Bæjarblaðið - 10.11.1983, Qupperneq 5

Bæjarblaðið - 10.11.1983, Qupperneq 5
5 BaJorblotfid Sölumöguleikar og verðsaman- burður. í síðustu tveimur Bæjarblöðum hafa birst greinar um Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar. í 11. tbl. setur Jóhann G. Land- mark fram hugmyndir um frekari sölu á heitu vatni. Sú grein ergóðra gjalda verð, enda skrifuð með opnum huga. Verður nánar vikið að ýmsum atriðum hennar hér á eftir. í ómerktri frétt blaðsins 27. októ- ber um orkuverð er hins vegar farið með rangt mál. Vonandi er þetta ekki gert vísvitandi, en fullyrðing blaðsins um að alls staðar sé mið- að við 80° heitt vatn, þó svo sé alls ekki, bendir að minnsta kosti til mjög óvandaðra vinnubragða. „Molar eru líka brauð.“ Stjórnendur hitaveitunnar hafa vissulega gert sér grein fyrir því að nauðsynlegt sé að auka sölu heits vatns. Miklar umræður hafa farið fram og ýmsir möguleikar kannað- ir. Til að tryggja stöðugt hitastig á Akranesi er rennsli til bæjarins að jafnaði 85-90 l/sek eða 7300-7800 m3/sólarhr. Rennslið er aukið ef vatnið kólnar. Sumarnotkun er 45- 55 l/sek en vetrarnotkun 80-85 I/ sek. Þá renna að vetrarlagi 40-60 l/sek ónotaðir úr Deildartunguhver í Reykjadalsá. Það er því til nóg vatn, sérstaklega yfir sumartím- ann. Það hefur verið mikið rætt um að koma þessu vatni í verð. Þar hefur einnig verið rætt um sölu á lægra verði en gjaldskráin segir til um. Um tíma var graskögglaverk- smiðja mikið til umræðu, en það mál virðist hafa lagst í dvala um sinn. Eina umtalsverða salan á lægra verði er til súgþurrkunar á sumrin. Sumarsölu til annarra nota yrði öruggleg tekið mjög vel. Það hefur hins vegar staðið í stjóminni að vera með misháa gjaldskrá til sambærilegra nota. Það er erfitt að selja einu fyrirtæki vatn á fullri gjaldskrá, en öðru við hliðina á hálfu eða engu gjaldi, eins og J.G.L. stakk upp á. Þessi möguleiki er þó í stöðugri athugun og vel má vera, að hægt verði að leysa þetta vandamál, þegar og ef einhverjir kaupendur bjóðast. Það er því miður rétt, sem J.G.L. bendir á, að stór fyrirtæki í bænum hafa ekki tengst hitaveitunni. Vandinn mun hins vegar frekar vera sá, að hitakerfi fyrirtækjanna hafa ekki hentað fyrir hitaveitu en að verðið hafi staðið í veginum. Viðræður hafa farið fram við stærsta fyrirtækið og standa vonir til, að þess verði ekki langt að bíða að breyting verði hér á. „Stærsti molinn" liggur þó ekki í fyrirtækjunum, heldur þeim mikla fjölda húsa, sem enn hafa ekki tengst hitaveitunni. Samkvæmt ný- legri samantekt hitaveitunnar eru 173 hús á Akranesi, sem ekki hafa tengst hitaveitunni og 63 hús til viðbótar eru einungis með neyslu- vatn. Ef öll þessi hús tækju vatn til upphitunar, þýddi það um 8,5% aukningu á vatnssölu. Það er því mikið hagsmunamál fyrir hitaveit- una og þar með notendur, að sem flest þessara húsa tengist veitunni sem fyrst. Rædd hafa verið ýmis ráð til að auðvelda þessum aðilum að breyta yfir í hitaveitu. Á næst- unni verður þeim sent bréf, þar sem þær hugmyndir verða kynntar nánar. J.G.L. ræðir nokkuð um vatn í „heita potta“, sundlaugar og heimagróðurhús. Við þessa upp- talningu mætti bæta snjóbræðslu- kerfum. Það varð fljótlega Ijóst, eftir að hitaveitan tók til starfa, að margir ætluðu að gera stóra hluti með afrennslisvatninu. Jafnvel þó þeir sömu keyptu lágmarks- skammt af vatni. Vatnsskorturinn kom þá ekki í Ijós fyrr en búið var að byggja gróðurhús eða „pott“, oft hvort tveggja. Það var þá ákveðið að gefa þessum aðilum kost á að kaupa vatn sérstaklega um rennsl- ismæli til að skerpa á hitanum. Ekki var talin ástæða til að búa til sér- stakan gjaldskrárlið fyrir þetta, þar sem talið var að um mjög litla notk- un væri að ræða í flestum tilvikum. Samanburðarfræði Ritstjórar Bæjarblaðsins sætta sig ekki við minna en íslandsmet, þó í verðlagningu sé. Þeir hefðu átt að gæta að sér. Það er ekki alveg sjálfgefið hvernig meta á upphit- AKRANESKAUPSTAÐUR íbúð í verkamannabústað Til sölu er 3. herb. íbúð í Verkamannabústað. Umsóknum skal skilað á bæjarskrifstofuna á eyðublöðum er þar fást, fyrir 1. desember 1983. Stjórn Verkamannabústaða unarkostnað með misheitu vatni eða mismunandi orkugjöfum. í allítarlegri athugun hitaveit- unnar fyrir skömmu, kom í Ijós, að Borgamesingar kaupa talsvert meira vatn í sambærileg hús en Akurnesingar. Eru þeir þá með dýrari hitaveitu en Akurnesingar? Hitunarkostnaður 400 m3 húss 12,71 l/m3 á ári eða 5084 l/ári fyrir 400 m3. Þetta er heldur lægra en reiknitölur Orkustofnunar og Iðn- aðarráðuneytisins, en þarermiðað við 13-13,5 l/m3 á ári. Til viðhalds og rafmagnskostnaðar á olíukynd- ingu eru ætlaðar 2000 kr/ári. Olíu- styrkir, sem verið er að greiða núna, eru 910 kr/ársfjórðung pr. (frekar lítið einbýlishús) er áætlað- mann. Reiknað er með að 4 íbúar ur þessi: séu í 400 m3 húsi. Fyrirtæki Gjaldskrá Fastagjald Vatnshiti Áætl. magn Kostn. á ári HAB 1030kr/m.l. 80”C* 2,25 27.810 Hitaveita Reykjavíkur 12kr/m3 1296 80°C 720 9.936. Hitaveita Seltjamamess 250kr/m.l. 715,20 83°C 2,70 8.815,20 Hitaveita Bessastaða 20,20 kr/m3 1248 60°C 1210 25.690. Orkubú Vestfjarða 0,62 kr/kwh +9,62pkr/m3 32.800 kwh 720 m3 27.262. — óniðurgreidd /kwh +9,62 kr/m3 32.800 kwh 720 m3 42.350. Hitaveita Sauðárkróks 170 kr/m3 1116 66°C 4,0 9.276. Hitaveita Sigulfjarðar 890 kr/m.l. 60-80°C 2,9 30.972. Hitaveita Akureyrar 1000kr/m.l. 80°C 2,25 27.000. Hitaveita Egilsstaða 629 kr/m.l. 50°C 5,0 37.740. Hitaveita Suðumesja 589 kr/m.l. 1288,80 80°C 2,5 18.958,80 Hitaveita Eyra 28,2 kr/m3 2376 60°C 1210 36.498. Hitaveita Rangæinga 772 kr/m.l. 1584 60-70°C 4,0 38.640. * viðmiðunarst. samkv. gjaldskrá. Miðað við olíu sparar hitaveitan notendum 52.000.000 kr. á ári. Samkvæmt þessu er hitaveitan þrátt fyrir allt ódýrasti kosturinn. Við höfum ekki lokið samanburðinum, því eftir er að bera saman gæði þess sem keypt er. Ég leyfi mér að fullyrða, að mun betri og jafnari hiti sé í þeim húsum, sem hituð er með hitaveitu en í rafhituðum eða olíu- kynntum húsum. Fjárfesting í hita- veitu er því ekki einungis spuming um hitun, heldur einnig um þæg- indi. Það verður líka að hafa það hugfast, að með tímanum eign- umst við þetta fyrirtæki. Þeir pen- ingar, sem greiddir eru fyrir hita- veituna hverfa okkur því ekki á sama hátt og olíupeningarnir. Við njótum góðs af þeim seinna, en nokkra biðlund þurfum við að hafa. Ég vona að þessar línur skýri málin eitthvað. Starfsmenn og stjóm hitaveit- Eins og sést á þessari töflu, sem ekki ertæmandi, vantarokkurtölu- vert upp á íslandsmetið. Ég hef hér notað raunverulegar tölur um sölu, þar sem ég hef þekkt þær, annars stuðst við reiknistuðla Orkustofn- unar. Er hitaveitan dýr? Sjálfsagt svara flestir þessu ját- andi. Þegar metið er verð á vöru, bera menn saman verð og gæði sambærilegra hluta. í þessu tilviki er ekki um annan samanburð að ræða en rafmagn eða olíu, því aðrir kostir eru ekki fyrir hendi. í áðurnefndri athugun hitaveit- unnar var skoðuð vatnsnotkun 180 einbýlishúsa víðs vegar um bæinn. Hitaveitufögnin er mikið mannvirki. — Þessi mynd er af hluta röranna og er hún tekin árið 1980. — Mynd: hb. Meðalstærð húsanna var 464 m3 og meðalnotkun 2,42 mínútulítrar eða að meðaltali 1 mínútulítri á hverja 192 m3. í Ijós kom, að notkun fer hlutfallslega minnkandi eftir stærð húsa og að hið hefð- bundna 400 m3 viðmiðunarhús þarf tiltölulega meira vatn. Hér hefur því verið reiknað með að það þyrfti 2,25 mínútulítra. Árið 1977 var könnuð olíunotkun á Akranesi árin 1975 og 1976. Könnunin náði til þriðjungs mark- aðarins. Samkvæmt könnuninni var meðalnotkun einbýlishúsa Orkustofnun og Iðnaðarráðu- neytið reikna með aö 32.800 kwh þurfi til upphitunar 400 m3 húss á ári. Ekki eru til tölur um þetta á Akranesi, en talið er að notkunin sé minni. Hér hefur verið tekið tillit til þess og reiknað með 30.000 kwh á ári. unnar taka með þökkum við nýjum hugmyndum og ábendingum, sem létt gætu okkur reksturinn. Mál- efnaleg umræða eræskileg. Akranesi, 3. nóvember 1983 IngólfurHrólfsson, hitaveitustjóri Verðsamanburðurinn er þá svona: kr/ári Olía 12,71 l/m3 x 400 m3 x 8,8 kr/l + 2000 kr. = 46,739,20 — niðurgr. 46.739,20 - 4 x 4 x 910eðasem hlutfall af óniðurgr. olíu 68,8% = 32.179,20 HAB 2,25 l/mín x 1030 kr/mín.l. x 12 mán. eða 59,5% = 27.810,00 R.A.30.000 kwh x 0,90 kr/kwh +1160 kr/ári eða 60,2% (mælaleiga) =28.160,00

x

Bæjarblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1353

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.