Víkurfréttir


Víkurfréttir - 24.04.2019, Page 13

Víkurfréttir - 24.04.2019, Page 13
Suður með sjó er ný þáttaröð hjá Sjónvarpi Víkurfrétta. Með hækkandi sól sýnum við næstu vikurnar viðtöl við Suðurnesjafólk sem hefur skarað framúr á ýmsum sviðum, segja frá lífsreynslu sinni eða eru að gera áhugaverða hluti hér heima eða annars staðar. Við ætlum líka að fá Suðurnesjafólk í spjall í stúdíó Víkurfrétta þar sem við ræðum um málefni líðandi stundar, heit og köld. Suðurnesjamagasín heldur áfram sínu striki en nýr þáttur er frumsýndur á fimmtudagskvöldum kl. 20.30 á Hringbraut og vf.is. Í þáttunum er lögð áhersla á mannlífið á Suðurnesjum í sinni víðustu mynd, atvinnulífið, íþróttirnar og alla menninguna. SUNNUDAGINN 28. APRÍL KL. 20:30 SUÐUR MEÐ SJÓ Júlíus Friðriksson prófessor við South Carolina háskóla er gestur fyrsta þáttar af Suður með sjó. Bati eftir heilablóðfall er risastór rannsókn sem Júlíus vinnur að en fjórði hver einstaklingur á Vesturlöndum sem nær fullum lífaldri fær heilablóðfall á lífsleiðinni. Ekki missa af áhugaverðu viðtali í þættinum Suður með sjó á sunnudagskvöld á Hringbaut. SUÐUR MEÐ SJÓ VERÐUR EINNIG Í HLAÐVARPI magasínS U Ð U R N E S J A FIMMTUDAGINN 25. APRÍL KL. 20:30 Verður vindorkan á Reykjanesi beisluð? Ásgeir Margeirsson, forstjóri HS Orku, í viðtali um vindorku og gagnaver. SUÐUR MEÐ SJÓ og SUÐURNESJAMAGASÍN má sjá á Hringbraut, vf.is og í kapalsjónvarpinu í Reykjanesbæ. Allt efni þáttanna er einnig á Youtube- og Facebook-síðum Víkurfrétta.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.