Fréttablaðið - 19.08.2019, Side 42

Fréttablaðið - 19.08.2019, Side 42
Ég tek með mér kanarískan mat á námskeiðið og fer með fólk til Kanaríeyja í huganum, enda felst stærstur hluti ferðalags í því að spá og spekúlera og láta sig hlakka til. Það er ekki minna virði en ferðalagið sjálft og sjálf eyði ég miklum tíma í að lesa mér til um staði og kynna mér landið því það eykur enn á upplifunina að vita hverju maður á von á,“ segir Snæfríður sem gefur nemendum sínum hugmyndir um ævintýra­ lega bíltúra og gullfallegar göngu­ leiðir á vinsælustu sólarströndum Íslendinga á Kanaríeyjum. Snæfríður féll fyrir töfrum Tenerife þegar hún fór þangað fyrst í sólarlandaferð og síðastlið­ inn vetur hafði hún þar vetursetu með eiginmanni sínum og þremur dætrum. „Tenerife er heillandi áfanga­ staður sem hefur upp á svo miklu meira að bjóða en bara sólskin, strendur og sundlaugarbakka. Því er synd hversu margir ferða­ menn missa af ævintýralegri hlið eyjunnar með sínu fjölbreytta landslagi, frábæru gönguleiðum og möguleikum til útivistar, náttúru­ skoðunar og afþreyingar fyrir alla fjölskylduna,“ upplýsir Snæfríður um eyjuna sem er aðeins 2.034 fer­ kílómetrar, eða fimmtíu sinnum minni en Ísland og aðeins 100 kíló­ metra löng og 50 kílómetrar þar sem hún er breiðust. „Tenerife er bæði lítil og greiðfær og á einum og sama deginum er hægt að liggja í sólbaði, ganga í gegnum rakan regnskóg eða þurr­ an furuskóg, skoða pýramída, draugaþorp og höfrunga, ganga á hrauni eða í gegnum ávaxta­ akra og snerta snjó. Malbikuð hraðbraut liggur utan um alla eyjuna og meira að segja fjall­ vegir eru malbikaðir þótt sumir séu seinfarnir og kræklóttir þar sem er brattast, en hæsta fjall Spánar, Pico del Teide, er einmitt á Tenerife,“ segir Snæfríður. Persónulegra ferðalag Námskeið Snæfríðar sækja jafnt ferðalangar sem hafa sótt Kanarí­ eyjaklasann heim og þeir sem hyggja á ferðalög þangað, en líka þeir sem vilja sækja sér þekkingu og fróðleik. „Fyrra námskeið haustsins er innblástur fyrir hinn almenna ferðalang sem langar að kynnast Tenerife betur. Flestir verða hissa á því hvað eyjan hefur upp á margt að bjóða og þótt ég hafi farið árvisst til Tenerife á undanförnum árum er ég alltaf að sjá og upp­ götva eitthvað nýtt. Heimamenn eru þægilegir við að eiga, glaðlynt fólk sem býr til góðan mat og gott vín og verðlagið er allt annað þegar farið er út fyrir aðalferðamanna­ svæðin. Því er gaman að færa sig um, upp í fjöllin og yfir á norður­ hluta eyjunnar þar sem heima­ menn búa og sjá hvað þeir fást við. Þar opnast nýtt landslag, arki­ tektúr, saga og matarmenning,“ útskýrir Snæfríður sem gefið hefur út ferðahandbækurnar Tenerife ævintýraeyjan og Tenerife krakka­ bókin með áherslu á afþreyingu fyrir fjölskyldufólk. Í október heldur hún nám­ skeið um eyjuna Gran Canaria hjá Endurmenntun. „Gran Canaria hefur lengi verið vinsæl meðal Íslendinga og þótt sú eyja eigi margt sameiginlegt með Tenerife, eins og margar göngu­ leiðir og fagra náttúru, hefur hvor eyja sín sérkenni og sjarma. Margir standa í þeirri trú að Kanarí sé staður eldri borgara en þar er ekki síður að finna alls konar afþrey­ ingu fyrir fjölskyldufólk, marga dýragarða, skemmtigarða og vatnsrennibrautagarða, sem eru ekki síðri en á Tenerife.“ Á nýárinu heldur Snæfríður svo námskeið um íbúðaskipti. „Íbúðaskipti er ótrúlega skemmtilegur og öðruvísi ferða­ máti. Maður öðlast allt aðra sýn á landið sem maður heimsækir og myndar persónulegri tengsl við heimamenn. Íbúðaskipti eru auk þess betri nýting á því sem er til í heiminum og sannarlega vist­ vænna að nota tómt hús ferðalangs þegar hann fer að heiman en að láta það standa autt. Á tímum flugviskubits og umræðu um mikla mengun flugvéla getum við kannski breytt ferðavenjum okkar með að nota hús hvert annars í heiminum, dvelja lengur á hverjum stað og reynt að skilja eitthvað eftir hjá heimamönnum,“ segir Snæfríður sem hlakkar mjög til námskeiðanna fram undan. „Það er gaman og gefandi að veita fólki innblástur og sjálf hef ég fengið góðar hugmyndir frá nemendum mínum sem farið hafa til Kanaríeyja og upplifað hluti sem ég vissi ekki um. Þeir sem koma eru áhugasamir og líf leg umræða skapast á skemmtilegri kvöldstund.“ Bækurnar Tenerife ævintýraeyjan og Tenerife krakkabókin fást í Eymundsson og á síðunni lifider- ferdalag.is Til Tenerife í huganum Ferðabókahöfundurinn Snæfríður Ingadóttir stendur fyrir þremur ör- námskeiðum hjá Endurmenntun í haust og vetur; um leyndardóma Tenerife, Kanaríeyjar og íbúðaskipti. Hér stendur Snæfríður á einni af fögrum gönguleiðum á náttúruverndarsvæðinu Anaga á nyrsta odda Tenerife. Snæfríður dvaldi vetrarlangt með fjölskyldu sinni á Tenerife þar sem dæturnar gengu í skóla og lærðu að tala reiprennandi spænsku. Snæfríður segir alla sem heimsækja Tenerife verða að smakka geitaost. Þórdís Lilja Gunnarsdóttir thordisg@frettabladid.is Þetta þykir Snæfríði nauðsynlegt að gera á Tenerife: 1. Smakka geitaost. 2. Ganga frá Santiago del Teide niður í þorpið Masca. Það er ein fallegasta gönguleið eyjunnar. 3. Heimsækja miðbæ San Cristóbal de La Laguna sem er á heimsminjaskrá Unesco. 4. Panta Barraquito-kaffi á næsta kaffihúsi. 5. Fara út að borða á Guach- inches sem eru óhefðbundin veitingahús rekin af vínrækt- endum. 10 KYNNINGARBLAÐ 1 9 . ÁG Ú S T 2 0 1 9 M Á N U DAG U RSKÓLAR OG NÁMSKEIÐ 1 9 -0 8 -2 0 1 9 0 5 :2 0 F B 0 6 4 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 9 A -A 3 B 4 2 3 9 A -A 2 7 8 2 3 9 A -A 1 3 C 2 3 9 A -A 0 0 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 6 4 s _ 1 8 _ 8 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.