Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.08.2019, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 19.08.2019, Qupperneq 18
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Kristín Þorsteinsdóttir Sölumaður auglýsinga: Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103, Selma og Þórunn segja ýmis-legt breytast eftir árstíðum í verslununum Pennans. Haustin séu alltaf viðburðarík og fjörug en þá fyllast verslanirnar gjarnan af nýjum vörum, leitandi foreldrum og eftirvæntingar- fullum námsmönnum. „Haustið er skemmtilegur tími, ungmenni undirbúa sig fyrir komandi skóla- ár, hitta vini aftur eftir sumarfrí og takast á við ýmis verkefni,“ segir Selma. Vandlegur undirbúningur Selma og Þórunn segja undirbún- ing fyrir haustið hefjast mörgum mánuðum áður og þegar líða fer á ágúst er eftirvæntingin nánast áþreifanleg. „Undirbúningur hefur staðið yfir frá áramótum og því gaman þegar loksins kemur að skólasetningum og nemendur og foreldrar þeirra heimsækja versl- anir okkar,“ segir Selma. „Okkur þykir þessi árstími alltaf jafn skemmtilegur,“ bætir Þórunn við. Breytt landslag síðastliðin tvö ár Selma og Þórunn segja ýmislegt hafa breyst eftir að sveitarfélögin og skólarnir fóru að sjá um að kaupa megnið af ritföngum og stílabókum fyrir grunnskólanema. „Auðvitað hefur þetta landslag breyst mikið síðastliðin tvö ár því nú kaupa sveitarfélögin og skólar öll helstu ritföng og stílabækur fyrir nemendur grunnskóla,“ segir Þórunn. Ljóst er að þetta nýja landslag, sem þær nefna, er bæði víðtækt og umfangsmikið, en þetta árið hefur Penninn átt í samstarfi við fjölda sveitarfélaga og nær það til meira en 20.000 grunnskólanemenda í rúmlega 60 skólum. „Í ár unnum við með sextán sveitarfélögum sem keyptu námsgögn fyrir grunnskólanem- endur sína fyrir skólaárið 2019-20. Það eru yfir 20.000 nemendur í 63 skólum,“ segir Selma. Mikilvægt að vanda val á skólatöskum Skólatöskurnar eru þó ekki hluti af þessu nýja landslagi og þurfa for- eldrar því að gefa sér góðan tíma til þess að skoða hvað er í boði og velja vandaðar töskur sem henta barninu og auðvelda því að komast í gegnum erilsama skóladaga með óskaddað stoðkerfi. Þegar Selma og Þórunn eru spurðar að því hvað þurfi að hafa í huga við val á skóla- töskum segja þær nokkur atriði skipta máli. Taskan þurfi að styðja vel við barnið og hægt þarf að vera að stilla hana eftir þörfum hvers og eins barns. „Taskan þarf að vera með góðum stuðningi við bak, ólar þurfa að vera bólstraðar og auð- velt að stilla að þörfum og stærð barnsins,“ segir Selma. Þá segir hún sérlega gott ef að taskan hafi þveról yfir bringuna en það veitir aukinn stuðning. „Það tryggir að taskan sitji rétt á barninu,“ segir hún. Selma segir líka mikilvægt að velja rétta stærð fyrir barnið en það getur verið óþægilegt fyrir börn ef taskan er til dæmis of stór. „Of stór skólataska getur hamlað hreyfingum barnsins,“ segir Selma. Hún segir foreldra geta leitað eftir ráðgjöf í verslunum Pennans Eymundsson. „Starfs- menn okkar eru alltaf tilbúnir til að aðstoða og leiðbeina við valið,“ bætir Þórunn við. Töskur frá Jeva og Beckmann vinsælastar Selma og Þórunn segja Pennann Eymundsson leggja ríka áherslu á að bjóða upp á fjölbreytt úrval af vönduðum skólatöskum. „Penn- inn Eymundsson hefur alltaf lagt áherslu á að bjóða vandaðar skólatöskur í úrvali,“ segir Þórunn. Þá njóti danska vörumerkið Jeva og norska vörumerkið Beckmann mestra vinsælda meðal viðskipta- vina. „Þessi tvö fyrirtæki eiga það Penninn er með mikið úrval vara sem eru sérhannaðar fyrir örvhenta. Selma Rut og Þórunn Inga eru spenntar fyrir haustinu. Í Pennanum Eymundsson er að finna allt sem þarf fyrir skólann. Penninn Eymundsson er með mikið úrval af vönduðum skólatöskum. Fátt er jafn lýsandi fyrir skólann og hin sígildu UHU límstifti. Taskan þarf að vera með góðum stuðningi við bak, ólar þurfa að vera bólstraðar og auðvelt að stilla að þörfum og stærð barns- ins. Selma Rut Magnúsdóttir sameiginlegt að bjóða sérlega vandaðar skólatöskur og hafa þær verið okkar vinsælustu skóla- töskur um árabil,“ segir hún. Mikið úrval aðstoðarefnis Selma og Þórunn segja að það verði sífellt vinsælla hjá foreldrum að fjárfesta í vörum sem eru sérstaklega hannaðar til þess að liðka fyrir og dýpka námsgetu og -færni barna. Mikið úrval sé af fjölbreyttum vörum sem henti fyrir f lest fög, enda misjafnt milli barna hvað þurfi að leggja áherslu á. Þær nefna sem dæmi Vísinda- sett en þar takast börnin á við ýmsar tilraunir sem allar eiga það sameiginlegt að fræða þau um ólík náttúruöfl og -fyrirbæri. „Það verður alltaf vinsælla og vinsælla að bæta við vöru sem styður við og eykur skilning barnanna á hinum ýmsu þáttum náttúrunnar eins og til dæmis Vísindasett sem leiða barnið í gegnum ýmsar tilraunir sem tengjast geimnum, eldfjöllum og fleiru,“ segir Selma. Hún segir enn fremur að efni sem styðji við lestrarfærni og -skilning barna sé alltaf vinsælt og að slík fjárfesting komi sér jafnvel vel fyrir aðra fjölskyldumeðlimi grunnskólabarnsins. „Léttlestrar- bókum og ýmsum þrautabókum er gjarnan bætt við skólatösku- kaupin og greinilegt að foreldrum er annt um að bæta við vöru sem getur aukið skilning og bætt lestrarfærni barna. Yngri systkini njóta oft líka af góðs af og fá bækur sem hjálpa til við að læra stafina,“ segir Selma. „Mennt er máttur“ táknrænt í hugum margra Aðrar vinsælar vörur sem þær nefna eru til dæmis gulir Pluto blý- antar, UHU límstiftin og Crayola vaxlitirnir. Þá segir Selma að bláu, gamalgrónu stílabækurnar séu ekki bara vinsælar ár hvert heldur séu þær farnar að vera hálfgerður tákngervingur skólagöngu fyrir mörgum. „Bláu klassísku stíla- bækurnar „Mennt er máttur“ hafa verið vinsælustu skólavörurnar okkar í áraraðir og eru táknrænar fyrir skóla í hugum margra,“ segir hún. Framhaldsskólanemendur og örvhentir ekki út undan Selma og Þórunn segja Pennann Eymundsson að auki bjóða upp á allt það helsta sem framhalds- skólanemendur þurfa á að halda í upphafi anna. Þar sé hægt að nálgast bæði skiptibækur og nýjar bækur og mikið er lagt upp úr því að samræma vöruúrval og bóka- lista framhaldsskólanna. „Skiptibækur og nýjar náms- bækur eru stór hluti af undirbún- ingi fyrir skólann og hefur Penn- inn Eymundsson lagt áherslu á að eiga allar bækur sem eru á listum framhaldsskólanna,“ segir Þórunn. Þá séu þau með mikið úrval af skriffærum og öðru nauðsynlegu skóladóti sem er sérhannað fyrir örvhenta. „Það eru kannski ekki margir sem vita það en við bjóðum upp á skólavöru sem er sérstaklega hönnuð fyrir örvhenta. Þar má nefna, yddara, reglustikur, skæri og stílabækur,“ segir Selma. 2 KYNNINGARBLAÐ 1 9 . ÁG Ú S T 2 0 1 9 M Á N U DAG U RSKÓLAR OG NÁMSKEIÐ 1 9 -0 8 -2 0 1 9 0 5 :2 0 F B 0 6 4 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 9 A -6 D 6 4 2 3 9 A -6 C 2 8 2 3 9 A -6 A E C 2 3 9 A -6 9 B 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 6 4 s _ 1 8 _ 8 _ 2 0 1 9 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.