Fréttablaðið


Fréttablaðið - 25.07.2019, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 25.07.2019, Qupperneq 4
Að auki var í forhönnun skoðað að bora undir Elliðaárnar og Reykjanesbrautina, en sökum mikillar áhættu í slíku verki var fallið frá því auk þess sem það var langsamlega dýrasti kostur- inn. Ólöf Snæhólm Baldursdóttir, upplýsingastjóri Veitna NÝR RAM 3500 UMBOÐSAÐILI RAM TRUCKS Á ÍSLANDI • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433 WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16 LOKAÐ LAUGARDAGA FRÁ 8. JÚNÍ TIL OG MEÐ 3. ÁGÚST UMBOÐSAÐILI RAM Á ÍSLANDI NÝTT GLÆSILEGT ÚTLIT. NÝJAR ÚTFÆRSLUR OG FJÖLMARGAR TÆKNINÝJUNGAR Í BOÐI. EIGUM TIL Í CREW CAB, BIG HORN, LARAMIE, SPORT OG LIMITED ÚTFÆRSLUR TIL AFGREIÐSLU STRAX. MEGA CAB Í LARAMIE OG LIMITED ÚTFÆRSLUM EINNIG. RAM 3500 VERÐ FRÁ: 6.987.745 KR. ÁN VSK. RAM 3500 VERÐ FRÁ: 8.640.000 KR. M/VSK. ramisland.is CREW CAB Au ka bú na ðu r á m yn d 35 ” d ek k BANDARÍKIN Donald Trump, for­ seti Bandaríkjanna, fór með rangt mál þegar hann sagði að rannsókn Roberts Mueller, sérstaks saksókn­ ara, á Rússamálinu hafi leitt í ljós að forsetinn væri alsaklaus af ásök­ unum um að hann hafi hindrað framgang réttvísinnar. Þetta sagði Mueller sjálfur þegar hann kom fyrir dómsmálanefnd fulltrúa­ deildar þingsins í gær. Ekki var ákveðið að ákæra Trump fyrir nokkurn glæp vegna rann­ sóknarinnar. Er það vegna reglna dómsmálaráðuneytisins um að ekki skuli ákæra forseta Bandaríkjanna. Er Jerry Nadler, Demókrati og for­ maður nefndarinnar, spurði Muell­ er hvort hægt væri að ákæra Trump eftir að hann lætur af embætti sagði Mueller svo vera. Trump svaraði fyrir sig á Twitt­ er. „Þannig að Demókratar mega, ólöglega, skálda upp glæp og gera mjög saklausum forseta upp sakir og þegar hann svarar fyrir sig gegn þessari ólöglegu árás á ríkið er hann sakaður um að hindra framgang réttvísinnar? Rangt!“ tísti Trump. Hann hélt áfram og gagnrýndi að Mueller hafi ekki sérstaklega rann­ sakað Hillary Clinton, keppinaut Trumps árið 2016, James Comey, fyrrverandi alríkislögreglustjóra, Mueller sjálfan og f leiri aðila. „Hvers vegna rannsakaði Robert Mueller ekki hvernig og hvers vegna hin spillta Hillary Clinton eyddi 33.000 tölvupóstum EFTIR að bandaríska þingið STEFNDI henni? Hún hlýtur að vera með FRÁBÆRA lögmenn!“ – þea Trump tísti um óánægju með vitnisburð Muellers Donald Trump, forseti Bandaríkj- anna. NORDICPHOTOS/AFP 1. Gunnar Víking: Lík kistan og steinninn bíða í bíl skúrnum 2 „Að vera transkona og fara í sund er eigin lega ekkert grín“ 3 Vest fj arð a laust Ís lands k ort vek ur hneyksl an 4 Georg fékk fyrstur að hitta Archie 5 Vísundur þeytti 9 ára stelpu upp í loft ORKUMÁL „Við erum ekki bara að endurnýja lagnir heldur líka stækka þær í þessari framkvæmd,“ segir Ólöf Snæhólm Baldursdóttir, upplýsingastjóri Veitna, um endur­ nýjun lagna frá Reykjanesbraut við Sprengisand í gegnum Elliðaárdal og upp með Rafstöðvarvegi. „Um er að ræða fráveitulagnir, kaldavatnslagnir, hitaveitulagnir, raflagnir ásamt fjarskiptalögnum Gagnaveitu Reykjavíkur og Mílu. Kostnaðaráætlun heildarverksins er um 1,5 milljarðar en inni í þeirri tölu er hlutur Reykjavíkurborgar, Gagnaveitu Reykjavíkur og Mílu,“ segir Ólöf. Athygli hefur vakið að fjarlægja á hitaveitustokka sem liggja þvert yfir Elliðaárdal neðanverðan og leggja nýjar lagnir neðanjarðar í staðinn. „Skoðaðar voru nokkrar lausnir fyrir þverun Elliðaáa fyrir allar veitulagnir,“ segir Ólöf. Aðspurð um kostnaðinn við þá lausn sem valin hefur verið yfir Elliðaárdal, það er lagning neðan­ jarðar með tveimur hituveitulögn­ um, segir Ólöf hann áætlaðan 410 milljónir króna. Lagnir ofanjarðar á steyptum undirstöðum yfir Ell­ iðaár hefðu kostað 450 milljónir og lagning ofanjarðar í nýjum steypt­ um stokki yfir Elliðaár myndi kosta 570 milljónir króna. „Að auki var í forhönnun skoð­ að að bora undir Elliðaárnar og Reykjanesbrautina, en sökum mik­ illar áhættu í slíku verki var fallið frá því auk þess sem það var lang­ samlega dýrasti kosturinn. Annar ókostur við slíka framkvæmd er að við borun þurfa lagnir að vera á miklu dýpi sem gerir alla viðhalds­ vinnu afar erfiða,“ útskýrir Ólöf. Ekki er eingöngu verið að endur­ nýja lagnir heldur líka stækka þær. „Einnig er verið að bæta við kalda­ vatnslögnum og rafstrengjum. Því eru núverandi stokkar of litlir fyrir endurnýjaðar og nýjar lagnir,“ segir Ólöf. Enn fremur bendir Ólöf á að ef steypa ætti nýja stokka þyrfti sú vinna að fara fram yfir sumartím­ ann. „Það getur haft mikil áhrif á lífríki Elliðaánna en áhersla er lögð á að raska því sem allra minnst við framkvæmdirnar. Eru þær tíma­ settar til að svo megi verða,“ segir hún. Lagnirnar eiga að ganga undir kvíslar Elliðaánna og verður það verk unnið að vetrarlagi svo það trufli ekki göngur laxfiska. Stokkarnir yfir Elliðaárdal eiga sér sögu sem nær áttatíu ár aftur í tímann og hafa þeir unnið sér sess sem samönguæð þeirra sem ganga, hlaupa og hjóla í dalnum. „Fyrsti stokkurinn var lagður þegar Reykjaæð var lögð úr Mosfellssveit á stríðsárunum. Samkvæmt mínum heimildum var það unnið á árunum 1939 til 1943,“ segir Ólöf sem kveðst ekki hafa nákvæmar upplýsingar um það hvenær á því tímabili stokk­ urinn yfir Elliðaárnar var byggður. gar@frettabladid.is Lögn undir dal á 410 milljónir Veitur leggja nýja lögn neðanjarðar, undir Elliðaárdal og kvíslar Elliðaánna. Ódýrasti kosturinn segir upplýsingastjóri Veitna. Núverandi stokkar eru of litlir til að unnt sé að endurnýja lagnir í þeim. Hitaveitustokkur var fyrst lagður yfir Elliðaárdal í framkvæmdum á árunum 1939 til 1943. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI BRETLAND Boris Johnson tók í gær formlega við embætti forsætisráð­ herra Bretlands eftir að hann sótti fund drottningar. Er valdatíð Ther­ esu May þar með lokið. „Við í þessari ríkisstjórn munum nú vinna hörðum höndum að því að veita landsmönnum þá forystu sem þeir eiga skilið,“ sagði Johnson á tröppum Downing­strætis 10 í gær. Bætti því við að nú myndi vinnan hefjast fyrir alvöru. Hinn nýi forsætisráðherra á ein­ mitt erfitt verkefni fyrir höndum enda þarf hann að sigla heim útgöngu Bretlands úr Evrópusam­ bandinu. Hann hefur heitið því að Bretar haldi í samþykktan útgöngu­ dag, 31. október, og fresti honum ekki eins og áður hefur verið gert. Jafnvel þótt það þýði samningslausa útgöngu. Þetta þykir andstæðingum samn­ ingslausrar útgöngu ekki gott. Jo Swinson, Evrópusinni og nýr leiðtogi Frjálslyndra demókrata, sagði til að mynda í gær að stefna Johnsons væri „afskaplega óábyrg“. May þakkaði fyrir sig áður en hún lét af embætti. Sagði undanfarin ár hafa verið mesta heiður sem henni hefur verið sýndur. „Takk fyrir að treysta mér og gefa mér þetta tæki­ færi.“ – þea Boris tekinn við Forsætisráðherra og drottning í Buckingham-höll. NORDICPHOTOS/AFP 2 5 . J Ú L Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 5 -0 7 -2 0 1 9 0 4 :2 3 F B 0 4 0 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 7 8 -C 9 2 8 2 3 7 8 -C 7 E C 2 3 7 8 -C 6 B 0 2 3 7 8 -C 5 7 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 0 s _ 2 4 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.