Bæjarblaðið - 10.11.1983, Síða 6
6
Bœjorblodid
Flestir eiga erindiá
tölvunámskeið
— segir Guðmundur R. Guðmundsson, tölvukennari
Tölvur eru mikið í sviðsljósinu
þessa dagana og hefur áhugi fyrir
þeim aukist enn við sýningu tölvu-
þáttanna bresku í sjónvarpinu. Til
að kynnast þessu tæki framtíðar-
innar betur, skellti ég mér á tölvu-
námskeið, sem fyrirtækið Tölvu-
mennt hélt hér fyrir skömmu. Það
sem helst vakti athygli mína á
námskeiðinu var hve gífurlega víða
er hægt að koma notkun tölvu við,
og ekki síður hve þróunin hefur
orðið til þess að lækka verð þess-
ara tækja og gera þau þar með
útbreiddari.
Kennari á þessu námskeiði var
Guðmundur Ragnar Guðmunds-
son, en hann hefur ferðast víða um
land og kennt á þessi undraverk-
færi. Að námskeiðinu loknu
spjallaði ég lítillega við hann.
Hvert er markmiðið með svona
námskeiði, Guðmundur?
— Námskeiðið sem þú hefur
verið á er svokallað grunnnám-
skeið. Aðalmarkmiðin með grunn-
námskeiðinu eru að sýna hvað
tölva er og hvað hún getur og leyfa
fólki að nota tölvu svolítið. Þátt-
takendur kynnast kostum tölvunn-
ar og takmörkum. Við ræðum upp-
byggingu tölvunnar og um hinar
ýmsu tölvur og forrit sem hægt er
að fá. Mikilvægur þáttur er að fólk
fái sjálft að skrifa inn skipanir til
tölvunnar. Það er gert til að yfirstíga
vissa feimni sem fólk hefur gagn-
vart tölvum. Útskýrð eru helstu
hugtök og orð sem koma fyrir á
tölvusviðinu.
Eru það einhverjir sérstakir
hópar fólks, öðrum fremur, sem
koma á námskeið hjá þér?
— Þetta er ágæt spurning. Ég
hef oft velt henni fyrir mér. Flestir
eiga erindi á svona námskeið og
eitthvað hvetur fólk til að fara á þau.
Þátttakendur eru á öllum aldri og úr
öllum starfsgreinum. Það koma
einmitt margir vinnu sinnar vegna,
eða um helmingur. Fyrirtæki senda
starfsmenn sína og sumir koma
sjálfir til að bæta starfhæfni sína.
Margir koma til að geta betur fylgst
með þeirri öru framþróun sem er á
þessu sviði.
Hvert stefnir þróunin í tölvumál-
um?
— Þessu er erfitt að svara.
Námskeiðið fjallar reyndar um
þetta að vissu marki. Tölvan er
tvímælalaust öflugasta verkfæri
sem maðurinn hefur skapað. Við
eigum eftir að nota tölvur mjög
víða. Bæði við vinnu okkar og á
heimilum. Hún kemur til með að
breyta þjóðfélagi okkar og lífi. Það
er mikilvægt að við tökum sem flest
þátt í stefnumótun á þessu sviði.
Nú er þitt starf að kenna á og
vinna við tölvur. Áttu sjálfur slík
tæki?
— Já ég á reyndar tvær, eina
heimilistölvu og eina stærri sem ég
nota við ritvinnslu, bæði í stað rit-
vélar og við lausn verkefna sem ég
tek að mér.
Geta Skagamenn átt von á fleiri
námskeiðum hér á Akranesi?
— Hér á Akranesi hafa verið
haldin tvennskonar námskeið.
Unglinganámskeið fyrir u.þ.b.
12-15 ára og grunnnámskeið fyrir
fullorðna. Fyrirhugað er að halda
fleiri námskeið í nóvember, og ef
næg þátttaka fæst þá byrjum við
það næsta á mánudaginn. Okkur
langar einnig að halda framhalds-
námskeið en ekki er eins víst að
næg þátttaka fáist á þau strax.
Bæjarblaðið þakkar Guðmundi
fyrir spjallið og hvetur Akurnesinga
til að kynna sér þessi mál en allar
upplýsingar um tölvunámskeiðin
veitir Ásgeir Kristjánsson í síma
Rjúpnaveiðimenn
Til sölu er tveggja ára gömul haglabyssa, Remington 1100
nr. 12, þriggjatommu magnum.
Upplýsingar í síma 97-4266
Skagaleikflokkurinn sýnir
Eðlisfræðingana
eftir Friedrich Durenmatt
Leikstjóri Kjartan Ragnarsson
Sýningar:
Föstudag 11. nóv. kl. 20.30
Laugardag 12. nóv. kl. 15.00
Miðasala á föstudag frá kl. 19.00 og á
laugardag frá kl. 13.00
Skagaleikflokkurinn
Snyrtivörukynning
Komið og fáið leiðbeiningar um val og notkun
JEAN d’avéze snyrtivörunar hjá Sigrúnu
Sævarsdóttur snyrtisérfræðingi, föstudaginn
11. nóv. frá kl. 11-17.
OPIÐ í HÁDEGINU
KAPP
Kuldafatnaður og börn og fullorðna
Mikið úrval af skyrtum og peysum
Versl. Bjarg