Bæjarblaðið - 10.11.1983, Síða 2
2
Bœjarblodid
„Fjölfatlaðirekki lengur
utangarðs“
— segir Svandís Pétursdóttir
Við Vesturgötu 102 á Akranesi hefur nú risið glæsilegt 340 ferm. hús,
sem í framtíðinni mun verða heimili fjölfatlaðra af Vesturlandi.
En hver er forsagan að byggingu
þessa húss, eða sambýlis eins og
það kallast? Og af hverju rís það
hér á Akranesi. Til að fá nánari
upplýsingar um þetta og annað er
viðkemur byggingu sambýlisins
var leitað á náðir Svandísar Pét-
ursdóttur, en hún á sæti í svo-
nefndri svæðisstjórn Vesturlands,
en sú stjórn fer með málefni
þroskaheftra, öryrkja og fjölfatlaðra
á Vesturlandi.
Sambýiið er nauðsyn.
„Fjölfatlaðir eiga í rauninni
hvergi heima,“ sagði Svandís, en
því til stuðnings benti hún á eftirfar-
andi dæmi: „Það tók Svæðisstjórn
Vesturlands eitt ár, bara að fá svör
við umsóknum um pláss fyrir einn
fjölfatlaðan mann, af Vesturlandi, á
Stór-Reykjavíkursvæðinu. Svörin
voru alls staðar nei. Stjórninni
var aftur á móti bent á að ráðast í
byggingu eigin húss og það hefur
hún nú gert, en bæjarstjórn Akra-
ness bauð svæðisstjórninni lóð
undir byggingu hússins, á ári fatl-
aðra 1981.“
Tilbúið 1984.
Húsið er teiknað af Ólöfu
Guðnýju Valdimarsdóttur, og er
sniðið að þörfum fjölfatlaðra, en
Verkfræði- og teiknistofan sf.
annaðist hönnun þess. í framtíð-
inni eru möguleikar á viðbyggingu
við húsið.
Vonast er til þess að húsið verði
tekið í notkun fyrri hluta árs 1984,
en það veltur á fjárúthlutun úrfram-
kvæmdasjóði öryrkja og þroska-
heftra, en sá sjóður kostar að öllu
leyti byggingu þess.
Frá Skagaver hf.
Vörukynning
Kynnum föstudaginn 11. nóvember
kl. 14-19, nýja tegund af Kjörís
SHERBET
Kynningarverð
Skagaver hf.
Símar 1775—1776
Bæjarbúar athugið
Bæjarfulltrúarnir Jón Sveinsson, Steinunn Sigurðardóttir og
Ingibjörg Pálmadóttir verða til viðtals í Framsóknarhúsinu
við Sunnubraut, mánudaginn 14. nóvember kl. 20.30 til
22.00. Sími 2050.
Tökum við fyrirspurnum og ábendingum frá bæjarbúum.
Bæjarfulltrúarnir
Gott úrval íbúða og
einbýlishúsa
söluskrá liggur fyrir
á skrifstofunni
FASTEIGNA- OG SKIPASALA
VESTURLANDS
Kirkjubraut 11,2. hæð sími 2770.
LÖGFRÆÐISKRIFSTOFA
Jón Sveinsson, hdl.
Nafnnr. 5192-1356.
Árið 1982 var heildarkostnaður
við bygginguna áætlaður 4,6 millj-
ónir króna, en vegna hækkunar
byggingavísitölu mun sú tala, að
öllum líkindum, hækka um 70%.
Aðstaða fyrir sjö manns.
Þetta sambýli fjölfatlaðra á Vest-
urlandi, er fyrsta sinnar tegundar á
fslandi, en á sambýlinu geta 5 verið
til langtímadvalar, en 2 til skamm-
tímadvalar. Miðað er við að vist-
menn þarfnist aðstoðar við dagleg
störf með stöðugri viðveru umsjón-
armanns eða þjálfunarmanns
ásamt næturvörslu.
Hús þetta fullnægir þörfum íbúa
á Vesturlandi í þessum efnum, enn
sem komið er, en nú eru a.m.k. 3 á
Vesturlandi sem búa við algert
neyðarástand og eiga í rauninni
engan samastað, en eru sendir
eins og hægt er til skammtíma-
dvalar á hinar og þessar stofnanir.
Ríkið og vistmenn borga.
Við rekstur sambýlisins er gert
ráð fyrir því að ríkið greiði starfs-
mönnum laun, en fjöldi starfs-
manna skal vera 1-2 á hverja 3
vistmenn. Hinsvegarmunu80% af
örorkubótum og tekjutryggingum
vistmanna ganga til annars rekstr-
arkostnaðar, s.s. matarkaupa og
þess háttar.
Krafa um jafnrétti.
„Þörfin fyrir þetta sambýli er gíf-
urleg, en svo virðist sem fjölfatlaðir
hafi hreinlega gleymst í kerfinu.“
Þetta sagði Svandís þegar hún var
spurð um nauðsyn sambýlisins.
Hér er reyndar um að ræða spurn-
inguna um jafnrétti, en í lögum um
málefni fatlaðra, sem öðlast gildi
um næstu áramót, segir m.a. í 1.
grein. „Markmið þessara laga er
að tryggja fötluðum jafnrétti og
sambærileg lífskjör við aðra þjóð-
félagsþegna og skapa þeim skil-
yrði til þess að lifa eðlilegu lífi og
hasla sér völl í samfélaginu þar
sem þeim vegnar best.“
G.R.
Bœiorblodíd
Fréttablað Akurnesinga — Óháð pólitískum flokkadrætti
Útgefandi: Bæjarblaðið sf. - Pósthólf 106 - 300 Akranes
13. tbl. 5. árg. 10. nóvember 1983
Ritstjórn:
Haraldur Bjarnason, sími 2774 og
Sigþór Eiríksson, sími 1919
Ljósmyndir:
Árni S. Árnason sími 2474 og Dúi Landmark sími 1825
Útlit: Bæjarblaðið
Setning og prentun: Prentverk Akraness hf.
Til sölu
Tveggja hæða steinhús ásamt innréttuðu
risi v/Suðurgötu.
Efri hæðin er 4 herb. íbúð í góðu standi og
tvö innréttuð herbergi eru í risi.
Neðri hæðin er óinnréttuð að mestu en afar
heppileg hvort sem er um íbúðar eða iðn-
aðarhúsnæði að ræða.
Bifreiðageymslur fylgja báðum hæðum.
Upplýsingar á Fasteignasölu
Jóns Sveinssonar
m
Sími2770
í Öndvegis j
=A matur Z_
Úrvals
þjónusta
Veitingahúsið Stillholt
STILLHOLTI 2 - AKRANESI - SiMI (93)2778
SÝNISHORN ÚR SÖLUSKRÁ
Teg. árg. verð Teg. árg. verð Teg. árg. verð
Cortina 71-74 15-40 þ. Audi 100 77 140 þús. BMW 80 325 þús.
Lada 75 25 þús. Nova 78 170 þús. Creddida st. 78 175 þús.
Lancer 75 45 þús. Citroen GS Pall.79 140 þús. Citroen CX Refl.82 420 þús.
Mazda 929 2 d. 75 75 þús. Cortina 77 115 þús. Carade 83 240 þús.
Moskvitch 72 20 þús. Dodge Aspen 77 140 þús. Calant st. 80 230 þús.
Maverik 74 45 þús. Fairmount 79 180 þús. Mazda 626 81 240 þús.
Playmout Vari. 71 50 þús. Galant 1600 79 170 þús. Mazda 929 82 380 þús.
Saab 96 74 55 þús. Lancer1600 80 175 þús. Mazda 323 81 210 þús.
Sunbeam 74 40 þús. Subaru 1600st. 79 130 þús. Saab Gls. 81 365 þús.
Skoda 120 80 65 þús. Saab 99 75 115 þús. CorollaGI. 82 260 þús.
Volvo 145 74 105 þús. Cressida 78 135 þús. Volvo 264 Gl. 75 160 þús.
VW Derby 78 90 þús. Volvo 244 75 130 þús.
Yfir 300 bílar á söluskrá. Vantar ýmsar gerðir bíla svo sem jeppa, diesel bíla, litla bíla og fleira.
Nú er gott að hafa innisal, ekkert innigjald
Opið virka daga kl. 13-21 og laugardaga kl. 10-19
Heimasímar 2384 — 1685
biléS
Smiðjuvöllum 1 — Sími 2622