Bæjarblaðið - 10.11.1983, Blaðsíða 3

Bæjarblaðið - 10.11.1983, Blaðsíða 3
Bœjorbladid Fyrir rúmum tveimur árum var ráðinn rannsóknarlögreglumaður til starfa hér á Akranesi. í starfið réðst Viðar Stefánsson, sem áður hafði gegnt starfi lögregluþjóns hér í rúm ellefu ár. Bæjarblaðið ræddi við Viðar Stefánsson í síðustu viku og umræðuefnið var að sjálfsögðu starf rannsóknarlögreglumanns á Akranesi. Við spurðum hann fyrst hvers vegna ákveðið hafði verið að ráða í starf rannsóknarlögreglu- manns hér og hvort þörfin fyrir slíkt starf hefði verið mikil? „Það má segja að nokkurs konar regla hafi skapast hjá ríkinu þegar þessar rannsóknardeildir eru stofnaðar á landsbyggðinni, þ.e.a.s. þegar lögregluliðið erorðið tíu menn þá er ráðinn einn rann- sóknarlögreglumaður. Varðandi þörfina, þá held ég að allir séu sammála um að hún sé næg og þó fyrr hefði verið. Þetta er orðin svo mikil pappírsvinna vegna þeirra mála sem fara í framhaldsrann- sókn. Annars má segja að raun- verulega sé tvennskonar réttarkerfi í gangi hér á landi. Annars vegar eru þau mál sem rannsóknarlög- reglu vinnur að og hún vinnur þau þá algerlega upp í hendurnar á dómurum. Hins vegar eru svo mál- in á landsbyggðinni þar sem sami maður og dæmir í málinu er að rannsaka þau alveg frá fyrstu hendi og slíktgeturvarlakallast rétt málsaðferð. Tilheyrir þú þá rannsóknar- lögreglu ríkisins? „Nei, ég er bara einn úr lög- regluliðinu hér á Skaga og starfs- svæði mitt er sama og lögreglunn- ar hér. Ég er hinsvegar með öll þau verkefni hér sem rannsóknarlög- regla ríkisins sér um á Reykjavík- ursvæðinu, nema ef upp koma einhver stærri sakamál, glæpir hverskonar og því um líkt. Þá myndi rannsóknarlögregla ríkisins taka slíkt að sér.“ Starfssvið rannsóknarlög- reglumanns, er hægt að skil- greina það? „Það getur nú orðið erfitt. Það má kannski segja að ég taki við öllum þeim málum sem ein lögreglu- skýrsla dugar ekki í. Og þar eru mál afýmsumgerðum." Hverjir eru helstu málaflokkar sem þú þarft að hafa afskipti af? „Stærsti málaflokkurinn eru þjófnaðarmál ýmiskonar og mér sýnist að smærri þjófnaðarmál hafi aukist nú á þessu ári. Svo eru skemmdarverk talsvert stór flokkur og svo get ég nefnt hér dæmi sem sýna hve margvísleg málin eru. Hér eru skráð t.d. dauðsföll, þar sem dánarorsök er ókunn, fíkni- efnamál, þá er leit að fólki nokkuð algeng, ég þarf nokkuð oft að hafa upþ á fólki fyrir rannsóknarlögregl- una að jafnvel leita að fólki sem á að fara í afplánun. Nokkur mál hafa verið þar sem innsigli frá hitaveitu hefur verið rofið. Þannig, að á þessu ætti að sjást að verkefnin eru margvísleg." Hver hefur þróunin orðið í uppljóstrun afbrota hér á Skaga? — Er algengara að upp komist um afbrot nú en áður? „Ég hef nú engan tölulegan sam- anburð á því frá undanförnum ár- um en þó held ég að meira sé um áður en útsala ÁTVR opnaði og ég get ekki merkt að áfengisneysla sé meiri í bænum.“ Hver er algengasta refsing í þeim málum sem þú hefur með að gera? „Flest þessi mál eru afgreidd með sektum og það hefur verið ákveðin tilhneiging hjá dómsvakf- inu á liðnum árum að gera refsing- ar vægari, þó hefur verið nokkuð um það að fólk hefur verið að af- Viðar Stefánsson, rannsóknarlögreglumaður. — Mynd: Ámi S. að afbrotamenn náist nú en áður var. Það eru fleiri menn að vinna að þessu nú og með tilkomu rann- sóknarlögreglumanns er betri tími til að sinna þessum málum. Áður voru lögregluþjónar í þessum mál- um á hálfgerðum hlaupum milli annarra skyldustarfa. Svo eru kröfurnar orðnar meiri sem gerðar eru nú til lögreglu en var áður. Megnið af þeim málum sem ég er með í vinnslu hér fara síðan beint til dómara, þannig að kröfurnar eru mun meiri varðandi vinnslu saka- málaenáðurvar." En varðandi þau afbrot sem þú upplýsir hér á Skaga. — Er hópur afbrotamanna á Akranesi stór? „Oft er þetta nú sama fólkið sem stendur í þessu og einstaka sinn- um koma fyrir ný andlit í hópinn og mér virðist sem afbrotaferill þessa fólks standi yfir í svona tvö til þrjú ár?“ Á þetta fólk eitthvað fieira sameiginlegt en afbrotin? „Það er þá helst áfengisneysla. í flestum ef ekki öllum tilfellum eru afbrotin framin undir áhrifum áfengis. Það er alveg sérstakt ef áfengi er ekki með í spilinu, og einu tilfellin sem eru án áfengis eru þá innbrot barna. Nú aldurinn er þessu fólki sameiginlegur, það er flest á aldrinum 15 til 25 ára.“ Hefur þá áfengisneysla og af- brot vegna hennar aukist hér frá því að áfengisverslunin opnaði? „Ég get ekki séð það, þetta er mjög svipaður fjöldi afbrota og var plána vararefsingu, það hefur þá verið dæmt í sekt og afplánun til vara.“ En hvernig fer sú afplánun fram? — Getur fólk afplánað dóm hér á Akranesi? „Nei, afplánun fer þá vanalega fram í hegningarhúsinu í Reykja- vík.“ Eru mörg dæmi um slíkar af- plánanir? „Já, það eru þó nokkur dæmi um það og þá sérstaklega núna á þessu ári. Það hafa fjórir farið í slíka afplánun það sem af er þessu ári. Þetta stafar oft af samansöfn- uðum brotum og sektirnar eru þá orðnar það háar að þetta fólk ræð- ur ekki við þær og verður því að sitjaþettaafsér.“ Þú nefndir fíkniefnamál í upp- hafi þessa spjalls. Er mikið um fíkniefnamál hér? „Ekki er það nú áberandi mikið. Það hafa komið tvö til þrjú mál á ári undanfarin ár.“ Heldurðu þá að lítið sé um fíkni- efnaneyslu hér á Akranesi, eða hefur lítið verið gert í að upplýsa hana? „Ég hef nú tilhneigingu til að halda að lítið sé um þetta hér. Þó er mjög erfitt að eiga við þau mál. Það fólk sem neytir fíkniefna er yfirleitt lítt áberandi og því er mjög erfitt að komastað þessu.“ En ölvun við akstur, eru mörg þessháttar mál nú? „Það er alltaf eitthvað um ölvun- arakstur og núna hef ég fengið til meðferðar 29 mál þar sem grunur er um ölvun við akstur en á öllu árinu í fyrra voru þessi mál 37, þannig að mér sýnist þetta verða svipað í ár. Þó er athyglisvert að á þessu ári er algengara en áður að ölvaðir ökumenn séu búnir að lenda í einhverskonar klandri áður en þeir eru teknir. Búnir að valda árekstri eða jafnvel slysi.“ Þú talaðir áðan um skemmd- arverk sem einn stærsta af- brotaflokkinn. Hver eru helstu skemmdarverkin sem unnin eru? „Mest eru það rúðubrot og skemmdir á bílum. Það er talsvert algengt að unnar séu skemmdir á bílum sem skildir hafa verið eftir opnir. Þá er oftast rótað til í þeim í leit að einhverju fémætu og skemmdir unnar á þeim um leið. Það er alltof algengt hér að bílar séu skildir eftir opnir og ég man ekki eftir neinum þjófnaði úr bíl eða á bíl sem hefur verið læstur." Er þá eitthvað um þjófnaði á bílum? „Já það hefur færst í aukana á liðnum árum og í öllum tilfellum hafa bílarnir verið opnir og sumir jafnvel með svisslyklum í. Ég vil bara hamra á því við fólk að það læsi bílum sínum og ég get nefnt þér dæmi um bíl sem var stolið hér fyrir um ári síðan. Þetta var ekki mjög verðmikill bíll og eigandinn kannske þess vegna haldið að engin myndi stela honum, því hann skyldi bílinn eftir opinn með lyklum í. Bíllinn fannst stuttu síðar lítið skemmdur, en þá vakti það athygli mína að í bílnum voru hljómflutn- ingstæki sem voru jafnvel verð- mætari en bíllin sjálfur. Því miðurer fólk alltaf að bjóða þjófum upp á svona tækifæri með því að skilja bílana eftir opna og svona kæru- leysi jafnast á við að setja sjón- varpið sitt út á stétt áður en farið er að sofa.“ Er minna um þjófnaði úr húsum? „Já, það hefur lítið verið um inbrot hér, þau innbrot sem hafa verið framin eru í verslanir en lítið um þjófnaði úr heimahúsum. Þó vil ég ítreka við fólk að ganga vel frá gluggum og skilja íbúðarhúsnæði ekki eftir opið, hús þurfa að vera mannheld.1' Bæjarblaðið þakkar Viðari Stefánssyni fyrir spjallið og hvetur Skagamenn til að fylgja ábending- um hans og læsa nú bílum sínum og húsum. Hagur heimilanna Hagstætt vöruverð Verslunin Einar Ólafsson Skagabraut 9-11 Sími2015 Skagamenn ! Munið hagstæðu kjörín hjá okkur. Verió velkomin, HÚTEL LOFTLEIDIR FLUGLEIDA S HÓTEL

x

Bæjarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1353

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.