Fréttablaðið - 13.07.2019, Síða 39

Fréttablaðið - 13.07.2019, Síða 39
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Mosfellsbær auglýsir hér með skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eftirtalda tillögu að breytingu á deiliskipulagi: Mosfellsbær, Vestursvæði - Höfðahverfi Deiliskipulagsbreytingin felur í sér breytingu á legu göngustígs milli Súluhöfða og golfvallar. Í stað þess að stígurinn tengist inn á gangstétt í neðstu götunni í Súluhöfða fer hann norð- vestur fyrir neðstu lóðirnar og tengist núverandi stíg sem liggur til vesturs og niður gegnum gólfvöllinn að strandstíg. Tillagan verður til sýnis í þjónustuveri Mosfellsbæjar Þverholti 2, frá 15. júlí 2019 til og með 26. ágúst 2019, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér hana og gert við hana athugasemdir. Tillagan verður einnig birt á heimasíðu Mosfellsbæjar á slóðinni: www.mosfellsbaer.is/skipulagsauglysingar Athugasemdir skulu vera skriflegar og skal senda þær til skipulagsnefndar Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ eða í tölvupósti til undirritaðs eigi síðar en 26. ágúst 2019. 13. júlí 2019 Skipulagsfulltrúi Mosfellsbæjar olafurm@mos.is Samstæða Orkuveitu Reykjavíkur Allar auglýsingar vegna innkaupaferla eru birtar á utbodsvefur.is Utbodsvefur.is er sameiginlegur auglýsingavettvangur opinberra útboða þar sem birtar eru auglýsingar og/eða tilkynningar um fyrirhuguð innkaup. ÚTBOÐ Ný útboð í auglýsingu hjá Reykjavíkurborg: • Vogabyggð 1 – fyrsti áfangi 2019. Gatnagerð og lagnir, útboð nr. 14612 Nánari upplýsingar er að finna á www.reykjavik.is/utbod Innkaupadeild Vegagerðin auglýsir eftir verkfræðingi á hafnadeild. Um er að ræða fullt starf á starfsstöð Vegagerðarinnar í Reykjavík. Í boði er spennandi, fjölbreytt og krefjandi starf þar sem áherslan verður á ýmiskonar rannsóknir og þróunarvinnu tengdri hafnargerð. Menntunar- og hæfniskröfur • Umhverfis- eða byggingarverkfræðingur, M.Sc. • Lágmark 5 ára starfsreynsla af hafnatengdum rannsóknar- og þróunarverkefnum. • Þekking og reynsla af líkanagerð. • Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum. • Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í teymisvinnu. • Frumkvæði og faglegur metnaður. • Skipulögð og öguð vinnubrögð í starfi. • Góð íslenskukunnátta. • Kunnátta í ensku og einhverju norðurlandamáli. Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður sem hentar jafnt báðum kynjum. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi ríkisins og viðkomandi stéttarfélags. Umsóknarfrestur er til og með 5. ágúst 2019. Umsóknir berist á netfangið starf@vegagerdin.is. Í umsókninni komi fram persónulegar upplýsingar ásamt upplýsingum um þá menntun og hæfni sem gerð eru til starfsins, þar með talið menntunar- og starfsferilsskrá. Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Nánari upplýsingar um starfið veita Fannar Gíslason (fannar.gislason@vegagerdin.is ) eða Sigurður Sigurðsson (sigurdur.sigurdsson@vegagerdin.is ) eða í síma 522 1000 Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Verkfræðingur á hafnadeild í Reykjavík Við erum að leita eftir verkfræðingi sem hefur áhuga á að takast á við krefjandi verkefni á sínu fagsviði, frá frumstigum hönnunar til framkvæmda. Vinna við öldufarsrannsóknir og rannsóknar- og þróunarverkefni sem tengjast hafnargerð. Aðkoma að eftirliti- og hönnun hafnarmannvirkja. Á hafnadeild vinna um 8 manns við ýmis hönnunar-, rannsóknar- og þróunarverkefni sem tengjast hafnagerð. Á Seltjarnarnesi búa um 4600 manns. Lögð er áhersla á að tryggja íbúum góða alhliða þjónustu. Félagsþjónusta Seltjarnarnesbæjar óskar eftir að ráða yfirþroskaþjálfa eða deildarstjóra til starfa á Sæbraut sem er íbúðakjarni fyrir fatlað fólk á aldrinum 25 til 40 ára Starfshlutfall er 90% eða eftir samkomulagi og er vaktavinna hluti af vinnuskipulagi. Verkefni og ábyrgð: • Stjórnun og umsjón með framkvæmd þjónustu • Samstarf við forstöðumann um faglega ábyrgð • Ráðgjöf til starfsmanna ásamt forstöðumanni • Þátttaka í þverfaglegu samstarfi • Samstarf og samráð við íbúa og aðstandendur • Þátttaka í þróunarstarfi og uppbyggingu þjónustu Menntun og hæfniskröfur: • Starfsleyfi sem þroskaþjálfi eða háskólamenntun á sviði félags- heilbrigðis- og/eða menntavísinda • Þekking og reynsla af þjónustu við fólk með flóknar fatlanir og hegðunarfrávik • Stjórnunarreynsla æskileg en ekki skilyrði • Samviskusemi, gagnrýnin hugsun og frumkvæði • Góð samskiptafærni, skipulagsfærni og sveigjanleiki • Geta til að takast á við krefjandi vinnuumhverfi Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og hlutaðeigandi stéttarfélaga. Þeir sem ráðnir eru til starfa hjá Seltjarnarnesbæ þurfa að veita heimild til að leitað sé upplýsinga af sakaskrá. Í samræmi við jafnréttisáætlun Seltjarnarnesbæjar eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um störf. Nánari upplýsingar um störfin gefur Aníta Ösp Gunnlaugsdóttir forstöðumaður í síma 867 5178 eða Halldóra Jóhannesdóttir Sanko deildarstjóri stuðningsþjónustu í síma 595 9100 Umsóknarfrestur er til 28. júlí næstkomandi. Sótt er um störfin á vef Seltjarnarnesbæjar, www.seltjarnarnes.is - Störf í boði. Yfirþroskaþjálfi eða deildarstjóri óskast seltjarnarnes.is capacent.is Við finnum rétta einstaklinginn í starfið Ráðgjafar okkar búa yfir víðtækri þekkingu á atvinnulífinu og veita trausta og persónulega ráðgjöf. ATVINNUAUGLÝSINGAR 9 L AU G A R DAG U R 1 3 . J Ú L Í 2 0 1 9 1 3 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :1 1 F B 0 7 2 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 6 C -8 9 D 8 2 3 6 C -8 8 9 C 2 3 6 C -8 7 6 0 2 3 6 C -8 6 2 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 7 2 s _ 1 2 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.