Víkurfréttir - 02.05.2019, Qupperneq 14
Vortónleikar
Sönghóps Suðurnesja
mánudaginn 6. maí kl. 20.30
Vortónleikar Sönghóps Suðurnesja
verða haldnir í Ytri-Njarðvíkurkirkju
mánudaginn 6. maí kl. 20.30.
Verð 2.700 kr. og miðar seldir við innganginn.
Gestir verða Brokk-kórinn úr Reykjavík og taka
þau einnig nokkur lög og svo kórarnir saman.
Flutt verða lög meðal annars úr kvikmyndum
s.s. Bohemian Rhapsody og Shallow ásamt fleiri
skemmtilegum og ljúfum lögum.
Vorferð
Félags eldri borgara á Suðurnesjum verður 27.–29. maí n.k.
Gist verður í tvær nætur á Stracta hóteli á Hellu
– tveggja manna herb. kr. 41.800, eins manns herb. kr. 31.000.
Innifalið í verði er morgunmatur og kvöldmatur báða dagana.
Lagt af stað frá frá Nesvöllum kl.13:00.
Greiða þarf fyrir rútuna, kr. 5000, miðvikudaginn 22. maí
kl.16:30–17:00 að Nesvöllum.
Skráning hefst 3. maí hjá eftirtöldum:
Örn 846-7334, Margrét 896-3173,
Elín 845-6740, Hrafn 862-6726
Skráningu lýkur 20. maí
Gunnar Júlíus Helgason hefur verið virkur félagsmaður hjá UMFÞ og í
hreyfingunni frá unga aldri, Gunnar á að baki áralangt starf í þágu félags-
ins og sinnt hinum ýmsu grasrótarverkefnum frá unga aldri.
Gunnar fór í stjórn UMFÞ ungur að
árum og varð formaður félagsins árið
1993 aðeins 19 ára gamall. Fram að
þeim tíma hafði hann verið iðkandi,
sjálfboðaliði, þjálfari og sinnt hinum
ýmsu verkefnum fyrir Þrótt þrátt
fyrir ungan aldur.
Gunnar er einn af fáum sem hefur
spilað mótsleiki í körfubolta, hand-
bolta og knattspyrnu undir merkjum
Þróttar og var einn af frumkvöðlum
handboltaævintýrsins árið 2004 þegar
Þróttur sendi lið til leiks í bikarkeppni
HSÍ „uppá grínið“. Rataði verkefnið í
fjölmiðla við mikla kátínu Vogabúa
og annara handboltaunnenda. Í ljósi
þess að um var að ræða heimastráka
sem aldrei höfðu æft handbolta áður.
Gunnar spilaði fyrir meistaraflokk
Þróttar á sínum tíma og varð fyrsti
leikmaður í sögu félagsins til að ná
100 leikjum. Var sá leikur gegn Mána
frá Höfn í Hornafirði. Gunnar sat í
stjórn Knattspyrnudeildar til fjölda
ára og hefur komið að hinum ýmsu
verkefnum í uppgangi félagsins sl.
árin. Þegar meistaraflokkurinn var
endurvakinn árið 2008 og Voga-
völlur ekki í ástandi til að taka á móti
leikjum í Íslandsmóti tók Gunnar að
sér verkefnið í sjálfboðaliðastarfi án
allar aðkomu félagsins og sveitar-
félagsins á þeim tíma. Völlurinn
stóðst prófið og félagið fékk að spila
heimaleikina í Vogum á undanþágu
næstu árin.
Árið 2007 fór Gunnar í áheitagöngu
til styrktar UMFÞ með frænda sínum
Hilmari Sveinbjörnssyni. Gengu þeir
félagar þvert yfir Ísland 680 kíló-
metraleið og tók ferðalagið tutt-
ugu daga. Árið 2016 keppti Gunnar
Helgason fyrir hönd Þróttar Heið-
merkurtvíþraut Ægis og endaði í 11.
sæti á tímanum 01:16:58. Hlaupið er 8
km og hjólað 15 km. Keppendur voru
30 og því má árangur Gunnars teljast
góður sé tekið mið af því að hann var
að keppa í fyrsta sinn.
Gunnar tók við formennsku í Ung-
mennafélaginu Þrótti á ný árið 2015
og hefur verið í aðalstjórn sl. fjögur
árin.GUNNAR OG ÞRÓTTUR FENGU
MENNINGARVERÐLAUN VOGA
Menningarverðlaun Sveitarfélagsins Voga voru afhent í annað sinn á sumardaginn fyrsta. Að þessu sinni fengu
Ungmennafélagið Þróttur og Gunnar Júlíus Helgason, Þróttarfélagi og fyrrverandi formaður félagins verðlaunin.
Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn í Tjarnarsalnum og þar kom fram Tríó Grande sem er skipað Alexöndru
Chernyshovu sópransöngkonu, Rúnari Þór Guðmundssyni tenórsöngvara og Helga Hannessyni píanóleikara. Að
afhendingu lokinni var boðið upp á veitingar og þá var opnuð myndlistarsýning með verkum listamanna sem
eru búsettir í Vogum eða tengjast sveitarfélaginu sterkum böndum. Þeir sem áttu verk á sýningunni að þessu
sinni voru: Björgvin Hreinn Guðmundsson, Frank H. Sigurðsson, Hergeir á Mýrini, Kristín Erla Thorarensen,
Sigrún Þórðardóttir, Siv Sæmundsdóttir, Sæmundur Þórðarson og Þuríður Ingibjörg Klemensdóttir.
Varð formaður nítján ára
Myndlistarsýning var opnuð með verkum
listamanna sem eru búsettir í Vogum eða
tengjast sveitarfélaginu sterkum böndum.
Gunnar, Petra Ruth Rúnarsdóttir og Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri
eftir afhendingu menningarverðlaunanna.
Tríó Grande sem er skipað Alexöndru
Chernyshovu sópransöngkonu, Rúnari Þór
Guðmundssyni tenórsöngvara og Helga
Hannessyni píanóleikara.
Ný heimasíða
Voga komin í
loftið
Heimasíða Sveitarfélagsins
Voga, vogar.is, hefur nú verið
endurnýjuð frá grunni. Síðan
var sett í loftið 1. apríl og hefur
hlotið jákvæðar viðtökur, segir
Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri
í Vogum.
Heimasíðan er mun einfaldari
í sniðum en sú gamla, og þar af
leiðandi ætti að vera auðveld-
ara að nálgast upplýsingar sem
leitað er eftir. Allar fundargerðir
nefnda verða nú aðgengilegar
um leið og fundum lýkur og
gengið er frá fundargerð.
Endurskoðun aðalskipulags Sveitar-
félagsins Voga er hafin en starfs-
hópur kom saman til síns annars
fundar í vikunni sem leið. Á þann
fund mættu skipulagsráðgjafar
sveitarfélagsins sem fóru yfir verk-
og tímaáætlun verkefnisins, sem nú
liggur fyrir í drögum.
Gera má ráð fyrir að verkefnið taki
allt að tveimur árum, enda um-
fangsmikið og vandasamt, segir Ás-
geir Eiríksson, bæjarstjóri í Vogum
í pistli sem hann skrifar. Gert er
ráð fyrir víðtæku samráði við íbúa
jafnt sem aðra hagsmunaaðila um
aðalskipulagsvinnuna.
Markmiðið er að endurskoðað aðal-
skipulag sveitarfélagsins endur-
spegli þróunina næstu 20 árin. Það
er því að mörgu að hyggja og mikil-
vægt að vel takist til, segir bæjar-
stjórinn í pistlinum.
Vogamenn endur-
skoða aðalskipulag
Héldu tombólu í Vogum og styrktu Rauða krossinn
Þessar kátu Vogastúlkur nýttu blíðviðrið á annan í páskum til að halda tom-
bólu fyrir framan N1 í Vogum og söfnuðu 1.692 kr. sem þær færðu Rauða
krossinum. Þær voru kátar með árangurinn og sögðu að það væri upplagt
að nota góðu dagana í tombóluhald. Á mynd frá vinstri: Íris Embla Styrmis-
dóttir, Lilja Bára Kristinsdóttir og Aþena Örk Davíðsdóttir.
14 FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 2. maí 2019 // 18. tbl. // 40. árg.