Víkurfréttir


Víkurfréttir - 24.04.2019, Side 1

Víkurfréttir - 24.04.2019, Side 1
Lögreglan á Suðurnesjum hefur á undanförnum dögum tekið á annan tug ökumanna úr umferð vegna gruns um vímuefnaakstur. Einn þeirra var jafnframt með útsláanlega kylfu í bifreið sinni og telst það vera brot á vopnalögum. Annar, sem ók að auki réttindalaus, var ekki fyrr kominn úr sýna- töku á lögreglustöð en til hans sást á Reykja- nesbraut þar sem hann var að kasta grjóti á veginn. Hann var því vistaður á lögreglustöð. Háhraða internet og hágæða sjónvarp EKKERT LÍNUGJALD, FRÍR ROUTER ENGIR AUKAREIKNINGAR Kapalvæðing • Hafnargata 21 • 421 4688 • kv@kv.is www.kv.is • www.facebook.com/kapalvaeding frá 6.890 kr/mán. Hámark súkkulaði 250 ml Opnunartími Hringbraut: Allan sólarhringinn Opnunartími Tjarnarbraut: 08.00 - 23.30 Virka daga 09.00 - 23.30 Helgar Opnum snemma lokum seint Apríltilboð - Fljótlegt og gott 28% 499 kr/pk áður 699 kr 63% 99 kr/stk áður 269 kr 145 kr/stk áður 279 kr 48% Coca Cola Zero 0,5 L Dagens frosnir réttir 4 tegundir Júlíus Friðriksson prófessor við South Carolina háskóla er gestur fyrsta þáttar af Suður með sjó. Bati eftir heilablóðfall er risastór rannsókn sem Júlíus vinnur að en fjórði hver einstaklingur á Vesturlöndum sem nær fullum lífaldri fær heilablóðfall á lífsleiðinni. Keflvíkingurinn Júlíus Friðrik Friðriksson, prófessor við háskólann í Suður- Karólínu í Bandaríkjunum, hefur stýrt rannsóknum á bata og endurhæfingu eftir heilablóðfall en niðurstaða úr nýlegri rannsókn á vegum Júlíusar birtist í hinu virta læknariti New England Journal of Medicine, þar segir að fjórði hver einstaklingur sem nær fullorðinsaldri fái heilablóðfall. Júlíus segir að helstu ástæður fyrir því að fólk fái heilablóðfall séu genatengdar en einnig lífsstílstengdar. Mikilvægt sé að stunda hreyfingu, borða hollan mat og reykja ekki. Heilablóðfall er helsta ástæða fyrir fötlun hjá fólki eftir miðjan aldur. Júlí- us og hans fólk hefur lagt mikla vinnu í rannsóknir við að finna hvernig bæta megi heilsu fólks sem hefur fengið heilablóðfall. Í rannsóknum hafa verið gerðar tilraunir með að hleypa lágum rafstraum á heilavefinn og niður- stöður úr þeim hafa verið jákvæðar. „Þetta snýst um að bæta endurhæf- – Eftirtektarverður árangur hefur náðst með nýrri aðferð í endurhæfingu Keflvíkingurinn Júlíus Friðrik Friðriksson, prófessor við S-Karólínu háskóla í Banda- ríkjunum, stýrir milljarða rannsóknum: Fjórði hver fær heilablóðfall Rafn Markús ráðinn skólastjóri Heiðarskóla ingu fólks. Flestir sjúklinga eru búnir að reyna aðra endurhæfingu. Það er ekkert hægt að gera við skemmd á heila en það er hægt að virkja heil- brigða hluta hans betur. Við hleypum lágum straumi á heilavefinn, aðeins um eitt milliamper, og það hefur sýnt góða niðurstöðu. Með þessum raf- magnsskotum vonumst við að geta tvöfaldað batann. Það skiptir mjög miklu máli því algengar afleiðingar af heilaskemmdum koma til dæmis við tal og skilning. Við erum þannig að reyna að virkja aðrar stöðvar í heilanum til að breytast og vaxa, til að ná sem mestum bata fyrir einstaklinginn.“ Þegar Júlíus kom fyrst til starfa hjá háskólanum í Suður-Karólínu byrjaði hann með þrjá nemendur á rann- sóknarstofu sinni. Nú eru fimmtíu manns að vinna við rannsóknir undir stjórn Júlíusar. Hans deild hefur fengið marga styrki frá Heilbrigðis- stofnun Bandaríkjanna, fyrir á þriðja milljarð íslenskra króna frá árinu 2001. Rannsóknirnar eru oft unnar í samvinnu við aðra háskóla en nýlega fékk deild skólans sem Júlíus stýrir styrk fyrir um 11 milljónir dollara eða um 1,3 milljarð króna. „Það er ákaflega gaman og gefandi að finna eitthvað nýtt til að hjálpa fólki,“ segir Júlíus sem lék m.a. körfubolta með Keflavík á yngri árum en hann fór í háskólanám í Bandaríkjunum eftir nám í Fjölbrautaskóla Suður- nesja. Sú námsdvöl hefur ílengst því hann hefur ekki komið heim síðan nema í heimsóknir en Júlíus á eigin- konu og börn og búa þau í S-Karólínu. Júlíus segir nánar frá þessum málum og fleirum í nýrri eða annarri sjón- varpsþáttaröð Víkurfrétta sem heitir Suður með sjó og er til viðbótar við Suðurnesjamagasín. Í fyrsta þætt- inum sem verður sunnudagskvöldið 28. apríl kl. 20:30 verður viðtal við Júlíus. Fleiri þættir munu fylgja í kjöl- farið þar sem rætt verður við Suður- nesjamenn sem eru að gera eða hafa verið að gera skemmtilega hluti. Rafn Markús Vil- bergsson hefur verið ráðinn skóla- stjóri Heiðarskóla. Rafn Markús lauk námi til B.Sc. gráðu í íþrótta- fræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2008 og M.Ed. gráðu í stjórn- unarfræði menntastofnana frá Háskóla Íslands árið 2014. Rafn Markús hefur starfað í Njarð- víkurskóla frá árinu 2009 við góðan orðstír og verið í stjórnunarteymi skólans undanfarin fimm ár, bæði sem verkefnastjóri og deildarstjóri. Þrír umsækjendur voru um starfið en auk Rafns sóttu þau Ásdís Hrönn Viðarsdóttir og Þormóður Logi Björnsson um skólastjórastarfið í Heiðarskóla. Rafn hefur auk skólastarfa sinna verið þjálfari 1. deildarliðs Njarð- víkur í knattspyrnu. Margir í vímu og einn með kylfu í bílnum Júlíus Friðrik Friðriksson, prófessor við S-Karólínu háskóla í Bandaríkjunum. Júlíus er fyrsti gestur okkar hjá Víkurfréttum í nýrri sjónvarpsþáttaröð, Suður með sjó, sem sýnd verður á sunnudagskvöldum kl. 20:30 á sjónvarpsstöðinni Hringbraut. miðvikudagur 24. apríl 2019 // 17. tbl. // 40. árg. S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M ■ A Ð A L S Í M A N Ú M E R 4 2 1 0 0 0 0 ■ A U G L Ý S I N G A S Í M I N N 4 2 1 0 0 0 1 ■ F R É T T A S Í M I N N 4 2 1 0 0 0 2

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.