ segir hún. „Þessir tveir
staðir eru vinsælir allt árið líkt og
Alicante. Fólk á öllum aldri sækir á
þessa staði og fer aftur og aftur.“
Löng helgi í Alicante
Ingibjörg segir að það sé sífellt
að færast í aukana að fólk sé að
fara í styttri ferðir til Alicante.
„Það er f lug þangað oft í viku sem
leiðir til þess að fólk skreppur í
langa helgi til Alicante. Margir
dvelja í borginni frá fimmtudegi
til þriðjudags enda hefur Alicante
upp á svo ótrúlega margt að bjóða.
Í borginni eru fjölmargir tapas-
staðir, f lottir veitingastaðir og góð
hótel. Borgin er sérstaklega falleg
og úrval verslana með hagstæðu
verði. Sumir eru t.d. að skreppa í
golf yfir langa helgi en við bjóðum
meðal annars upp á gistingu og
golf á El Plantio vellinum sem
er rétt fyrir utan Alicante. En
aðstaðan á El Plantio fyrir kylfinga
er alveg meiriháttar. Við erum
sömuleiðis með skipulagðar glæsi-
legar lengri golfferðir í september
og október.
Frá Alicante er stutt að fara
til Benidorm, Albír og
Calpe. En þar bjóðum
við upp á vandaða
íbúðagistingu og
glæsileg hótel.
Við getum í raun
útvegað fólki
gistingu hvert
sem það langar að
fara,“ segir Ingi-
björg Elsa.
Almería er sömu-
leiðis vinsæll áfanga-
staður og fólk fer þangað
sumar eftir sumar. „Verð-
lagið er einstaklega hagstætt enda
sækja Spánverjar mikið þangað í
frí. Í Almería eru margir frábærir
tapas-staðir og fjölskyldur njóta
þess að vera þar saman. Staðurinn
er fjölskylduvænn og rólegur en
flest hótelin eru með sérsniðna
skemmtidagskrá alla daga. Við
höfum boðið Almería í nokkur ár
og staðurinn er alltaf jafn vinsæll.“
Siglingar um fljót og höf
Í haust og vetur verður boðið upp
á margvíslegar borgarferðir en
einnig ferðir til fjarlægari landa
eins Taílands, Balí og Egyptalands.
„Þá hefur orðið mikil aukning í
siglingum á skemmtiferðaskipum
og við munum bjóða margar
spennandi ferðir, bæði Miðjarðar-
hafið sem og Karíbahaf. Einnig
bjóðum við sérsniðnar fljóta-
siglingar fyrir vandláta en þær
geta verið í Rússlandi, Frakklandi,
Þýskalandi, Suður-Afríku eða Víet-
nam til Kambódíu, allt eftir óskum
hvers og eins. Þetta eru lúxusferðir
í samstarfi við AmaWaterways
sem er eitt fremsta fljótasiglinga-
fyrirtæki heims,“ segir Ingibjörg
og bendir fólki á að hafa samband
við starfsfólk Úrvals Útsýnar vilji
það forvitnast frekar um slíkar
siglingar.
Kampavínssmakk í Frakklandi
Þá bendir hún á borgarferðir til
Austur-Evrópu eins og Riga sem
verða í boði í haust og vor. Þær
hafa verið mjög vinsælar sem og
Gdansk. Ferð til Epernay í Frakk-
landi er nýjung. „Epernay er lítill
bær um 130 km frá París. Hann
er umkringdur vínekrum við ána
Marne. Bærinn er kallaður höfuð-
borg kampavínsins og þarna eru
margir bestu kampavínsfram-
leiðendur heims. Gatan Avenue
de Champagne er heimili frægra
kampavínsframleiðanda eins og
Moët et Chandon, De Castellane
og Mercier. 200 ára neðanjarðar-
göng eru þarna þar sem kampa-
vínið fær að þroskast. Þetta er
ferð fyrir þá sem vilja smakka
gott kampavín og borða á litlum,
sætum veitingahúsum. Fólk vill
ferðast og njóta í styttri ferðum,“
segir hún. „Við erum með mjög
breitt úrval af borgarferðum sem
henta jafnt einstaklingum og
hópum.“
Hjólað, gengið eða skíðað
„Næsta vor verður fjölbreytt
úrval af svokölluðum hreyfi-
ferðum. Það eru skipulagðar raf-
hjóla- eða gönguferðir. Þetta verða
skemmtilegar ferðir þar sem fólk
fær hreyfingu en um leið er það að
upplifa og njóta. Mikil eftirspurn
er eftir svona ferðum og komum
við til með að bjóða upp á þó
nokkrar ferðir. Til dæmis að hjóla í
kringum Gardavatnið á Ítalíu eða
vötnin í Austurríki. Það má því
segja að ýmislegt spennandi verði
í boði,“ segir Ingibjörg og bætir
við að skíðaferðirnar verði að
sjálfsögðu í janúar og febrúar. „Ma-
donna á Ítalíu er alltaf gríðarlega
vinsæll staður enda er hann frá-
bær. Góð hótel og veitingahús auk
þess sem skíðasvæðið er frábært.
Við verðum með tvo nýja farar-
stjóra sem verða í Madonna í vetur.
Þetta eru þau Helgi Geirharðsson
og Kristín Helga Gunnarsdóttir
(Dinna) sem eru algjörir reynslu-
boltar á skíðum og útivistarfólk.
Madonna hentar fyrir byrjendur
á skíðum sem lengra komna en
einnig er boðið upp á skíðaferðir
til Austurríkis.“
Hægt er að skoða allar ferðir á
heimasíðunni urvalutsyn.is eða
hafa samband í síma 585 4000.
Úrval Útsýn er í Hlíðasmára 19,
Kópavogi.
Epernay er höfuðstaður kampavínsframleiðslunnar í Frakklandi. Þangað er ferðinni heitið í haust með Úrvali Útsýn.
Mikill og vaxandi áhugi er meðal Íslendinga á alls kyns siglingum.
Golfið er alltaf jafnvinsælt. Í haust er hægt að fara í styttri eða lengri ferðir til Spánar þar sem boðið er upp á glæsilega
golfvelli. Aðstaðan á El Plantio fyrir kylfinga er alveg meiriháttar og margir fara þangað aftur og aftur.
Strandlífið heillar alltaf. Tenerife og Gran Canarí eru vinsælir áfangastaðir.
Hreyfiferðir eru í uppáhaldi hjá mörgum. Fjölbreytt úrval hreyfiferða
verður í boði hjá Úrval Útsýn í vor, meðal annars rafhjólaferðir.
Tenerife hefur um
árabil verið einn
vinsælasti áfangastaður-
inn en nú sækir Kanarí
mjög á enda hefur mikil
breyting og uppbygging
átt sér stað þar síðustu
ár. Glæsileg hótel og
veitingastaðir.
Ingibjörg Elsa Eysteinsdóttir
Framhald af forsíðu ➛
2 KYNNINGARBLAÐ 1 3 . J Ú L Í 2 0 1 9 L AU G A R DAG U RFERÐIR
1
3
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:1
1
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
6
C
-7
F
F
8
2
3
6
C
-7
E
B
C
2
3
6
C
-7
D
8
0
2
3
6
C
-7
C
4
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
7
2
s
_
1
2
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K