Víkurfréttir


Víkurfréttir - 24.04.2019, Blaðsíða 9

Víkurfréttir - 24.04.2019, Blaðsíða 9
Kristín Eyjólfsdóttir, vaktstjóri í Íþróttamiðstöðinni Garði: Sex ára í salt- fiskvinnu hjá afa Finnst þér 1. maí skipta máli? „Já, mjög miklu máli. Það á að gefa verkafólki frí þennan dag svo það geti sameinast í baráttunni. Ég á svo góðan yfirmann sem gefur alltaf frí 1. maí jafnvel þó að gestir okkar hafi óskað eftir því að við höfum opið þennan dag. Hann er mjög innstilltur á að verkafólk og aðrir fái frí 1. maí. Það á að virða þennan dag meira en gert er. Allt hefur breyst í sambandi við þennan dag og kröfugöngur eru nán­ ast horfnar. Við megum ekki gleyma tilgangi þessa dags og við eigum að láta unga fólkið okkar vita fyrir hvað dagurinn stendur. Við þurfum að halda okkur vakandi í launabarátt­ unni.“ Hvað finnst þér um verkalýðsfor- ystuna á landsvísu? „Það er komin ný verkalýðsforysta bæði hér og þar. Ég held að það hafi verið fínt að fá nýtt fólk inn núna. Fólk má ekki vera of lengi í formennsku. Það er gott að fá nýtt blóð inn reglu­ lega til að viðhalda baráttuandanum. Allavega líst mér mjög vel á lífskjara­ samninginn nýja, það sem ég er búin að kynna mér.“ Áttu minningu um 1. maí? „Ég man eftir mér sex ára gamalli að breiða saltfisk hjá OddI afa í Prests­ húsum í Garðinum. Þegar rigndi voru allir kallaðir til að ná fiskinum inn í stæður. Ég var bara ellefu tólf ára þegar ég byrjaði að vinna í humar á sumrin en þá fengum við að garn­ draga í vélum, eitthvað sem börn á þessum aldri fengju sjálfsagt ekki að gera í dag. Ég vann í fiski í mörg ár en þetta var fyrsta starfið mitt. Man eftir svaka stemningu rétt fyrir 1. maí þegar við þurftum að verka allan aflann fyrir hátíðsdaginn 1. maí því þá var auðvitað gefið frí í frysti­ húsinu. Ég fór þá stundum í kaffi í hús verkalýðsfélagsins í Garðinum sem var alltaf í boði þennan dag. Fólk var prúðbúið. Þetta var hátíðisdagur og íslenski fáninn alls staðar dreginn að húni. Karlarnir fóru í jakkaföt, fólk dubbaði sig upp, klæddi sig í spari­ fötin, konur og karlar og börnin með. Allir gerðu sér dagamun. Mér finnst börn í dag missa af miklu sem fá ekki að kynnast fiskvinnu eða vinnu í frystihúsi en mér skilst að það megi ekki ráða yngra en sautján, átján ára. Krakkar frá fermingaraldri hefðu svo gott af því að kynnast þessum störfum á sumrin, þó það væri ekki nema að vinna hálfan daginn í frystihúsi.“ Sigrún Björg Ásgeirsdóttir, starfsmaður hjá Skólamat: Alltaf í kröfugöngu á afmælisdaginn Finnst þér 1. maí skipta máli? „Að sjálfsögðu fyrir mig og aðra því við þurfum sífellt að minna á baráttu verkalýðsins fyrir hærri launum. Auðvitað ætti maður að fara í bar­ áttukaffið í Stapa 1. maí til dæmis og hlusta á ræðumenn því það kveikir í baráttuandanum í manni. Kröfu­ göngur eru löngu hættar hér suður frá en eru ennþá í Reykjavík. Það á að virða friðhelgi þessa dags sér­ staklega. Ég hef til dæmis oft þurft að vinna þennan dag þegar ég var að vinna annars staðar en hér. Þetta á að vera frídagur verkafólks og það mætti alveg skerpa á því.“ Hvað finnst þér um verkalýðsfor- ystuna á landsvísu? „Ég er mjög ánægð með þá þróun sem er að gerast í dag. Svo á eftir að sjá hvernig nýr formaður á Suðurnesjum á eftir að standa sig. Það var löngu kominn tími á nýtt fólk í brúnni bæði hér og inn frá. Sólveig Jónsdóttir hjá Eflingu er ómenntuð, hún þekkir þessa baráttu okkar og lág laun af eigin raun. Ég er mjög bjartsýn og finnst þessir nýju kjarasamningar góð byrjun á framhaldinu.“ Áttu minningu um 1. maí? „Ég fór alltaf í kröfugöngu sem krakki og var alltaf að vonast eftir því að fá að halda á kröfuspjaldi því ég á afmæli 1. maí. Það var flaggað út um allan bæ og ég hélt auðvitað sem barn að það væri út af mér. Ég man vel eftir Gvendi Jaka, hvað það var mikil barátta á þessum árum og ekkert gefið eftir.“ Ég fór alltaf í kröfugöngu þá sem krakki og var alltaf að vonast eftir því að fá að halda á kröfuspjaldi því ég á afmæli 1. maí ... Ég vann í fiski í mörg ár en þetta var fyrsta starfið mitt. Man eftir svaka stemningu rétt fyrir 1. maí þegar við þurftum að verka allan aflann fyrir hátíðsdaginn 1. maí því þá var auðvitað gefið frí í frystihúsinu ... Kristín Eyjólfsdóttir. Sigrún Björg Ásgeirsdóttir. Safnfulltrúi óskast í Duus Safnahús Framtíðarstarf og sumarafleysingar Reykjanesbær óskar eftir að ráða safnfulltrúa í Duus Safnahús. Um 55 % starf er að ræða eftir vaktavinnufyrirkomulaginu 2-2-3 frá kl. 11.30–17.30. Helstu verkefni: ■ Móttaka safngesta og leiðsögn um sýningarnar ■ Umsjón með daglegum rekstri safnahússins ■ Þátttaka og undirbúningur í framkvæmd sýninga og annarra viðburða í safnahúsinu. ■ Sala minjagripa og daglegt uppgjör Menntunar- og hæfniskröfur: ■ Stúdentspróf eða annað sambærilegt ■ Reynsla af safnastarfi eða ferðaþjónustu æskileg ■ Gott vald á íslensku og ensku ■ Hafi góða hæfni í mannlegum samskiptum og sé með þjónustulund ■ Tölvukunnátta Umsóknarfrestur er til og með 15. maí n.k. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið á vef Reykjanesbæjar: www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf Nánari upplýsingar um starfið veitir Valgerður Guðmundsdóttir menningarfulltrúi (valgerður.gudmundsdottir@reykjanesbaer.is)á timarit.is ÖLL BLÖÐIN FRÁ 1980 OG TIL DAGSINS Í DAG 9MANNLÍF Á SUÐURNESJUM miðvikudagur 24. apríl 2019 // 17. tbl. // 40. árg.MANNLÍF Á SUÐURNESJUM

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.