Fréttablaðið - 19.08.2019, Page 20

Fréttablaðið - 19.08.2019, Page 20
Námsgögn eru smám saman að breytast með tilkomu snjalltækja, en enn sem komið er er bókin samt sem áður sá miðill sem flestir kjósa. Menntamálastofnun er með opið hús nokkrum sinnum á ári. Opið hús í byrjun skólaárs er nýjung, en markmiðið er að ná til kennara og annarra áhugasamra og kynna námsefni sem komið hefur út á síðastliðnu ári. „Aðsókn að viðburðum hjá okkur er oftast nær góð, undanfar- in ár höfum við haldið „útgáfudag“ tvisvar ári þar sem allra nýjasta efnið er kynnt. Þeir viðburðir hafa mælst vel fyrir og aðsókn verið góð. Þá er starfsfólk Menntamála- stofnunar til skrafs og ráðagerða og kennarar geta fengið góð ráð um notkun nýs náms- efnis,“ segir Erling Ragnar Erlingsson sviðsstjóri. „Á sýningunni munum við leggja áherslu á efni sem komið hefur út síðast- liðið ár og þá munu ritstjórar stofnunarinnar verða með örnámskeið um nýtt efni og hvaða hugmyndafræði liggur að baki. Af mörgu er að taka hvað nýtt efni varðar. Má þar t.d. nefna námsefni í íslensku, stærðfræði, dönsku, samfélagsfræði, mynd- list, náttúrufræði, ritun og síðast en síst þá erum við stolt af samstarfi okkar við Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra um útgáfu á efni á táknmáli, sem er nýmæli og í raun einsdæmi í heiminum eftir því sem við komumst næst. Megnið af efni okkar er gefið út á prenti en auk þess er nær allt okkar efni aðgengilegt á rafrænu formi á vef stofnunarinnar mms.is,“ segir Erling enn fremur. „Námsgögn eru smám saman að breytast með tilkomu snjall- tækja, en enn sem komið er er bókin samt sem áður sá miðill sem flestir kjósa. Við fylgjumst vel með þróuninni en sökum smæðar landsins getum við ekki verið í farar- broddi heldur verðum við að fylgjast með og taka upp það sem best virkar. Þá verðum við hafa í huga að þróun námsefnis sérstak- lega fyrir snjalltæki er afar dýr og fjármagn er af skornum skammti. Á opnu húsi sem stendur yfir frá klukkan 10-16 í dag verða örkynningar á nýju námsefni og notkunar- möguleikum þess. Um er að ræða um það bil 30 mínútna fyrirlestra þar sem ritstjórar og höf- undar fara í gegnum nýtt námsefni og segja frá efninu og hvaða hug- myndafræði býr að baki. Kennarar geta þá spurt spurninga og fengið með sér sýnis- eintök ef áhugi er fyrir því,“ greinir hann frá. „Kynningarstarf Menntamála- stofnunar er margþætt. Við notum samfélagsmiðla, sendum tölvu- pósta, kynningareintök eru send í skólana, við tökum þátt í kenn- araráðstefnum, höldum opin hús, heimsækjum skóla og gerum í raun allt sem í okkar valdi stendur til að koma námsefninu okkar á fram- færi, því útgáfuferlinu er í raun ekki lokið fyrr en efnið er komið í notkun. Starfsemi Menntamálastofn- unar er miklu víðfeðmari en starfsemi Námsgagnastofnunar. Menntamálastofnun varð til við sameiningu Námsmatsstofnunar og Námsgagnastofnunar og því eru verkefni afar fjölbreytt, má þar nefna auk námsgagnaútgáfunnar, Þjóðarsáttmála um læsi, samræmd próf, innritun í framhaldsskóla, greiningar á menntakerfi þjóðar- innar og ýmsa þjónustu við skóla- samfélagið, nemendur kennara, skóla og foreldra. Menntamálastofnun er til húsa í Víkurhvarfi 3 og er húsnæðið vel til þess fallið að taka á móti gestum, við erum vel búin fundar- herbergjum og einnig eigum við góða nágranna sem kippa sér ekki upp við fjölda gesta á göngum hússins,“ segir Erling Ragnar. Kynna nýtt námsefni í opnu húsi hjá Menntamálastofnun Menntamálastofnun tók til starfa árið 2015. Stofnunin annast verkefni sem áður voru á hendi Námsgagnastofn- unar, Námsmatsstofnunar og mennta- og menningar- málaráðuneytis. Opið hús verður í dag að Víkurhvarfi 3. Erling Ragnar Erlingsson, sviðsstjóri hjá Menntamálastofnun. Fjölbreytt úrval af skólavörum í fallegri verslun okkar í Mosfellsbæ og í vefverslun Múlalundar – www.mulalundur.is. Þú pantar – við sendum til þín Múlalundur | Vinnustofa SÍBS Reykjalundur | 270 Mosfellsbær Sími 562 8500 www.mulalundur.is Þú kaupir skólavörurnar hjá Múlalundi og skapar um leið störf fyrir fólk með skerta starfsorku 4 KYNNINGARBLAÐ 1 9 . ÁG Ú S T 2 0 1 9 M Á N U DAG U RSKÓLAR OG NÁMSKEIÐ 1 9 -0 8 -2 0 1 9 0 5 :2 0 F B 0 6 4 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 9 A -8 1 2 4 2 3 9 A -7 F E 8 2 3 9 A -7 E A C 2 3 9 A -7 D 7 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 6 4 s _ 1 8 _ 8 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.