Fréttablaðið - 13.07.2019, Blaðsíða 37

Fréttablaðið - 13.07.2019, Blaðsíða 37
GARÐATORGI 7 • SÍMI 525 8500 • GARDABAER.IS SKÓLASTJÓRI HOFSSTAÐASKÓLA Laus er til umsóknar staða skólastjóra Hofsstaðaskóla sem er grunnskóli fyrir nemendur í 1. - 7. bekk. Nemendur skólans eru ríflega 570. Megin markmið í starfsemi Hofsstaðaskóla er að öll börn hafi jafnan rétt til náms og líði vel í skólanum. Áhersla er lögð á hlýlegt umhverfi, glaðlegt viðmót, vel menntað og hæft starfsfólk. Í skólanum er lögð áhersla á samvinnu og samræmingu námskrár leik- og grunnskóla og unnið er eftir samstarfsáætluninni „Brúum bilið“. Sjá nánar um skólastarfið á vef skólans, hofsstadaskoli.is. Í Garðabæ er lögð rík áhersla á sjálfstæði skóla, fjölbreytni og valfrelsi sem felst meðal annars í því að foreldrar hafa fullt frelsi um val á skóla fyrir börn sín. Skólastjóri tekur þátt í að móta metnaðarfullt skólasamfélag Garðabæjar með uppbyggilegum og framsýnum hætti. Helstu verkefni: • Að vera faglegur leiðtogi • Að bera faglega og rekstrarlega ábyrgð á starfi skólans, stjórna daglegri starfsemi og hafa forgöngu um mótun og framgang stefnu skólans • Að vinna náið með starfsfólki að því að skapa frjótt námsumhverfi fyrir alla nemendur • Að leiða og hvetja starfsfólk með það að markmiði að tryggja sem best vellíðan og árangur hvers og eins Menntunar- og hæfniskröfur: • Kennaramenntun og leyfisbréf til kennslu í grunnskóla • Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi • Reynsla af kennslu • Reynsla af starfsmannastjórnun og rekstri • Frumkvæði og vilji til að leita nýrra leiða í skólastarfi • Góðir skipulagshæfileikar, lipurð og færni í samskiptum • Áhugi og reynsla í að leiða þróunarstarf ásamt sveigjanleika og víðsýni Umsókninni skal fylgja ítarleg starfsferilskrá um störf umsækjanda og menntun, stjórnunarreynslu og verkefni sem hann hefur unnið að og geta varpað ljósi á færni hans til að sinna starfi skólastjóra. Þá skal fylgja umsókninni greinargerð með hugmyndum umsækjanda um starfið og hvernig hann sér Hofsstaðaskóla þróast undir sinni stjórn. Staðan er laus frá og með 1. ágúst 2019. Umsóknarfrestur er til og með 28. júlí 2019. Nánari upplýsingar um starfið veita Eiríkur Björn Björgvinsson, forstöðumaður fræðslu- og menningar- sviðs, s. 525-8500. eirikurbjorn@gardabaer.is, og Katrín Friðriksdóttir, deildarstjóri skóladeildar, s. 525-8500, katrinf@gardabaer.is. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Skólastjórafélags Íslands. Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Umsækjendur eru beðnir um að sækja um rafrænt á ráðningarvef Garðabæjar https://starf.gardabaer.is. Menntunar- og hæfniskröfur • Almennt grunnnám. • Almenn ökuréttindi og meirapróf bifreiðastjóra. • Vinnuvélaréttindi. • Reynsla af ámóta störfum æskileg. • Frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í hóp. • Góðir samstarfshæfileikar. • Gott vald á íslenskri tungu. Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður sem hentar jafnt báðum kynjum. Umsóknarfrestur er til og með 5. ágúst 2019. Umsóknir berist Vegagerðinni á netfangið starf@vegagerdin.is Í umsókninni komi fram persónulegar upplýsingar ásamt upplýsingum um þá menntun og hæfni sem óskað er eftir. Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Nánari upplýsingar um starfið veitir Bjarni Stefánsson, deildarstjóri umsjónardeildar í Hafnarfirði, bjarni.stefansson@vegagerdin.is eða í síma 552 1461. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Vélamaður á þjónustu- stöð í Hafnarfirði Starfssvið • Eftirlit með snjómokstri verktaka, eftirlit getur átt sér stað að nóttu til. • Viðhald, þjónusta og nýbyggingar vega á starfssvæði Vegagerðarinnar í Hafnarfirði sem er höfuðborgarsvæðið og Reykjanesskaginn. • Ýmis vinna í starfsstöð. Starf vélamanns hjá þjónustustöð Vegagerðarinnar í Hafnarfirði er laust til umsóknar. Um 100% starf er að ræða. Job.is Þú finnur draumastarfið á Job.is GLÆNÝ OG FERSK STÖRF Í HVERRI VIKU Kennsla Þú finnur draumastarfið á Iðnaðarmenn Þú finnur draumastarfið á Heilbrigðisþjónusta Veitingastaðir ATVINNUAUGLÝSINGAR 7 L AU G A R DAG U R 1 3 . J Ú L Í 2 0 1 9 1 3 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :1 1 F B 0 7 2 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 6 C -8 4 E 8 2 3 6 C -8 3 A C 2 3 6 C -8 2 7 0 2 3 6 C -8 1 3 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 7 2 s _ 1 2 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.