Víkurfréttir


Víkurfréttir - 24.04.2019, Qupperneq 12

Víkurfréttir - 24.04.2019, Qupperneq 12
Einnig birt á www.naudungar- solur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir Fitjabraut 26-28, Njarðvík, fnr. 221-6237 , þingl. eig. KEJ ehf., gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf., þriðjudaginn 30. apríl nk. kl. 09:00. Tjarnargata 12, Sandgerði, fnr. 209-5149 , þingl. eig. Michelle Mar- ía Vilhjálmsdóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 30. apríl nk. kl. 10:00. Vallargata 11, Sandgerði, 50% ehl., fnr. 209-5227 , þingl. eig. Pétur Kristjánsson, gerðarbeiðandi Borgun hf., þriðjudaginn 30. apríl nk. kl. 10:15. Heiðarholt 44, Keflavík, fnr. 208-8900 , þingl. eig. Kristín Hreiðarsdóttir, gerðarbeiðandi Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda, þriðjudaginn 30. apríl nk. kl. 10:40. Vatnsnesvegur 5, Keflavík, fnr. 232- 0531 , þingl. eig. Vatnsnesvegur 5 ehf., gerðarbeiðendur Reykjanes- bær og Íbúðalánasjóður, þriðju- daginn 30. apríl nk. kl. 11:00. Vatnsnesvegur 5, Keflavík, fnr. 232- 0532 , þingl. eig. Vatnsnesvegur 5 ehf., gerðarbeiðendur Reykjanes- bær og Íbúðalánasjóður, þriðju- daginn 30. apríl nk. kl. 11:05. Vatnsnesvegur 5, Keflavík, fnr. 232- 0533 , þingl. eig. Vatnsnesvegur 5 ehf., gerðarbeiðendur Reykjanes- bær og Íbúðalánasjóður, þriðju- daginn 30. apríl nk. kl. 11:10. Vatnsnesvegur 5, Keflavík, fnr. 232- 0534 , þingl. eig. Vatnsnesvegur 5 ehf., gerðarbeiðendur Reykjanes- bær og Íbúðalánasjóður, þriðju- daginn 30. apríl nk. kl. 11:15. Vatnsnesvegur 5, Keflavík, fnr. 232- 0535 , þingl. eig. Vatnsnesvegur 5 ehf., gerðarbeiðendur Reykjanes- bær og Íbúðalánasjóður, þriðju- daginn 30. apríl nk. kl. 11:20. Vatnsnesvegur 5, Keflavík, fnr. 232- 0536 , þingl. eig. Vatnsnesvegur 5 ehf., gerðarbeiðendur Reykjanes- bær og Íbúðalánasjóður, þriðju- daginn 30. apríl nk. kl. 11:25. Sýslumaðurinn á Suðurnesjum 23. apríl 2019 UPPBOÐ Heiðarskóli í Reykjanesbæ fagnar tuttugu ára afmæli á hausti komanda. Einmitt þess vegna ákváðu skólayfirvöld að hafa árlega leiksýningu skólans aðeins flottari en vanalega. Kardemommubærinn var settur á svið og notast var við handrit frá Þjóðleikhúsinu sem veitti skólanum góðfúslegt leyfi fyrir því. Guðný Kristjánsdóttir var leikstjóri sýningarinnar og Daníella Holm Gísla- dóttir aðstoðarleikstjóri. Guðmundur Hermannsson var tónlistarstjóri en eins og flestir vita þá er heilmikið sungið í Kardemommubænum. Nemendur létu ljós sitt skína Víkurfréttir litu inn rétt fyrir loka- æfingu og var andrúmsloftið raf- magnað af spenningi. Nemendur skólans voru í óða önn að farða andlit hvers annars og sögumenn voru að æfa í síðasta sinn. Mikið fjör og mikil stemning. Allir spenntir að fara á svið. Við ræddum við Bryndísi Jónu, að- stoðarskólastjóra, um framkvæmd skólans á þessu fræga leikverki. „Á þessu 20. afmælisári skólans var útfærsla árshátíðanna með svolítið breyttu sniði. Leikrit Thorbjörns Egner um fólk og ræningja í Karde- mommubæ var rauði þráðurinn í gegnum árshátíðina. Hugmyndin varð til hjá þeim Guðnýju Kristjáns, leiklistarkennara, og Mumma Her- manns, tónmenntakennara, en þau unnu saman að því að skipta lögum og atriðum niður á árganga, í ann- ars vegar 1.–3. bekk og hins vegar 4.–7. bekk og settu saman handrit sem gerði atriði hvors aldursstigs að heildarverki. Umsjónarkennarar og Sigrún Gróa, forskólakennari, settu einnig mark sitt á atriði ár- ganga með nemendum. Mikil vinna fór fram í undirbúningi þessa dags. Atriðin voru æfð í leiklistartímum hjá Guðnýju og söngvarnir sungnir í tónmenntatímum hjá Mumma og umsjónarkennurum. Leikmyndin var unnin í leikmyndavali hjá Gróu smíðakennara, búningahönnun í vali hjá Ástu Kristínu auk þess sem Kristín Sesselja og Lilja, myndmenntakenn- arar, undirbjuggu og leiddu nemendur í því verkefni að mála leikmynd á bogavegginn í salnum. Allir bekkir útbjuggu skreytingar. Magga E. og Auður Gunnars, stuðningsfulltrúar, stýrðu skreytingamálum af myndug- leik. Sem sagt heilmikil vinna sem liggur að baki einni árshátíð.“ Hefð fyrir leiksýningum á árshátíð „Við erum alltaf með leiksýningu á árshátíð og löng hefð komin á að ungl- ingarnir okkar setji upp leikrit. Það eru þá nemendur sem eru í leiklistar- vali skólans ásamt fleirum sem vilja taka þátt í uppsetningu á árshátíð. Eitt af aðalsmerkjum Heiðarskóla er einmitt leiklist sem Guðný Kristjáns- dóttir á heiðurinn af en hún hefur leitt leiklistarvalið hjá okkur í nítján ár. Allir nemendur skólans í 1.–7. bekk fá eina kennslustund í leiklist á viku allt skólaárið. Svo er leiklistarval hjá 8.–10. bekk sem er alltaf vel sótt. Að taka þátt í unglingaleiksýningu er markmið hjá mörgum nemendum á öllum aldri en þeir stefna margir hverjir á að taka þátt í leikritinu þegar þeir verða unglingar í Heiðarskóla. Við leggjum áherslu á skapandi starf í skólanum því við sjáum hversu góð áhrif þetta hefur á nemendur okkar. Nemendurnir á yngsta stigi fara í dans- eða jógatíma einu sinni í viku í minni hópum og þar fyrir utan sækja nemendur á öllum aldri tónmennt, myndlist og leiklist. Við erum mjög hreykin af þessu starfi sem við vitum að hefur mjög góð áhrif á nemendur,“ segir Bryndís Jóna með bros á vör. Heiðarskóli verður sem fyrr segir tutt- ugu ára gamall á árinu en hann var fyrsti skólinn sem byggður var sem heildstæður í Reykjanesbæ fyrir 1.–10. bekk. Skólinn var einnig sá fyrsti á landinu sem hannaður var með innan- gengt íþróttahús og sundlaug. Emilía Nótt Önundardóttir, nemandi í 10. bekk: Lærði heilmikið af því að taka þátt „Við æfðum Kardemommubæinn í rúma tvo mánuði en ég sótti um að fara í árshátíðarvalið í Heiðar- skóla fyrir 2019. Við krakkarnir í 8.–10. bekk höfum verið að æfa þetta leikrit. Það var mikill texti sem við þurftum að muna og leggja okkar af mörkum. Það hefur gengið ágætlega og misvel hjá nemendum en rosalega skemmtilegt. Ég steig mjög mikið út fyrir þægindarammann og lærði heilmikið af því að taka þátt. Mig langaði að prófa eitthvað nýtt og athuga hvernig mér fyndist að vera á leiksviði en ég hef aldrei gert svona áður. Það gæti alveg verið möguleiki að ég vilji vera leikkona í framtíðinni.“ Magnús Már Garðarsson, nemandi í 9. bekk: Hef þjálfast meira í að tala hátt og skýrt „Ég leik Bastian bæjarfógeta sem er mjög glaðleg týpa. Það er bara mjög skemmtilegt því mér hefur alltaf fundist svo gaman að leika. Bastian vill hugsa sem best um alla, vill kannski ekki vera að stjórna mikið heldur er hann bara glaður. Ég hef þjálfast meira í að tala hátt og skýrt og láta heyrast vel í mér í öllum salnum. Mér finnst mjög gaman að vera fyrir framan fólk, leika og svona, mér finnst athygli mjög þægileg.“ Tómas Ingi Magnússon, nemandi í 9. bekk: Gaman að fá jákvæða athygli „Ég leik Kasper ræningja og á tvo bræður sem heita Jesper og Jónatan. Þetta hefur verið mjög skemmtilegt. Þetta er í fyrsta skipti sem ég syng fyrir framan svona marga en ég var ekkert svo stressaður yfir því. Það er mjög gaman að leika Kasper og þó við séum afslappaðir yfir þessu þá erum við að gera okkar besta. Að leika er góð þjálfun í að koma fram. Mér finnst líka mjög gaman að fá athygli, að fá jákvæða athygli.“ Daníella Holm Gísladóttir, íslenskukennari og aðstoðarleikstjóri: Er mjög stolt af nemendum „Kardemommubærinn er heilmikil sýning sem við ákváðum að setja á svið í tilefni tuttugu ára afmælis skólans, stór pakki sem við ákváðum að skipta á milli allra bekkjardeilda skólans. Við skiptum leik- ritinu niður en unglingadeild skólans tekur leikritið í heild sinni. Það er ekki oft sem við setjum svona stórt verk á svið. Þetta er búið að vera rosalega skemmtilegt og fróðlegt. Við höfðum samband við Þjóðleikhúsið og fengum góðfúslegt leyfi til þess að nota handritið þeirra sem við að vísu uppfærðum aðeins. Þjóðleikhúsið sagði okkur frá því að þau væru að hugsa um að setja Kardemommubæinn á svið. Það verður gaman að sjá leikritið þar einnig. Undanfarna tvo mánuði höfum við öll lært margt af þessum undirbúningi, bæði nemendur og kennarar. Þolinmæði er líklega það fyrsta sem manni dettur í hug. Krakkarnir hafa þurft að sitja allar æfingar og hlusta. Þau hafa staðið sig ótrúlega vel og eiga heiður skilið. Hópurinn er orðinn mjög samheldinn eftir þessar æfingar. Þetta er hópefli í leiðinni og þau eru öll góðir vinir. Ég er mjög stolt af þeim því þetta er mikill hlutverkaleikur. Krakkarnir hafa þurft að læra heilmikið af texta og setja sig inn í hlutverkin sín. Samkvæmt Aðalnámskrá grunnskóla á leiklist einnig að skipa sess í námi nemenda. Þau hafa einnig verið að syngja. Þetta er íslenskunám í leiðinni því krakkarnir hafa þurft að læra mörg ný orð sem eru í leiksýningunni. Þau þurftu stundum að fá orðaskýringar ef upp komu orð í leikritinu sem eru ekki notuð í daglegu máli lengur. Íslenskt mál kemur sterkt inn í svona uppfærslu.“ Skapandi skólastarf í Heiðarskóla í tuttugu ár Mar ta Eiríksdóttir marta@vf.is VIÐTAL Leiklist og söngur á heima í skólastarfi – Eflir nemendur og veitir þeim sjálfstraust Guðný Kristjánsdóttir, leikstjóri sýningarinnar, ásamt Daníellu Holm Gísladóttur, aðstoðarleikstjóra, en þær kenna báðar við Heiðarskóla. Unglingadeild Heiðarskóla sýndi leikritið um Kardemommubæinn þar sem nemendur léku og sungu. Bryndís Jóna Magnúsdóttir. 12 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM miðvikudagur 24. apríl 2019 // 17. tbl. // 40. árg.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.