Víkurfréttir - 02.05.2019, Síða 20
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Auglýsingasími: 421 0001 Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00
facebook.com/vikurfrettirehf
twitter.com/vikurfrettir
instagram.com/vikurfrettir
MUNDI
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M
Kristján er enginn
„50 cent“ Við erum að
tala um „Stjána Dal“!
Skátar úr Skátafélaginu Heiðabúum í Reykjanesbæ buðu sumarið velkomið með árlegri skrúðgöngu á sumardaginn
fyrsta. All nokkur fjöldi bæjarbúa bættist í gönguna þegar á leið en hún hófst við skátaheimilið við Hringbraut
í Keflavík og fór þaðan hring sem endaði í Keflavíkurkirkju.
Fastir gestir í skrúðgöngu skátanna voru tveir lögreglu-
menn fremst og lögreglubíll þar á undan en ómissandi í
göngunni er auðvitað Lúðrasveit Tónlistarskóla Reykja-
nesbæjar sem spila viðeigandi tónlist á leiðinni.
Að lokinni göngu var haldið í skátamessu í Keflavíkurkirkju
þar sem Sr. Fritz Már Jörgensson þjónaði fyrir altari.
Það hefur verið löng hefð hjá Víkurfréttum að mynda
gönguna og á vf.is eru fleiri myndir úr henni sem og
myndskeið frá upphafi hennar þar sem rætt er stuttlega
við formann skátafélagsins, Hauk Hilmarsson.
SKÁTAR GENGU INN Í SUMARIÐ MEÐ LÖGGU OG LÚÐRASVEIT
Hundrað dollaraseðill og kreditkort
var meðal þess sem plokkað var á
sunnudagsmorgni á stóra plokk-
deginum.
Kjartan Már Kjartansson, bæjar-
stjóri Reykjanesbæjar var í plokk-
hópi morgunsins sem var þó ekki
stór. Hann fann kreditkort sem var í
eigu grísks ferðamanns. Kjartan sagði
að afrakstur morgunsins hefði verið
að sögn Tómasar Knútssonar í Bláa
hernum, 24 stórir plastpokar.
Kristján Jóhannsson, varabæjarfulltrúi í Reykjanesbæ fann hundrað dollaraseðil
og Kjartan Már bæjarstjóri kreditkort frá grískum ferðamanni. Milli þeirra er kampakát
Jónína bæjarstjórafrú.
Hundrað dollaraseðill og
kreditkort fundust í plokki
fitjum
reykjanesbæ
NÝR STAÐUR
5141414
17’’ RISA new york pizza
Ein KR.2850aðeins
Tvær KR.4850aðeins
af matseðli
Víkurfréttamynd: Páll Ketilsson