Fréttablaðið - 19.08.2019, Page 16
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Benedikt Bóas Hinriksson,
benediktboas@frettabladid.is, s. 550 5763 | Ásta Eir Árnadóttir, astaeir@frettabladid.is, s. 550 5764
| Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Sólrún Freyja Sen,
solrunfreyja@frettabladid.is, s. 550 5765 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Kristín Þorsteinsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653,
Vala Kristín Eiríksdóttir hefur vakið mikla athygli þrátt fyrir fremur stuttan
feril. Hún er á fullu í alls kyns verk-
efnum um þessar mundir, fyrst og
fremst í Borgarleikhúsinu, en hún
var líka ráðin sem einn af höf-
undum Áramótaskaupsins í ár.
Vala vissi mjög snemma að hún
ætlaði að feta leiklistarbrautina.
„Mér fannst það mjög spennandi
alveg frá því ég var peð,“ segir hún.
„Krakkar eru náttúrulega oft að
setja upp sýningar og svona og
þannig kviknaði áhuginn hjá mér
mjög snemma.
Ég vissi í rauninni ekki að þetta
væri eitthvað sem fólk gerði,
að það væri bara leið í gegnum
menntakerfið inn í leiklistina,“
segir Vala. „Mér fannst leikarar
svo ótrúlega merkilegir, næstum
eins og þau væru útvalin af guði.
En svo var bara hægt að læra þetta.
Þannig að ég fór í leiklistarnám í
Listaháskólanum.“
Ætluðu ekki að gera grín
Á meðan Vala var í námi stofnuðu
þær Júlíana Sara Gunnarsdóttir
gríntvíeyki og gerðu tvær þátta-
raðir af grínþáttunum Þær tvær.
„Það var alltaf svo gaman hjá
okkur og við áttum svo auðvelt
með að fá hvor aðra til að hlæja,“
segir Vala. „Þetta byrjaði með
svona „við verðum að gera eitthvað
saman“ spjalli sem maður á við
svo marga, en svo bara gerðum við
það.“
Hún segir að þær hafi ekki farið
af stað með þá áætlun að gera eitt-
hvað fyndið. „Grín verður bara til
sem afleiðing af því að reyna að
gera eitthvað. Það verður kannski
fyndið, eða ekki,“ segir hún. „Þetta
var bara aðgengilegt því við vorum
alltaf að láta hvor aðra hlæja og þar
af leiðandi vildum við gera meira
af því. En það er ekki auðvelt og ég
held að það sé eitt æðsta listformið
að fá fólk til að hlæja.“
Vala og Júlíana starfa enn saman
í þáttunum Venjulegt fólk, en þær
eru höfundar og leika aðalhlut-
verkin. „Það má segja að það sé
svona næsta skref hjá okkur. Það
eru ekki sketsar heldur er saga,
höfundum fjölgaði og búbblan
okkar stækkaði,“ segir Vala. „Þetta
er svona kómísk dramasaga og í
annarri þáttaröð, sem kemur inn
á Sjónvarp Símans núna í október,
verður farið meira inn á persónu-
legt líf þeirra vinkvenna, en fyrsta
serían var meira um starfsferil-
inn.“
Gaman að sleppa sér
Vala er að hefja fimmta leikárið
hjá Borgarleikhúsinu, en hana
dreymdi lengi um að starfa þar. „Já,
heldur betur, það er aðalstaður-
inn,“ segir hún. „Raunveruleikinn
er samt kannski ekki alveg eins
og draumurinn. Auðvitað er þetta
mjög skemmtilegt og fjölbreytt en
þetta er náttúrulega líka hörkupúl.
Þetta er jafn mikið púl og þetta er
gaman.“
Erfiðisvinnan hefur greinilega
skilað sér, því Vala hefur fengið
mikið lof fyrir leik sinn og fékk
Grímuverðlaunin í sumar fyrir leik
sinn í Matthildi, sem kom henni
á óvart. „Mér fannst bara ótrú-
lega gaman að vera tilnefnd með
þessum sturlað góðu leikkonum
sem ég hef alltaf litið upp til,“
segir hún. „Að fá þessi verðlaun
var ógeðslega skemmtilegt og
brjálaður heiður. Litla 13 ára Valan
inni í mér sem var alltaf að setja
upp sýningar heima trúði þessu
ekki og var að springa úr gleði. Mér
þykir líka vænt um hlutverkið, svo
það var gaman að fá hrós fyrir að
leika mömmu Matthildar. Þessi
sýning er ótrúlega falleg og það er
einstakur hópur sem vinnur að
henni.“
Vala leikur vanhæfa og freka
mömmu og segir að það hafi verið
gaman að geta sleppt sér í hlut-
verkinu. „Það er gaman að vera
frekja og fullkomlega dýrka sjálfan
sig þó að það sé engin inneign fyrir
því,“ segir hún. „Sjálfur er maður
oft með minna sjálfstraust en
maður hefur kannski efni á, þann-
ig að það er geðveikt að fá að vera
þessi týpa.“
Allir hafa skoðun á Skaupinu
Vala er líka að fara að kenna spuna
í LHÍ í haust, en þetta er í fyrsta
sinn sem hún kennir. „Það er mjög
spennandi. Mér finnst of boðs-
lega gaman að kenna og fara inn í
gamla skólann og sjá hvort maður
geti miðlað einhverju til fyrsta árs
nema í leiklist,“ segir hún. „Mér
þykir ótrúlega vænt um að hafa
verið beðin um þetta en þetta er
smá skrítið, því manni finnst svo
stutt síðan maður var á fyrsta ári,
þó að það séu komin 6-7 ár síðan.“
Reynir Lyngdal, leikstjóri
Áramótaskaupsins, fékk Völu líka
til að vera einn af handritshöfund-
um Skaupsins í ár. Hún segir það
spennandi en um leið kvíðavald-
andi verkefni. „Það er ekkert sem
jafn margir horfa á og það er ótrú-
lega skrítið að ætla að reyna að
höfða til eins margra og þú getur
á sama tíma og þú ert að reyna að
ögra og gera grín að því sem gerðist
og pota í samfélagsmein,“ segir
hún. „Allir hafa skoðun og maður
veit að einhverjir munu ekki fíla
það sem maður gerir.“
Plöntur, bækur,
hundur og saltfiskur
Vala býr með Birki Blæ Ingólfssyni,
sem starfar sem rit- og handrits-
höfundur, en þau hafa bráðum
verið saman í tvö ár. Vala segir að
Birkir sé geðgóður, skemmtilegur
og frábær félagsskapur og henni
finnst gott hversu auðvelt er að
ræða það sem henni liggur á hjarta
varðandi vinnuna, þar sem þau
vinna í mjög svipuðu umhverfi.
„Við búum líka með hundinum
Óliver, sem er fimm mánaða
gamall smáhundur. Pínulítill og
ýkt krúttlegur,“ segir Vala. „Okkur
líður rosalega vel. Við erum mikið í
að rækta plöntur og það er allt fullt
af plöntum heima hjá okkur. Birkir
er með plöntuæði, sem ég átti erfitt
með fyrst, því ég var að reyna að
hafa svona Pinterest-heimili. En
það gekk illa og svo enn verr þegar
hann fyllti allt með plöntum og
bókum.
Svo erum við líka að gera salt-
fisk úr fiski sem við veiddum á
Vestfjörðum,“ segir Vala. „Þetta
er nokkurra vikna ferli og Birkir
hefur staðið í að salta og umstafla
þessu.“
Hefur mikinn áhuga
á umhverfisvernd
Vala segir að þetta sé vinnufíkla-
heimili og að hún eigi ekki mikið
af áhugamálum. „Ég fer í sund og
ræktina, horfi á þætti, fer í matar-
boð og ferðast,“ segir hún. „Leiklist
var alltaf aðaláhugamálið mitt
og ég fæ rosalega mikið út úr því
að vinna við hana, þannig að mér
líður ekki eins og ég þurfi að finna
mér eitthvað skemmtilegt til að
gera eftir vinnu. Ég er bara í róleg-
heitum að dúlla mér.
Vala hefur mikinn áhuga á
umhverfisvernd og ætlar að
hlaupa 21 kílómetra í Reykjavíkur-
maraþoninu til að styrkja Vot-
lendissjóð. Hægt er að heita á hana
inni á vefnum hlaupastyrkur. is.
„Þetta er ekki mjög Instagram-
vænn sjóður, en hann sinnir
rosalega mikilvægi hlutverki, því
hann er að fylla upp í framræsta
skurði sem eru ábyrgir fyrir 60% af
kolefnislosun á Íslandi og endur-
heimta votlendi,“ segir Vala. „Að
fylla upp í þessa skurði er ódýr-
asta, skilvirkasta og fljótlegasta
leiðin til að draga úr kolefnislosun
á Íslandi. Ég vil endilega benda
fólki á að fara inn á votlendi.is
og skoða myndbandið þar, sem
útskýrir þetta vel.“
Það verður nóg að gera hjá Völu í haust. Hún verður á fullu í Borgarleikhús-
inu, kennir í LHÍ, skrifar Skaupið og önnur þáttaröð af Venjulegt Fólk verður
frumsýnd. Svo ætlar hún að hlaupa í maraþoninu. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Hundurinn Óliver er nýjasti fjölskyldumeðlimurinn.
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@frettabladid.is
Framhald af forsíðu ➛
ÚTSALA Á HJÓLUM OG HJÓLAVÖRUM
25–45%
AFSLÁTTUR AF VÖLDUM VÖRUM
FAXAFENI 7 · SÍMI 5 200 200 · GAP.IS
EKKI
MISSA
AF ÞESSU!
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 9 . ÁG Ú S T 2 0 1 9 M Á N U DAG U R
1
9
-0
8
-2
0
1
9
0
5
:2
0
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
9
A
-5
E
9
4
2
3
9
A
-5
D
5
8
2
3
9
A
-5
C
1
C
2
3
9
A
-5
A
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
6
4
s
_
1
8
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K