Bæjarblaðið - 26.01.1984, Blaðsíða 1
1. tbl. — 26. janúar 1984— 6. árg.
Fréttablað Akurnesinga — Óháð pólitískum flokkadrætti
31 nemandi brautskráðist frá
Fjölbrautaskólanum í desember
Skólaslit Fjölbrautaskólans á
Akranesi á haustönn 1983 fóru
fram þriðjudaginn 20. desember á
sal skólans. Hefur þessi lokaathöfn
skólastarfs á haustönn jafnan verið
nefnd Þorláksvaka, til heiðurs Þor-
láki biskupi hinum helga. Á vökunni
nú söng skólakórinn nokkur lög og
flutt var dagskrá er byggðist á lýs-
ingum á kjörum fólks á íslandi fyrr á
öldum.
Skólameistari flutti annál skóla-
starfs á liðinni önn, en alls stund-
uðu 510 nemendur framhaldsnám
á önninni, 93 nemendur voru í 9.
bekk og 100 nemendur í öldunga-
deild og meistaraskóla.
Alls lauk 31 nemandi prófum frá
skólanum að þessu sinni.
Af iðn- og verknámsbrautum:
Erling Bergþórsson, Guðjón
Gunnarsson, Hannes Fr. Sigurðs-
son, Heimir Björgvinsson, Jón E.
Guðnason, Jón Sigurðsson, Ketill
Már Björnsson, Magni Ragnars-
son, Sigurbjörn Guðmundsson,
Sigurður Karl Ragnarsson og Þór
Arnar Gunnarsson.
Lokaprófi af tæknifræðibraut
luku: Ingólfur Örn Þorbjörnsson,
Smári Guðjónsson og Unnsteinn
Einar Jónsson.
Bóklegu námi sjúkraliða lauk
Sædís G. Þorleifsdóttirog almennu
verslunarprófi luku Anna Kristjáns-
dóttir, Elín Guðrún Gunnlaugsdóttir
og Halldór Jónasson. Af uppeldis-
braut 2 útskrifaðist Jónína Björg
Magnúsdóttir.
Alls luku 13 nemendur stúdents-
prófi frá skólanum að þessu sinni.
Stúdentsprófi af heilbrigðissviði
luku Elísabet Svansdóttir, Helga
Ingunn Sturlaugsdóttir og Margrét
Indriðadóttir. Stúdentsprófi af
raungreinasviði luku Gunnar
Mýrdal Einarsson og Ævar Örn
Jósefsson. Stúdentsprófi af sam-
félagssviði luku Hörður Rafnsson,
Kristján Helgason, Ólöf Samúels-
dóttir og Steinunn Eva Þórðar-
dóttir. Stúdentsprófi af viðskipta-
sviði luku Adolf Friðriksson,
Magnús D. Brandsson, Rósa
Jónsdóttirog Þorgeir Jósefsson.
Veitt voru verðlaun fyrir góðan
námsárangur í einstökum
greinum, svo og verðlaun fyrir
jafnbestan árangur á lokaönn í
stúdentsprófi, en þau verðlaun
hlaut Gunnar Mýrdal Einarsson.
Adolf Friðriksson nýstúdent
ávarpaði samkomuna fyrir hönd
Veðurguðirnir í
ham í byrjun
ársins
Fiskverkunarhús Birgirs Jónssonar var eitt þeirra sem sjórinn
lagði í rúst við Ægisbraut. — Mynd: hb.
Veðurguðirnir hafa heldur
betur látið okkur Skagamenn
vita af sér þá fáu daga sem
liðnir eru af árinu 1984. Verst
urðum við þó fyrir barðinu á
þeim er sjór gekk á land að
morgni 5. janúar sl. en þá varð
gífurlegt tjón svo að segja með-
fram allri strandlengju Akra-
ness en mest þó við Ægisbraut
og á Breiðinni.
Enn mun margt óljóst í sam-
bandi við tryggingabætur til
þeirra sem fyrir tjóni urðu í
þessu áhlaupi sjávarins og
vafalaust er erfitt að meta tjónið
til fulls, en Ijóst má vera að
gífurlegt átak þarf að gera til að
verja mannvirki við sjávarsíð-
una ágangi sjávar.
Síðastliðinn hálfan mánuð
hefur svo snjóað svo til látlaust
og fer það að vera fastur liður í
byrjun árs hér að allt fari á kaf í
snjó. Þrátt fyrir þæfingsfærð á
götum og mikla hálku hefur lítið
verið um umferðaróhöpp, að-
eins ,,smáhnoð“ eins og einn
lögregluþjónn orðaði það.
Nýútskrifaðir nemendur Fjölbrautaskólans. — Mynd: Dúi
útskriftarnema og færði skólanum
árnaðaróskir. Því næst tók Stein-
grímur Bragason kennari til máls
og óskaði skólameistara Ólafi
Ásgeirssyni alls hins besta í nýju
starfi er hann hverfur nú til um ára-
mót og mun sinna í 8 mánaða leyfi
frá störfum við Fjölbautaskólann
á Akranesi.
Að lokum ávarpaði skólameist-
ari hina nýútskrifuðu nemendur og
sagði skóla slitið á haustönn 1983.
Lauk vökunni með því að skólakór-
inn undir stjórn Jensínu Waage gaf
tóninn fyrir viðstadda er tóku undir í
nokkrum lögum er féllu vel að tilefni
dagsins.
Brotist inn í Skagaver
Innbrotsþjófurinn plástraði sig á staðnum
Aðfararnótt laugardagsins 21.
þessa mánaðar var brotist inn í
verslun Skagavers á Garðagrund-
um. Rúða í útidyrahurð verslunar-
innar var brotin og virðist sem inn-
brotsþjófurinn hafi skorið sig á
hendi við verknaðinn þar sem
blóðblettir voru við afgreiðsluborð.
Þjófurinn virðist jafnframt hafa búið
um sár sín á staðnum því opinn
plásturspakki fannst í versluninni.
Skemmdir voru unnar á pen-
ingakassa og talsverðu magni af
vindlum og sígarettum var stolið.
Aðkoman á innbrotsstað var Ijót,
skósvertu hafði verið klínt á veggi
og ýmsum vörum dreift um gólfin.
Poki með hluta af þýfinu fannst I
nágrenni við verslunina og annar
poki með þýfi fannst á Langasandi
en samt sem áður er mikið magn
af sígarettum og vindlum enn
ófundið.
Þjófurinn virðist hafa haft góðan
tíma til að athafna sig, hefur fengið
sér gosdrykk og súkkulaðistaur í
rólegheitum og skrifaði svo þakkir
á vegginn með skósvertu með hálf
vafasamri ensku.
Vegsummerki í Skagaveri voru
ekki ólík þeim sem voru er brotist
var inn í Stjörnukaffi fyrr í vetur og
því telur lögreglan ekki ólíklegt að
hér sé um sama skúrk að ræða og
þar. Það er því full ástæða til að
hvetja bæjarbúa til að láta lögregl-
una vita ef þeir telja sig hafa ein-
hverjar upplýsingar varðandi mál
þessi, en skúrkurinn ætti að vera
vel birgur af sígarettum og vindlum
og líklega hruflaður á hendi.
„Rakettur fyrir aurinn“
Talsvert hefur verið um afbrot
hér á Skaga að undanförnu. Mikið
hefur verið um innbrot í bíla, ef inn-
brot geta kallast, þar sem bílarnir
hafa allir verið opnir. Til öBmis var
farið inn í einn bíl þar sem hann
stóð inn í bílskúr og tilraun gerð til
að stela honum. í öllum tilvikum
hafa skemmdir verið unnar á bíl-
unum. Öll eru þessi afbrot enn
óupplýst og sama er að segja um
innbrotið í Stjörnukaffi á dögunum
og innbrotstilraunina í áfengis-
verslunina.
Þá var á dögunum stolið fimmtíu
þúsund krónum úr bíl og fannst
það þýfi að mestu leyti bak við hús
á niðurskaganum fyrir skömmu.
Það var hópur smástráka sem fann
þýfið og að sögn lögreglumanna
kom upþ óeining í hópnum er þýfið
fannst. Vildu strákarnir ýmist skila
peningunum á lögreglustöðinaeða
kaupa rakettur fyrir aurinn. Það
síðarnefnda mun svo hafa orðið úr
og vakti það athygli söluturns-
eiganda við Skólabraut ertveir litlir
guttar komu með 500 krónu seðla
og hugðust kaupa rakettur. Hann
mun hafa gengið á snáða og spurt
þá hvaðan þeir hefðu peningana
og voru svörin fyrst að mamma
hefði gefið þá. Þegar kaupmaður-
inn sagðist þá ætla að hringja í
mömmu þeirra, þá sögðu þeir að
,,fyllibytta“ hefði gefið þeim pen-
inginn. Þessu trúði kaupmaðurinn
mátulega og fór með stráka á lög-
reglustöðina þar sem þeir Ijóstruðu
uþþ leyndarmálinu um fjársjóðinn.
Þjófurinn hefur hins vegar ekki
fundist enn, en strákarnir sáu til
þess að mest allt þýfið komst í
hendur réttra eigenda.
Næsta Bæjarblað kemur út 9. febrúar
Auglýsingasímar 1919 og 2774