Fréttablaðið - 13.07.2019, Page 52

Fréttablaðið - 13.07.2019, Page 52
Móðgaður Donald Trump sármóðgaðist þegar Megan sagðist ekki myndu þiggja boð í Hvíta húsið. Hún þyrfti nú að vinna fyrst! Svipinn á Megan á myndinni hér að ofan gætu margir túlkað sem þögult svar til hans vegna þeirra um­ mæla. Hann hefur gagnrýnt Megan á Twitter fyrir að sýna Hvíta hús inu og þjóðfán­ an um van ­ virðingu. Megan Rapinoe og liðsfélagar hennar tryggðu sér heims-meistaratitil-inn í fótbolta með 2-0 sigri á Hollandi, hún var valin besti leikmaður mótsins og varð einnig markahæst en hún skoraði sex mörk á mótinu. Þetta er í fjórða sinn sem bandaríska kvennalandsliðið vinnur heims- meistaratitilinn. Megan er 34 ára gömul og hefur leikið fyrir sjö félagslið í þremur heimsálfum. Hún er glaðlynd baráttukona sem hefur barist ötul- lega fyrir jöfnum kjörum karla og kvenna í fótbolta og mannrétt- indum hinsegin fólks. Mesta athygli hefur hún vakið fyrir að standa uppi í hárinu á Donald Trump Bandaríkjafor- seta. „Ég ætla ekki í fjandans Hvíta húsið,“ sagði hún í júnímánuði spurð hvort hún væri spennt fyrir heimsókn þangað. Í viðtali á CNN horfði hún beint í myndavélina og talaði til forsetans: „Skila- boð þín útiloka fólk. Þú úti- lokar mig, þú útilokar fólk sem lítur út eins og ég, þú útilokar litað fólk og þú úti- lokar jafnvel fólk sem styður þig,“ sagði hún. „Þú dásamar tímabil sem var ekki frábært fyrir alla – það var kannski frábært fyrir nokkra útvalda og kannski eru Bandaríkin frábær fyrir nokkra einstaklinga núna, en þau eru það ekki fyrir alltof marga Bandaríkja- menn.“ Megan og liðsfélagar hennar ákváðu einnig að beita hörðu og lögsækja bandaríska knattspyrnu- sambandið vegna launamisréttis. Kvennalandsliðinu hefur gengið mun betur en karlalandsliðinu þar í landi en þrátt fyrir það fá karlarnir mun meiri peninga frá bandaríska knattspyrnusambandinu. Þetta þykir Megan og félögum hennar eðlilega hið megnasta óréttlæti. Bandaríska knattspyrnusamband- ið borgar konum 38% af því sem það borgar körlunum og ekki er hægt að beita rökum sem algeng eru sem réttlæting fyrir misréttinu víða um heim, sem er minna áhorf og minni tekjur. Því velgengni kvennanna skilar sambandinu milljón doll- urum meira í tekjur. B a nd a r í sk u þi ng konu r n a r Dianne Feinstein og Patty Murray notuðu tækifærið eftir sigur lands- liðsins og lögðu fram frumvarp um sanngjörn laun íþróttafólks. Verði Áhrif Megan Megan Rapinoe, fyrirliði bandaríska kvennalandsliðsins í fótbolta, skýtur fast og ekki bara innan vallar, því hún hefur skotið föstum skotum bæði á Donald Trump, bandaríska knattspyrnusambandið og FIFA. Árangurinn lætur ekki á sér standa. Donald Trump varð heldur viðskotaillur þegar Megan sagðist ekki myndu þiggja boð í Hvíta húsið og tísti á Twitter að hún þyrfti nú að vinna fyrst. Þessi svipur segir framhaldssöguna. MYND/GETTY Megan og kærasta hennar, Sue Bird, í Seattle snemma á árinu. NORDICPHOTOS/GETTY Þorsteinn Þorvaldsson Aldur: 12 ára Lið: KR Uppáhaldsliðið Bandaríkin Uppáhaldsleikmenn 1. Megan Rapinoe 2. Alex Morgan 3. Ellen White Mér finnst Megan Rapinoe hafa verið best því hún skoraði flest mörkin ásamt Alex Morgan og Ellen White. Og svo var Megan bara mjög góð heilt yfir í öllum leikjunum. Óttar Sveinsson Aldur: 9 ára Lið: Víkingur Uppáhaldsliðið Holland Uppáhaldsleikmenn 1. Alex Morgan 2. Megan Rapinoe 3. Sari van Veenendaal Ég fylgdist langmest með hol­ lenska markmanninum, kannski af því að ég er sjálfur markmaður. Þórbergur Rúnarsson Aldur: 10 ára Lið: Víkingur Uppáhaldsliðið Bandaríkin Uppáhaldsleikmenn 1. Megan Rapinoe 2. Sari van Veenendaal 3. Crystal Dunn Megan var besti leikmaðurinn Líka markmaður Hollendinga, hún var svaka góð og Crystal stóð sig vel í vörninni. Sólveig Harpa Magnúsdóttir Aldur: 11 ára Lið: ÍR Uppáhaldsliðið England Uppáhaldsleikmenn 1. Megan Rapinoe 2. Lucy Bronze 3. Ellen White Hélt með Englandi, frekar svekkt að þær næðu ekki á pall. Samt glöð fyrir hönd USA að þær skyldu vinna því þær voru líka mjög flottar. Halla Elísabet Viktorsdóttir Aldur: 11 ára Lið: KR Uppáhaldsliðið Bandaríkin Uppáhaldsleikmenn 1. Alex Morgan 2. Megan Rapinoe 3. Betsy Hassett Betsy Hassett frá Nýja­Sjá­ landi spilar með liðinu mínu KR á Íslandi. Álitsgjafar Fréttablaðsins velja bestu leikmenn Heimsmeistaramótsins það samþykkt verður það ólöglegt hjá bandarískum íþróttasambönd- um að mismuna eftir kyni. Megan hefur einnig beint spjót- um sínum að Alþjóðaknattspyrnu- sambandinu, FIFA og gagnrýnt það að heildarfjárhæðin sem lið í karla- flokki fengu fyrir þátttöku á heims- meistaramótinu var 400 milljónir dollara en lið í kvennaflokki fengu aðeins tæpar 30 milljónir dollara. Landsliðskonur fylktu liði á Manhattan í vikunni og fögnuðu með íbúum New York og þar hélt Megan ræðu sem vakti athygli um allan heim því hún bað fólk um að sýna samstöðu þrátt fyrir ólíkar skoðanir og lífsstíl. „Þetta er mitt ákall til allra, við verðum að gera betur. Við verðum að elska meira, hata minna. Við verðum að hlusta meira og tala minna. Við verðum að átta okkur á því að þetta er ábyrgð okkar allra.“ Í kjölfarið skrifaði Andrew Mark Cuomo, ríkisstjóri New York, undir frumvarp um sömu laun fótbolta- fólks í New York-ríki. Laun knatt- spyrnukarla- og kvenna verði héðan í frá jöfn. „Það eru engin rök fyrir því hvers vegna konurnar eru með lægri laun en karlarnir. FIFA og bandaríska knattspyrnusambandið hafa komið illa fram við landsliðs- konurnar,“ sagði hann í ræðu sinni. Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjana@frettabladid.is Aldur: 34 ára n Ólympíumeistari 2012 n Franskur meistari, bikarmeistari og vann Meistaradeild Evrópu með Lyon árið 2013 n Deildarmeistari með Reign FC árin 2014 og 2015. n Heimsmeistari 2015 og 2019 n Markahæsti leikmaður HM 2019 Megan Rapinoe LEIKVANGURINN 1 3 . J Ú L Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R24 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 3 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :1 1 F B 0 7 2 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 6 C -4 E 9 8 2 3 6 C -4 D 5 C 2 3 6 C -4 C 2 0 2 3 6 C -4 A E 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 7 2 s _ 1 2 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.