Bæjarblaðið - 10.11.1983, Blaðsíða 8

Bæjarblaðið - 10.11.1983, Blaðsíða 8
I.A. sækir um lóð fyrir íþróttahús: Féll á jöfnu í bygginganefnd Á fundi sínum þann 20. okt. síðastliðinn felldi bygginga- nefnd Akraness á jöfnum at- kvæðum beiðni Í.A. um leyfi til byggingar nýs íþróttasalar við íþróttahúsið við Vesturgötu. í sérstakri bókun þeirra nefndar- manna sem á móti voru er vísað til eindreginna mótmæla íbú- anna í nærliggjandi húsum. Málið er nú í biðstöðu þar sem Bæjarstjóm frestaði ákvarðana- töku á síðasta fundi sínum. Það hefur legið Ijóst fyrir í langan tíma að núverandi íþróttahús annar ekki þeirri miklu eftirspurn sem er í æfingatíma og er skortur á æfingatímum þegar farinn að standa sumum íþróttagreinum fyrir þrifum (t.d. badminton). íþrótta- bandalagið ákvað því að stefna að byggingu nýs íþróttasalar við hlið íþróttahússins við Vesturgötu (Há- holtsmegin). Þeir augljósu kostir sem fylgja því að byggja salinn á þessum stað eru að búningsklefar og önnur aðstaða gamla hússins nýtast hinu nýja. Gólfflötursalarins er sá sami og í því íþróttahúsi sem fyrir er, það er að segja löglegur handboltavöllur. Hinsvegar verður salurinn eingöngu notaður til æfinga og því ekki um það að ræða að meiriháttar íþróttakeppni fari þar fram. Nágrannar mótmæla íbúar í nágrenni íþróttahússins hafa mótmælt byggingu salarins mjög harðlega. í bréfi sem íbúar sex nærliggjandi húsa sendu Bygginganefnd nefna þeir fjórar meginástæður fyrir andstöðu sinni. í fyrsta lagi þá geri byggingin hverfið óvistlegra og rýri þar með verðmæti nærliggjandi húsa. í öðru lagi þá myndi nýtingarhlutfall lóða verða langt umfram eðlileg mörk og skapa meiri umferð og ónæði. í þriðja lagi þá myndu húseignir við Háholt missa útsýni, sólskin og sólaryl sem þau nú njóta. í fjórða lagi þá myndi útivöllur á milli húss- ins og girðinga á lóðamörkum Heiðarbrautarhúsa skapa mikil vandræði. Á áðurnefndum fundi Bygginga- nefndar tóku andstæðingar salar- ins undir rök íbúanna og töldu byggingu íþróttamannvirkja betur komna á íþróttavallarsvæðinu á Jaðarsbökkum. Þar sem hinn fyrirhugaði íþrótta- salur kæmi til með að standa á lóð Brekkubæjarskóla, þarf samþykki skólanefndar til. Það samþykki liggur nú fyrir, með því skilyrði þó að fá jafnstóra lóð í staðinn. Eins og áður sagði er málið í bið- stöðu þar sem bæjarstjórn frestaði ákvörðun á síðasta fundi sínum. BH/EJ Teiknirtg af fyrirhugaðri íþróttaskemmu ÍA Garðar Bergmann, Sandabraut 16, fæddur 25. apríl 1983, skírður 3. júlí. For.: Gunnlaugur Sölvason og Halldóra Jóna Garðarsdóttir. Bjarki Þór, Garðabraut 45, fæddur 27. apríl 1983, skírður 7. ágúst. For.: Pálmi Þór Ævarsson og Petrína Jónsdóttir. Hilmar Már, Furugrund 14, Kópa- vogi, fæddur 1. júní 1983, skírður 9. júlí. For.: Friðfinnur L. Hilmars- son og Sigrún Guðjónsdóttir. Fjölnir Öm, Hafnarbraut 16a, Hornafirði, fæddur 27. maí 1983, skírður 7. ágúst. For.: Ársæll Alfreðsson, og Erla Geirsdóttir. Aðalsteinn, Vesturgötu 77, fæddur 15. júlí 1983, skírður 14. ágúst. For.: Haraldur Aðalsteins- son og Ásta Hrönn Jónsdóttir. Ámi Samúel, Vesturgötu 93, fæddur 26. maí 1983, skírður 17. ágúst. For.: Harry Samúel Herluf- sen og Kolbrún Þorleifsdóttir. Sigurður Mikael, Reynigrund 18, fæddur 15. júní 1983, skírður 20. ágúst. For.: Jón Atli Sigurðsson og Sigrún Elíasdóttir. Hafþór, Grenigrund 4, fæddur 2. ágúst 1983, skírður21. ágúst. For.: Guðmundur Reynir Reynisson og Jóna Birna Bjarnadóttir. Hreinn Örvar, Hjarðarholti 7, fæddur 10. mars 1983, skírður 4. september. For.: Hreinn Björnsson og Ingibjörg Jóhanna Ingólfsdóttir. Friðrik Veigar, fæddur 17. maí 1983, skírður 4. september. For.: Guðjón Guðmundsson og Ríkey Andrésdóttir. Skúli Már, Bakkatúni 14, fæddur 15. apríl 1983, skírður 19. septem- ber. For.: Matthías H. Einarsson og Þórdís Skúladóttir. Valdimar Þór, Vesturgötu 89, fæddur 1. september 1983, skírður 21. september. For.: Guðmundur Valdimarsson og Rósa Mýrdal. Elva Hrund, Espigrund 9, fædd 24. júlí 1983, skírð 4. ágúst. For.: Þórir Bergmundsson og Guðríður Guðmunsdóttir. Sólbjörg, Vesturgötu 61, fædd 24. janúar 1983, skírð 27. ágúst. For.: Björn Steinar Sólbergsson og Hrefna Harðardóttir. Tinna, Garðabraut 39, fædd 18. júlí 1983, skírð 27. ágúst. For.: Steindór Kristinn Oliversson og Inga Björg Sigurðardóttir. HJÓNAVÍGSLUR 21. maí: Bjarni Guðmundsson og Þórlína Sveinbjörnsdóttir, Sól- eyjargötu 6. 9. júlí: Valtýr Bergmann Sigríks- son og Sigríður Þórðardóttir, Eini- grund 6. 9. júlí: Jón Jóhannsson og Súsanna Steinþórsdóttir, Stekkjar- holti 20. 9. júlí: Karl Sigurjónsson og Guð- rún B. Alfreðsdóttir, Garðabraut 24. 16. júlí: Kristján Þorgils Sigurðs- son, Suðurbyggð 17, Akureyri og Ingibjörg Erna Óskarsdóttir, Garðabraut 37, Akranesi. 20. ágúst: Ármann Hauksson og Margrét Snorradóttir, Jaðarsbraut 41. Ákveðið hefur verið að gera til- raun til að flytja börn sem óska eftir að taka þátt í barnasamkomum í kirkjunni okkar, ofan af Grundum, með skólabílnum á sunnudags- morgnum og aftur til baka að kirkjuathöfn lokinni. Barnasam- komurnar hefjast kl. 10.30 hvern sunnudagsmorgun og standa til kl. 11.30 eða þar um bil. skólabíllinn fer af stað kl. 10.10 ofan af Grund- um og ekur venjulega leið niður að kirkju. Allar nánari upplýsingar um tilhögun og kostnað mun bílstjórinn 3. sept: Helgi Magnússon, Jör- undarholti 100, og Arna Arnórs- dóttir Krummahólum 8, Reykjavik. JARÐSUNGNIR 15. júlí: Þorgrímur Vídalín Sigurðs- son, fyrrv. prófastur, Vesturgötu 70, fæddur 19. nóvember 1905, dáinn 10. júlí 1983. 15. júlí: Margrét Jóhannsdóttir, húsmóðir, Blönduhlíð 20, Reykja- vík. 12. ágúst: Ingibjörg Jóhanna Ing- ólfsdóttir, Sólmundarhöfða 3, fædd 17. nóvember 1900, dáin 4. ágúst 1983. 1. október: Jónfna Elísabet Magnúsdóttir, Hjarðarholti 10. Leiðréttingar úr síðasta annál sóknarprests í dálknum „jarðsungnir" voru eftirfarandi misprentanir: Hjalti Benjamínsson, á að vera Benonýsson. Sigurey Guðrún Júlíusdóttir, fyrrv. húsmóðir, Kvíabak, á að vera Kvíabala, jarðsett á Dangsnesi, á að vera Drangsnesi. Eru viðeigandi beðnir velvirðingar á þessum mistökum í prentun blaðsins. gefa. En gera má ráð fyrir, að kirkjan taki einhvern þátt í þeim kostnaði, sem börnin þurfa að inna af hendi. Ég vil hvetja börn, sem hér eiga hlut að máli, til þess að notfæra sér þann möguleika, sem þeim er þannig gefinn til þess að koma í Guðs hús á helgum dögum. Fyrsta reglulega ferðin verður væntanlega farin sunnudags- morguninn 20. nóvember n.k. Velkomin í Guðs hús Björn Jónsson, sóknarprestur Orðsending frá sóknarpresti til barna í Grundaskólahverfi Bœjorblodid 10. nóvember 1983 Verð kr. 25.- Verður keyptur annar sjúkrabíll? Akranesdeild Rauða krossins hefur hug á Citroen Chevrolet bifreið Rauðakross deildarinnar Akranesdeild Rauða Krossins og nýi bíllinn hinsvegar að hefur nú í hyggju að kaupa nýja sumarlagi. sjúkrabifreið. Ætlun deildarinnar er að kaupa sjúkrabifreið að Grímur sagði áætlað verð um- Citroen gerð og meginástæðan ræddrar Citroenbifreiðar um 550 fyrir því að nú er hugað að bíla- þúsund krónur og ætti deildin kaupum er hár rekstrarkostnaður talsverðan pening upp í þá upp- þeirrarsjúkrabifreiðarsemnúerí hæð. Það sem á vantaði yrði notkun. hinsvegar að brúa með fram- Grímur Bjarndal, formaður lögum sveitarfélaga í Akranes- Rauðakrossdeildarinnar sagði í læknishéraði og söfnun meðal samtali við blaðið að æ fleiri almennings. Hann sagði að góð sjúkraflutningar væru langflutn- reynsla væri af rekstri þessara ingar og hentaði þá þungur og bíla út um land en þeir væru þar harður bíll síður en léttur og fyrst og fremst notaðir í góðri mjúkur. Núverandi sjúkrabíll er færð. Með kaupum á þessari stór Chevrolet og er ætlun deild- bifreið myndi stóri bíllinn endast arinnar að hann yrði notaður beturogsparastmikillkostnaðurí áfram að vetrarlagi í erfiðri færð rekstri eyðslufreks bíls. . ............................... Akranes — Borgarnes: Sæmundur fékk sérleyfið Samgönguráðherra úthlutaði fyrir skömmu Sæmundi Sig- mundssyni í Borgarnesi, sérleyfi á leiðinni Akranes-Borgarnes. Um- sækjendur um sérleyfið voru tveir, SæmundurSigmundsson, Borgar- nesi og Hópferðabílar Sveins V. Garðarssonar, Akranesi. Sæmundur hefur nú þegar hafið ferðir milli Akraness og Borgar- ness og er afgreiðsla hans á Akra- nesi í Skaganesti og þar fást allar upplýsingar um áætlunarferðirnar. Bæjarblaðið hefur ítrekað reynt að ná í Sæmund undanfarið, til að spyrjast fyrir um hvert fyrirkomulag ferðanna verði í framtíðinni, en Sæmundur er sífellt á ferðinni svo ekki hefur okkur enn tekist að ná tali af honum. Tónlistarskólinn: Rúmlega 200 nemendur Nemendur Tónlistarskólans á Akranesi nú í haust eru 214 og starfandi kennarar 13. Einn nýr kennari réðst til skólans nú í haust, en það er Jón Ólafur Sigurðsson organisti Akraneskirkju. Kennir hann fræðigreinaren einnig áorgel og píanó. Nokkrir erfiðleikar komu upp í haust varðandi söngkennsluna þar sem Hólmfríður Benediktsdóttir annar söngkennari síðasta vetrar flutti aftur burt úr bænum og því varð að fækka söngnemendum frá í fyrra. Ekki eru þó neinar breyt- ingar á söngdeildinni því nú stend- ur til að færa upp söngleik að vori sem er eftir Bretana Gilbert og Sullivan. Er þetta gamanleikur í tveim þáttum og verður fluttur á ísl- ensku í þýðingu kennara skólans. Nokkrir félagar úr karlakór Járn- blendiverksmiðjunnar við Grund- artanga taka einnig þátt í flutn- ingnum. Þrátt fyrir þessi umsvif verður þó að játa að fjárhagsvandi setur nú meir en áður svip sinn á starfsemi skólans. Hafa bæjaryfirvöld nú til meðferöar erindi frá skólanefnd, um þetta mál Skólinn starfar, erns og í fyrravetur, á alls fimm stöðum í bænum. Á Skólabraut 21 og Kirkjubraut 8 (gömlu bæjarskrif- stofunum), en þar er einnig skrif- stofa skólans. Þá er kennt í báðum grunnskólunum og í Akraneskirkju. Nú í vetur, trúlega fyrir jól, mun Friðrik V. Stefánsson, Ijúka áttunda stigsprófi, sem er burtfararpróf frá skólanum. Er þetta fyrsti nemandinn í sögu skólans sem tekur öll þau stig sem hægt er að taka hér á landi við þennan skóla. Próf þetta veitir Frið- rik kennsluréttindi og er áttunda stigið almennt talið háskólastig.

x

Bæjarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1353

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.