Fréttablaðið - 19.08.2019, Side 23
Við setjum nám-
skeið í fjarnáms-
búning fyrir stofnanir og
fyrirtæki. Fyrirtækin
geta svo keyrt nám-
skeiðin hvar og hvernig
sem þau vilja.
Stefán Guðnason, verkefna-stjóri símenntunar við Háskólann á Akureyri, segir
að verið sé að færa alla símenntun
yfir í fjarnám. „Skólinn er þekktur
fyrir sveigjanlegt nám þannig að
það lá beinast við að símenntunin
yrði það líka,“ segir hann.
Að sögn Stefáns er hugmynda-
fræði símenntunarinnar sú að fólk
geti sótt námskeið sama hvar það
er statt á landinu. „Það er lykil atriði
að námskeiðin séu aðgengileg fyrir
alla landsbyggðina og líka fólk í
Reykjavík sem vill koma á nám-
skeið hjá okkur. Það er alltaf að
verða meiri og meiri krafa frá mark-
aðnum að bjóða upp á fjölbreyttara
fjarnám. Fólk hefur minni tíma en
áður fyrir endurmenntun á sama
tíma og hennar er krafist í auknum
mæli í kjarasamningum.“
Leita eftir samstarfi
Símenntun Háskólans á Akureyri
vill koma til móts við þessar kröfur
og leitar eftir stofnunum og fyrir-
tækjum sem vilja setja upp nám-
skeið í samstarfi við skólann.
„Við setjum námskeið í fjar-
námsbúning fyrir stofnanir og
fyrirtæki. Þannig geta fyrirtæki
eða stofnanir sem eru dreifð um
allt land til dæmis, sparað sér þann
tíma og kostnað sem fylgir því að
fljúga fólki milli landshluta. Þau
geta samið við okkur og við setjum
efnið upp í fjarnámsbúning. Fyrir-
tækin geta svo keyrt námskeiðin
hvar og hvernig sem þau vilja,“ segir
Stefán.
Háskólinn á Akureyri hefur
mikla reynslu af fjarnámi og segir
Stefán að kerfin sem skólinn notar
séu það góð og sveigjanleg að þau
geti í raun mætt flestöllum kröfum
sem fólk hefur varðandi námskeið.
„Við tókum stjórnendanám
inn í símenntun fyrir tveimur
árum. Námið er á vegum Samtaka
atvinnulífsins (SA) og Sambands
stjórnendafélaga (STF) í sam-
starfi við Símenntun Háskólans á
Akureyri. Við höfum verið að keyra
námið út frá okkur. Það virkar
þannig að SA og STF eiga og reka
námið en við höldum utan um það
og erum með það í fjarnámi,“ segir
Stefán.
Stjórnendanámið er hagnýtt
nám ætlað öllum sem eru með
mannaforráð. Mikið er lagt upp
úr því í náminu að nemendur geti
nýtt það sem þeir læra jafnóðum.
Lært á eigin hraða
„Þetta er tveggja ára nám kennt í
sex námslotum, en fólk getur tekið
það á lengri tíma ef það vill. Það
skráir sig bara í eina lotu í einu,“
segir Stefán. Hann segir marga
hafa áhyggjur af að hafa ekki tíma
til að sinna náminu, en hann segir
að áætla megi að vinnan í hverri
lotu sé um það bil 10 klukku-
stundir á viku.
„En nánast öll verkefnin eru
aðlöguð að þinni vinnu þannig að
þú gætir verið að vinna með eitt-
hvað í náminu sem þú ert að vinna
með yfir daginn hvort sem er,
þannig að oft finnur fólk varla fyrir
aukinni vinnu. Það var til dæmis
ein sem var í þessu námi sem vann
við gæðaúttektir og ferla. Hún var
akkúrat í þeim áföngum hjá okkur
á sama tíma þannig að hún vann í
raun verkefnin bara í vinnunni.“
Stefán segir námið hafa gefist
gríðarlega vel. „Margir nemendur
uppgötva eftir að þeir byrja í
náminu að þeir hafa meiri tíma
en áður. Þetta skólar þig alveg til
sem stjórnanda. Það er mikið farið
í hvernig þú ert sem stjórnandi.
Þetta einfaldar alla verkferla og
einfaldar lífið fyrir þér sem stjórn-
anda að fara í gegnum þetta hjá
okkur.“
Stefán bætir við að nem-
endurnir hafi verið mjög ánægðir
með námið. „Maður verður hálf
feiminn þegar maður les umsagnir
nemenda. Ég sendi póst á þá og
spurði hvort einhver væri til í að
koma fram opinberlega og mæla
með náminu. Ég fékk svo mörg
svör að ég þurfti að velja úr. Ég var
með 17 nemendur í þeirri lotu og
15 buðust til þess.“
Á vefsíðu símenntunar Háskól-
ans á Akureyri, simenntunha. is,
má finna upplýsingar um þau
námskeið sem eru í boðið í fjar-
námi á næstunni. Úrvalið er mjög
fjölbreytt og ný námskeið bætast
reglulega við listann. Þau sem hafa
áhuga á að vita meira um Stjórn-
endanámið geta farið inn á stjorn-
endanam.is.
Skólinn er þekktur
fyrir sveigjanlegt nám
Háskólinn á Akureyri býður upp á fjölbreytt námskeið í Símenntun. Nám-
skeiðin eru öllum opin en oft er lögð áhersla á sérstaka markhópa. Stjórn-
endanám var tekið inn í símenntun nýlega og hefur það gefið góða raun.
Stefán Guðnason segir lykilatriði að námskeiðin séu aðgengileg fyrir alla
landsbyggðina og því er áhersla á fjarnám. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
Verið er að færa alla símenntun Háskólans á Akureyri yfir í fjarnám.
KYNNINGARBLAÐ 7 M Á N U DAG U R 1 9 . ÁG Ú S T 2 0 1 9 SKÓLAR OG NÁMSKEIÐ
1
9
-0
8
-2
0
1
9
0
5
:2
0
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
9
A
-A
3
B
4
2
3
9
A
-A
2
7
8
2
3
9
A
-A
1
3
C
2
3
9
A
-A
0
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
6
4
s
_
1
8
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K