Bæjarblaðið - 10.11.1983, Qupperneq 1
Húsnæðisskortur grunnskólanna
Foreldrafélag
Brekkubæjar-
skóla sendir
áskorun
Húsgögnin í Brekkubæjarskóla eru komin til ára sinna en fjármagn
skortir til endurnýjunar. — Mynd: Árni
Eins og skýrt var frá í síðasta . Vonandi er að fjárveitingvaldið
Bæjarblaði, þáerkennslaverulega skelli ekki skollaeyrum við þessari
skert í Brekkubæjarskóla vegna áskorun því börn á Akranesi hljóta
húsnæðisskorts. Skólamenn hér á að eiga kröfu á sambærilegri
Akranesi og foreldrar barna í menntun og önnur börn landsins.
Brekkubæjarskóla vinna nú að því Húsnæðisskorturinn hefur einnig
af fullum krafti að reyna að opna leitt það af sér að erfiðlega hefur
augu ráðamanna fyrir þessu gengið að ráða kennara með full
vandamáli. réttindi til skólans, þar sem þeir
Um þessar mundir er Foreldra- telja vinnuaðstöðuna ekki boðlega.
félag Brekkubæjarskóla að senda Má það reyndar furðu sæta hvað
fjárveitinganefnd Alþingis áskorun okkar ágætu kennarar hafa verið
um að veita nú þegar fjármagni til þolinmóðir á liðnum árum en hús-
skólans svo að þetta gífurlega næðisskorturinn hefur sett þeim
húsnæðisvandamál megi leysa. miklar skorður í kennslu.
Hættulegur leikur
Fyrsti snjór vetrarins féll hér á Skaga um síðustu helgi. —
Vetrarveður bjóða oft hættunni heim, eins og þessi mynd Áma ber
meðsér
Auglýsingasímar
Bæjarblaösins eru:
1919—2774
Skagaleikflokkurinn:
Sýnir „Eðlisfræðingana“
Kjartan Ragnarsson leikstýrir
Svipmynd úr leikritinu
Skagaleikflokkurinn frumsýndi
4. nóvember leikritið „Eðlisfræð-
ingarnir“ eftir Friedrich Durrenn-
matt (í þýðingu Halldórs Stefáns-
sonar). Leikstjórinn, Kjartan
Ragnarsson er landsmönnum
kunnur sem frábær leikstjóri og
leikritahöfundur. Þetta er í fyrsta
skipti sem hann leikstýrir hjá
áhugafélagi og var það mikill
fengur fyrir Skagleikflokkinn að fá
hann til liðs við sig. Eitt af því sem
Kjartan kom til leiðar varstækkun á
sviði Bíóhallarinnar, sem gerir
leikhúsið mun betra til leiksýninga.
Félagar í Skagaleikflokknum sáu
um þá framkvæmd.
Æfingar á verkinu stóðu yfir í 7
vikur og lögðu félagar Skagaleik-
flokksins ásamt leikstjóra nótt við
dag til að koma því á fjalirnar.
Sýningin er mjög viðamikil, sér-
staklega hvað leikmynd snertir.
Einnig eru Ijós og hljóð mikið notuð
til þess að gera sýninguna sem
áhrifamesta.
Eðlisfræðingarnir er meðal
kunnari verka Durrennmatts. Það
var fyrst sýnt hér á landi 1963 í
Iðnó. Það á þó ekki síður erindi til
okkar í dag.
Leikritið er spennandi og
skemmtilegt sakamálaleikrit með
alvarlegum undirtón. Friedrich
Dúrrennmatt er einmitt frægur fyrir
sakamálasögur sínar. Þær hafa
t.d. verið lesefni í mennta- og fjöl-
brautaskólum landsins (d. „Der
Richter und sein Henker"). Meðal
annarra leikrita Durrennmatts má
nefna „Sú gamla kemur í heim-
sókn.“
Leikritið er nútímaleikrit og gerist
á geðveikrahæli í Sviss. Þar
dveljast 3 eðlisfræðingar. Á hælinu
gerast ýmsir dularfullir atburðir
sem ekki verða þó raktir hér.
Skagaleikflokkurinn hefur ætíð
verið metnaðargjarn í starfi sínu og
stefnt að því að hafa verkefnavalið
sem fjölbreyttast. Starf við verkefni
sem „Eðlisfræðingarnir" er mjög
þroskandi og lærdómsríkt og gefur
öllum sem að því standa mikið i
aðra hönd.
Frumsýningu á Eðlisfræðingun-
um var mjög vel tekið af leikhús-
gestum og fögnuðu þeir leikurum
og leikstjóra.
Næstu sýningar verða í Bíóhöll-
inni á Akranesi föstudagskvöldið
11. nóv. kl. 20:30 og laugardaginn
12. nóv. kl. 15:00.
G.R.&H.B.J.