Fréttablaðið - 25.07.2019, Page 12
Tómas
Guðbjartsson
hjartaskurð-
læknir og
náttúruunnandi
og Ólafur Már
Björnsson
augnlæknir og
ljósmyndari
Víknaslóðir á Norðausturlandi eru tví-mælalaust á meðal skemmtilegustu göngusvæða á Íslandi. Þarna eru sérlega litrík fjöll sem tróna á milli iðgrænna og djúpra fjarða. Einn af þeim er Loð-mundarfjörður sem er með afskekktustu
fjörðum á Íslandi þótt þangað sé hægt sé komast
akandi á sumrin. Í austanátt getur verið þokusælt í Loð-
mundarfirði en í sunnan- og vestanátt er veðrið óvíða
betra. Fyrir botni fjarðarins norðan megin eru Loð-
mundarskriður sem einnig kallast Stakkahlíðarhraun.
Þótt útlitið geti minnt á hraun eru þetta menjar eftir
eitt stærsta berghlaup sem orðið hefur á Íslandi. Undir
fjallinu Skúmhattarbrík losnaði risastór bergfylla sem
steyptist niður næstum 6 km leið að botni fjarðarins.
Þetta voru engar smá náttúruhamfarir því flatarmál
berghlaupsins er 8 km2 og fallhæðin allt að 700 m. Til
að sjá Loðmundarskriður vel verður að aka á jeppa eða
ganga upp norðurhlíðar Loðmundarfjarðar. Þar opnast
risastór fjallasalur litríkra líparítfjalla þar sem Skúm-
hattardalsbrík og Bungufell eru í aðalhlutverkum. Inn
á milli óteljandi hóla leynast síðan tjarnir og lækir með
kafloðnum bökkum. Flóran er afar fjölbreytt líkt og
fuglalíf í kringum tjarnirnar. Þarna finnst perlusteinn
sem er sjaldséð glerkennt afbrigði af líparíti en við
hitun þenst vatnið í honum út og myndar glerfroðu
sem svipar til vikurs og er stundum kallað perlít. Það er
hægt að nota sem einangrunarefni í hús en í kringum
1960 var þetta svæði rannsakað með það fyrir augum
að opna þarna námur og flytja út perlustein. Sem betur
fer varð ekki af þeim áformum, enda Loðmundarskrið-
ur einhver helsta náttúruperla Austurlands. Ef vel er
að gáð sjást þarna enn menjar af gömlum rannsóknar-
vegum sem vindar og vatn rembast við að útmá. Upp af
Loðmundarskriðum er frábær gönguleið yfir í Borgar-
fjörð eystri sem kennd er við Kækjuskörð.
Óhætt er að mæla með þessari göngu en efst
býðst ógleymanlegt útsýni yfir Víknaslóðir
og á leiðinni niður sést í Skúmhött og
sjálfan Hvítserk. Ganga úr Loðmundar-
firði yfir Kækjuskörð tekur daginn
en sprækt göngufólk getur hæglega
gengið út Borgarfjörð eystri, alla leið
að Bakkagerði.
Náttúruperla
sem ekki varð
námusvæði
Í Loðmundarskriðum er aragrúi af tjörnum og mikill gróður og fuglalíf.
Tjaldað við
við tjörn í
Loðmund-
arskriðum.
Skúmhatt-
ardalsbrík í
baksýn.
Eyrarrós er víða í Loðmundarskriðum. Hér er horft í átt að Kækjuskörðum. MYND/TG
TILVERAN
2 5 . J Ú L Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
5
-0
7
-2
0
1
9
0
4
:2
3
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
7
8
-B
F
4
8
2
3
7
8
-B
E
0
C
2
3
7
8
-B
C
D
0
2
3
7
8
-B
B
9
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
0
s
_
2
4
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K