Fréttablaðið - 19.08.2019, Blaðsíða 8
Fáðu fréttablað dagsins í
tölvupósti kl. 3.00 á morgnana.
Skráðu þig á póstlista blaðsins á
www.frettabladid.is#nyskraning
Það kostar ekkert.
Vertu fyrst/ur
að lesa blaðið
Vegna árásarinnar
hef ég boðað til
öryggisráðsfundar.
Ashraf Ghani, forseti Afganistan
Alvöru dælur sem vinna verkið á methraða. Þú færð Nilfisk hjá Rekstrarlandi
í Vatnagörðum og í útibúum Olís um land allt.
REKSTRARLAND verslun | Vatnagörðum 10 | 104 Reykjavík | Söluver 515 1100 | rekstrarland.is
OPIÐ ALLA
VIRKA DAGA
KL. 8–17
NILFISK
HÁÞRÝSTIDÆLUR
Passaðu þrýstinginn – hann þarf nefnilega að vera nægur
P
ip
a
r\TB
W
A
25-40%
AFSLÁTTU
R AF
HÁÞRÝSTI
DÆLUM
KÍNA Ef mótmælin í Hong Kong
halda áfram og stjórnvöld í kín-
verska sjálfstjórnarhéraðinu Hong
Kong ná ekki stjórn á mótmæl-
endum mun ríkisstjórn Kína í
Peking ekki sitja hjá og einfaldlega
fylgjast með. Þetta sagði Chen Wen,
erindreki Kínverja í Lundúnum, við
breska ríkisútvarpið í gær.
Undanfarna daga hafa verið
fluttar af því fréttir að þúsundir kín-
verskra herlögregluþjóna hafi verið
f luttar til Shenzen, steinsnar frá
Hong Kong, og í gær gengu á annað
hundrað þúsunda mótmælenda um
götur Hong Kong.
Krafan var skýr og hefur ekki
breyst. Mótmælendur vilja að frum-
varp borgaryfirvalda um að heimila
framsal til Kína verði drepið alfar-
ið, en það hefur nú verið dregið til
baka. Þá vilja þeir að borgaryfirvöld
lýsi því yfir að mótmælin séu ekki
óeirðir, að handteknir og ákærðir
mótmælendur verði leystir úr haldi
og að Carrie Lam, æðsti embættis-
maður borgarinnar, segi af sér. Þá
er farið fram á óháða rannsókn á
valdbeitingu lögreglu og vilja mót-
mælendur meina að lögreglulið
borgarinnar hafi beitt táragasi og
gúmmíkúlubyssum að óþörfu. Af
þessu hefur ekki orðið.
Deginum ljósara er að kínverski
Kommúnistaflokkurinn á megin-
landinu er afar ósáttur við það að
mótmælunum linni ekki. Hafa
talsmenn flokksins á undanförnum
dögum og vikum meðal annars sagt
mótmælunum svipa til hryðjuverka
en mótmælendum hefur ítrekað
lent saman við lögreglu. – þea
Kínverjar ætla ekki að sitja hjá og horfa á mótmælin í Hong Kong
MALTA Mohammed Adam Oga, sá
eini sem lifði af tilraun fimmtán
f lóttamanna til að sigla yfir Mið-
jarðarhaf fyrr í mánuðinum, sagði
við Reuters í gær að f leiri en eitt
skip hefði siglt fram hjá flóttamönn-
unum, hundsað allar beiðnir um
aðstoð og siglt á brott. „Þau komu
mjög, mjög nálægt okkur. Sáu okkur
í gegnum gluggana. En svo sigldu
þau á brott,“ sagði Oga sem nú liggur
á sjúkrahúsi í Tal-Qroqq á Möltu.
Fyrir sléttri viku kom áhöfn malt-
verskrar herþyrlu auga á Oga þar
sem hann lá á grúfu yfir líki sam-
ferðamanns síns, þess síðasta til að
láta lífið. Samkvæmt Oga sjálfum
létust hinir flóttamennirnir fjórtán
hver af öðrum þegar matar-, vatns-
og eldsneytisbirgðirnar kláruðust.
Líkin voru sett út á þilfarið þar sem
þau rotnuðu í steikjandi Miðjarðar-
hafssólinni.
„Eldsneytið kláraðist og raf-
hlaðan í GPS-tækinu sömuleiðis.
Við vorum úti á hafi í ellefu daga
og maturinn kláraðist allur,“ sagði
Oga. – þea
Sáu flóttamenn
en sigldu á brott
AFGANISTAN „Ég vildi að ég gæti
fundið líkamsleifar sonar míns og
sett þær saman í heilu lagi í gröfina,“
sagði Amanullah, íbúi í afgönsku
höfuðborginni í Kabúl, við frétta-
stofu AP í gær. Fjórtán ára sonur
hans var á meðal þeirra 63 sem
voru myrt í sprengjuárás sem gerð
var á brúðkaupsgesti í borginni á
laugardag. Afganski armur hryðju-
verkasamtakanna sem kenna sig við
íslamskt ríki (ISIS) lýsti yfir ábyrgð
á árásinni í gær.
Mohammad Aslim, sem lifði
árásina af, var enn klæddur í blóðug
veislufötin þegar blaðamaður fyrr-
nefnds miðils hitti hann í gær. Hann
sagðist þá vera búinn að grafa sex-
tán fórnarlömb og þrátt fyrir að
vera orðinn úrvinda ætlaði hann
að aðstoða við greftrun enn f leiri
fórnarlamba. Hann hafði grafið
nokkra nákomna ættingja og vini,
meðal annars sjö ára gamlan dreng.
Ashraf Ghani, forseti ríkisins, for-
dæmdi árásina í nokkrum færslum
á Twitter. „Það er fremst í forgangs-
röðinni hjá mér nú að ná sambandi
við fjölskyldur fórnarlamba þessar-
ar villimannslegu árásar. Fyrir hönd
þjóðarinnar votta ég samúð mína.
Ég bið fyrir skjótum bata hinna
særðu,“ sagði Ghani og bætti við:
„Ég hef skipað yfirvöldum að
aðstoða hin særðu af bestu getu.
Vegna árásarinnar hef ég boðað til
öryggisráðsfundar til þess að fara
yfir og koma í veg fyrir öryggis-
bresti.“
Þótt talibanar og Bandaríkja-
menn eigi nú í viðræðum um frið á
milli talibana og afganskra stjórn-
valda, sem og brotthvarf Banda-
ríkjahers, og þótt talibanar hafi
ekki verið á bak við árásina á laug-
ardaginn, sagði Ghani að þeir væru
ekki alsaklausir. Þeir byðu nefnilega
upp á vettvang fyrir hryðjuverka-
menn í landinu.
Talibanar fordæmdu árásina
harðlega. Zabiullah Mujaheed,
annar tveggja opinberra talsmanna
þeirra, sagði í orðsendingu til fjöl-
miðla að það væri ómögulegt að
réttlæta svo grimmilegt morð á
konum og börnum.
Ekki er víst hvaða áhrif árásin
hefur á friðarviðræður við talibana,
en talið er að þær séu langt komnar
og senn verði komist að samkomu-
lagi. Undanfarnar vikur hafa, þrátt
fyrir viðræðurnar, einkennst af tog-
streitu og átökum. Tíu dagar eru frá
því talibanar gerðu sprengjuárás
fyrir utan lögreglustöð og myrtu
fjórtán og á föstudag var bróðir
Hibatullah Akhundzada, leiðtoga
talibana, myrtur nærri pakistönsku
borginni Quetta. Enginn hefur lýst
yfir ábyrgð á þeirri árás.
Svo virðist hins vegar sem
afgönskum almenningi muni áfram
stafa hætta af ISIS, enda standa
hryðjuverkasamtökin utan við
viðræðurnar við talibana. Þessi svo-
kallaði Khorasan-armur ISIS taldi
samkvæmt öryggisráði Sameinuðu
þjóðanna að minnsta kosti 3.500
meðlimi á síðasta ári. Hafa liðs-
menn annaðhvort lýst yfir ábyrgð
á eða verið sakaðir um rúmlega 60
hryðjuverkaárásir frá ársbyrjun
2018. thorgnyr@frettabladid.is
Mikil sorg ríkir í Afganistan
Gríðarleg sorg ríkir í Kabúl eftir að 63 voru myrt í sprengjuárás á brúðkaup í afgönsku höfuðborginni.
Forsetinn segir árásina skepnuskap og þótt ISIS beri ábyrgð geti talibanar ekki sagst alsaklausir.
Oga var bjargað á Miðjarðarhafi
þann 12. ágúst. NORDICPHOTOS/AFP
Eitt fórnarlamba árásar laugardagsins, slasað á sjúkrahúsi í afgönsku höfuðborginni Kabúl. NORDICPHOTOS/AFP
Frá mótmælunum í sjálfsstjórnarhéraðinu Hong Kong. NORDICPHOTOS/AFP
1 9 . Á G Ú S T 2 0 1 9 M Á N U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
9
-0
8
-2
0
1
9
0
5
:2
0
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
9
A
-9
E
C
4
2
3
9
A
-9
D
8
8
2
3
9
A
-9
C
4
C
2
3
9
A
-9
B
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
6
4
s
_
1
8
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K