Víkurfréttir


Víkurfréttir - 24.04.2019, Qupperneq 4

Víkurfréttir - 24.04.2019, Qupperneq 4
Jóhann Friðrik Friðriksson hefur verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri Keilis – miðstöðvar vísinda, fræða og atvinnulífs, í stað Hjálmars Árna- sonar sem lætur af störfum í sumar eftir tólf ára starf. Jóhann, sem nú starfar sem fagstjóri sálfélags­ legra þátta hjá Vinnu­ eftirlitinu, lauk BA prófi í heilbrigðisvísindum og meistaraprófi í lýð­ heilsuvísindum frá Arnold School of Public Health við University of South Carolina. Jóhann starfaði áður sem stjórnandi klínískra og akademískra rann­ sóknateyma og sem vís­ indamaður við taugalæknadeild og lýðheilsudeild sama skóla. Hann hefur einnig starfað sem verkefna­ stjóri við vísindastofn­ anir í Bandaríkjunum og unnið að sjálfstæðum ráðgjafaverkefnum þar og hér heima. Jóhann hefur haldið fjölda námskeiða og fyrirlestra á sínu fag­ sviði. Hann er búsettur í Reykjanesbæ ásamt fjölskyldu sinni þar sem hann gegnir m.a. embætti forseta bæjarstjórnar Reykjanesbæjar. Jóhann Friðrik ráðinn framkvæmdastjóri Keilis Tæp 90% svarenda í könnun sem lögð var fyrir almenning eru mjög já- kvæðir í garð Ljósanætur. Þeir telja hátíðina hafa jákvæða áhrif á ímynd sveitarfélagsins og skapi samkennd meðal íbúa. Bæði net- og símakönnun var framkvæmd fyrr á árinu í tilefni 20 ára afmælis Ljósanætur í ár. N i ð u r s t ö ð u r ú r tveimur spurninga­ könnunum sem lagðar voru fyrir í janúar og febrúar voru kynntar á fundi menningar­ ráðs í morgun. Annars vegar var um að ræða vefkönnun sem var öllum opin á Facebook og sem send var í tölvupósti til nokk­ urra stórra fyrirtækja á svæðinu. Hún byggði á hentugleikaúrtaki og luku 977 einstaklingar við að svara könnunni. Einnig var lögð fyrir símakönnun sem framkvæmd var af Félags­ vísindastofnun Háskóla Íslands og byggði hún á slembiúrtaki 1000 íbúa úr Reykjanesbæ og var svar­ hlutfall 48,5% en slembiúrtak gefur réttmætari mynd af skoðunum bæjarbúa heldur en hentugleikaúr­ tak. Símakönnunin samanstóð af 10 spurningum úr vefkönnuninni. Megin niðurstöður voru eftirfar- andi: Mikið samræmi reyndist í niður­ stöðum beggja kannana sem styrkir mjög niðurstöður vefkönnunarinnar. Þegar hlutfall ánægðra var skoðað reyndust niðurstöður símakönnunar­ innar heilt yfir heldur jákvæðari en niðurstöður vefkönnunarinnar. 86–89% þátttakenda í báðum könn­ unum reyndust mjög eða frekar ánægðir með Ljósanótt. Jákvæðastir reyndust þátttakendur í garð samfélagslegra áhrifa af völdum hátíðarinnar. 82–96% töldu: Hátíðina hafa jákvæð áhrif á ímynd sveitarfélagsins. Hátíðina skapa samkennd meðal íbúa. Viðhorf íbúa til hátíðarinnar vera jákvætt. Yfir 80% töldu: Hátíðina gefa ýmsum hópum tækifæri til að vinna saman að sameiginlegum markmiðum. Hátíðina gefa íbúum tækifæri til að upplifa nýja hluti. Hátíðina hafa áhrif í lengri tíma en hún sjálf varir. Tæp 60% töldu: Ljósanótt gera Reykja­ nesbæ að betri stað til að búa á. Rúm 50% töldu: Að Ljósanótt hefði haft jákvæð áhrif á líðan þeirra. Að dagskráin endurspeglaði vænt­ ingar íbúa. Minnst sammála (49%) voru þátt- takendur því að: Íbúar hefðu tækifæri til að hafa áhrif á undirbúning hátíðarinnar. Í vefkönnun var upplifun þátttakenda á hátíðinni rannsökuð sérstaklega. Gengið er út frá því að upplifun á viðburðum sé ferns konar. Tilfinningaleg – sem segir til um ánægju og tilfinningalegt mat á viðburðinum. Vitsmunaleg – sem segir til um lær- dómsáhrif viðburðarins. Líkamleg – sem segir til um virkni og þátttöku í viðburði. Nýbreytni – sem segir til um hvort litið sé á viðburðinn sem einstakan. Tilfinningaleg, vitsmunaleg og líkam­ leg upplifun mældist, sem að meðal­ tali reyndist fremur hlutlaus. Upp­ lifun nýbreytni sem sérstaks þáttar mældist ekki. Möguleg skýring á því er að þátttakendurnir í rannsókn­ inni hafa flestir tekið þátt í hátíðinni endurtekið og því ekki víst að þeir upplifi beina nýbreytni í hvert sinn. Það er mat rannsakanda að niðurstöð­ urnar hafi leitt í ljós ýmis sóknarfæri þrátt fyrir almenna ánægju með há­ tíðina. Ljósanótt sé auðlind sem enn eigi mikið inni. Niðurstöður rannsóknarinnar munu nýtast inn í stefnumótun fyrir há­ tíðina, segir í fundargerð Menningar­ ráðs Reykjanesbæjar. Ljósanótt hefur jákvæð áhrif á ímynd Reykjanesbæjar STÖRF HJÁ SUÐURNESJABÆ DEILDARSTJÓRI FRÆÐSLUÞJÓNUSTU Ný og spennandi staða deildarstjóra fræðsluþjónustu á fjölskyldusviði Suðurnesjabæjar er laus til umsóknar. Suðurnesjabær er framsækið sveitarfélag sem veitir framúrskarandi þjónustu á sviði velferðar- og fræðslumála. Fjölskyldusvið er samþætt þjónustueining og til þess heyrir öll félags-, frístunda- og fræðsluþjón- usta. Lögð er áhersla á að sérfræðingar á fjölskyldusviði vinni í teymum þvert á stofnanir. Menntunar- og hæfniskröfur: • Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari eða nám í uppeldis- og menntunarfræðum. • Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar er æskileg. • Reynsla af stjórnun og kennslu er skilyrði. • Þekking og reynsla af áætlanagerð og rekstri • Þekking og reynsla í opinberri stjórnsýslu er æskileg. • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum er skilyrði. • Leiðtogahæfni og geta til að hvetja aðra til árangurs. • Sjálfstæði í vinnubrögðum og færni til að tjá sig í ræðu og riti er skilyrði. Meginhlutverk deildarstjóra fræðsluþjónustu: • Veita faglega forystu og móta framtíðarsýn fyrir fræðsluþjónustu í Suðurnesjabæ. • Stýra og bera ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi. • Leiða farsælt samstarf menntastofnana í Suðurnesjabæ. • Deildarstjóri fræðsluþjónustu heyrir undir sviðsstjóra fjölskyldusviðs. Umsóknarfrestur er til og með 5. maí 2019 Með umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starf deildar- stjóra fræðsluþjónustu. Upplýsingar um starfið veitir Guðrún Björg Sigurðardóttir, sviðsstjóri fjölskyldu- sviðs, netfang gudrun@sudurnesjabaer.is og Magnús Stefánsson, bæjarstjóri Suðurnesjabæjar, netfang magnus@sudurnesjabaer.is eða í síma 425-3000. Umsóknum skal skilað á rafrænu formi á netfangið afgreidsla@sudurnesjabaer.is ÞJÓNUSTUFULLTRÚI Vegna aukinna verkefna leitar Suðurnesjabær eftir starfsmanni í tíma- bundið starf til eins árs í þjónustuveri Fjölskyldusviðs. Um er að ræða 65% starfshlutfall og gert er ráð fyrir að starfsmaður vinni alla virka daga á opnunartíma skrifstofu. Meðal verkefna eru: Símsvörun, skráningarvinna og önnur tilfallandi ritarastörf. Hæfniskröfur: • Nám í skrifstofunámi er æskilegt eða reynsla af móttökuritarastarfi. • Mikil samskiptahæfni og rík þjónustulund. • Góð almenn tölvukunnátta. • Reynsla af vinnu við málakerfi. • Góð íslenskukunnátta er skilyrði. • Góð færni í ensku eða öðru tungumáli er kostur. Umsóknarfrestur er til og með 5. maí 2019 Nánari upplýsingar veitir Guðrún Björg Sigurðardóttir, sviðsstjóri fjölskyldu- sviðs eða Bergný Jóna Sævarsdóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs í síma 425- 3000. Umsókn ásamt starfsferilsskrá óskast sent á netfangið afgreiðsla@sudur- nesjabaer.is eða á skrifstofu Suðurnesjabæjar. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og við- komandi stéttarfélags. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. FAGMENNSKA – SAMVINNA - VIRÐING 4 FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM miðvikudagur 24. apríl 2019 // 17. tbl. // 40. árg.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.