Fréttablaðið - 19.08.2019, Page 44
Frakkar vonast til
að bannið komi í
veg fyrir hvers kyns
of beldi í skólum.
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Nemendur sem hafa útskrif-ast frá Söngskólanum í Reykjavík starfa núna um
allan heim. Söngskólinn útskrifar
nemendur með ýmsar prófgráður
en boðið hefur verið upp á söng-
nám fyrir stúlkur og drengi, allt
frá tíu ára aldri. Að sögn Ásrúnar
Davíðsdóttur aðstoðarskólastjóra
hefur eftirspurn eftir námi fyrir
yngri nemendur aukist mikið og
verður því aldurinn lækkaður
niður í átta ára.
„Stór þáttur í náminu er þjálfun
í því að koma fram og tjá sig, í
söng, leik og hreyfingum,“ útskýrir
Ásrún. „Ungdeildir skólans hafa
undanfarin ár tekið þátt í alls
konar uppfærslum. Þau hafa flutt
ýmiss konar tónlist sem vinsæl
er hjá þessum aldurshópum, ekki
síst þar sem einnig er lagt upp
úr leikrænni þjálfun, dansi og
hreyfingum. Meðal annars hafa
krakkarnir sett upp stytta útgáfu
af Ávaxtakörfunni eftir Þorvald
Bjarna. Sýningin var sett upp í
samvinnu við Barnamenningar-
hátíð í Reykjavík,“ segir hún.
„Ungdeildin tók einnig þátt í
jólatónleikum Eivarar í Hörpu en
uppselt var á alla tónleikana. Nem-
endur Ungdeilda ljúka yfirleitt
grunnprófi áður en þeir f lytjast
í almenna deild skólans þegar
þau ná 16 ára að aldri. Námið
veitir nemendum ómælda gleði og
byggir upp sjálfstraust, ungviðið
bókstaflega blómstrar og það
kemur ljóslega fram á tvennum
tónleikum sem deildin heldur
árlega, auk uppfærslna sem þau
taka þátt í með Nemendaóperu
skólans,“ bætir Ásrún við.
„Stór þáttur í námi nemenda
við Söngskólann er þjálfun í
að koma fram á tónleikum en
Vetrarstarf Söngskólans að hefjast
Söngskólinn í Reykjavík er í fallegu húsi að Laufásvegi 49-51.
Soffía H. Bjarn-
leifsdóttir,
Ásrún Davíðs-
dóttir og Viðar
Gunnarsson
voru að vinna
við undirbúning
skólaársins
þegar ljós-
myndarann bar
að garði.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Skólayfirvöld í Noregi segja að farsímabannið hafi virkað mjög vel. Nemendur
spjalla frekar saman og félagslegt
líf er mun betra. Í skólunum hafa
verið sett upp svokölluð síma-
hótel. Það eru eiginlega skópokar
sem geyma símana á meðan á
skólatíma stendur. Skópokarnir
eru læstir inni í skáp á kennara-
stofunni. Nemendur fá símana til
baka að loknum skóladegi.
Netsíða NRK, norska ríkisút-
varpsins, gerði könnun meðal
eitt þúsund skólastjóra í Noregi
og spurði um notkun farsíma á
skólatíma. Í ljós kom að fjórir
af hverjum fimm höfðu bannað
notkun á þeim í skólanum. Spurt
var bæði hjá skólastjórum grunn-
og framhaldsskóla. Í nokkrum
skólum máttu nemendur nota
símana í frímínútum en urðu að
skila þeim þegar kennsla hófst að
nýju.
Um 80% banna alfarið síma-
notkun í skólunum. Hjá 74%
máttu nemendur koma með
símana með sér en urðu að leggja
þá inn á símahótelið á skólatíma.
Um 70% skólastjóra sögðu að
bannið hefði haft jákvæð áhrif á
félagslíf innan skólans. 80% sögðu
að símaleysið hefði jákvæð áhrif
á námið. Ekki voru allir vissir um
Skólar víða um heim banna farsíma
Fjórir af fimm skólum í Noregi hafa bannað farsímanotkun hjá nemendum. Mikil umræða hefur
orðið um notkun á snjallsímum í skólum eftir að frönsk yfirvöld bönnuðu alfarið notkun þeirra.
Það eru ekki
allir sáttir við að
láta farsímann
af hendi í skóla-
stofunni.
Söngskólinn í
Reykjavík hefur
útskrifað hátt á
fimmta þúsund
nemendur frá því
hann hóf starf-
semi árið 1973.
Garðar Cortes er
stofnandi skólans
og skólastjóri frá
upphafi. Áheyrn-
arprufur í Söng-
skólanum fara
fram síðar í ágúst.
náminu fylgir að sjálfsögðu
fræðsla í öllum greinum er snúa
að tónlist og f lutningi hennar,
eins og tónfræði, tónheyrn,
nótnalestri, fræðslu um sögu tón-
listar og f lutning í aldanna rás.
Allir nemendur þjálfast í að koma
fram og syngja fyrir áheyrendur
og fá tilsögn þar að lútandi, bæði
í einkatímum og fyrir samnem-
endur. Nemendur sem komnir eru
í framhaldsdeild, taka þátt í upp-
færslum Nemendaóperu Söng-
skólans, sem hefur verið starfrækt
frá árinu 1982. Settar hafa verið
upp hátt í 50 uppfærslur, bæði í
Reykjavík og á ýmsum stöðum á
landsbyggðinni. Sýning síðasta
skólaárs var Þinn Falstaff sem
byggð var á óperu atriðum eftir
Mozart, Beethoven, Verdi og
Bizet. Sýningin var sýnd bæði í
Iðnó í Reykjavík og Hofi á Akur-
eyri en auk þess hefur Nemenda-
óperan sýnt í Hörpu, Leikhús-
kjallaranum, Salnum Kópavogi
og Íslensku óperunni ásamt f leiri
stöðum,“ upplýsir Ásrún.
„Fyrir utan almennt söngnám
býður skólinn upp á ýmis nám-
skeið. Má þar nefna söngnámskeið
utan venjulegs vinnutíma fyrir
söngáhugafólk á öllum aldri, ýmis
meistaranámskeið og fyrirlestra
fyrir söngnemendur, söngvara
og söngkennara. Í vetur mun
óperudeild skólans taka upp þá
nýbreytni að vera með „galakvöld“
þar sem nemendur koma fram
á búningatengdum tónleikum,“
bætir hún við.
Söngskólinn í Reykjavík
var fyrstu 5 árin staðsettur að
Laufásvegi 8, þá flutti hann að
Hverfisgötu 45. Þaðan flutti hann
á Snorrabraut 54 en síðastliðinn
vetur fékk skólinn nýtt aðsetur að
Laufásvegi 49-51. „Skólinn er núna
staðsettur í yndislegu umhverfi
sem varð kveikja að útitónleikum
hjá okkur. Nemendur sungu fyrir
nágranna og aðra gesti og oft varð
úr skemmtilegur fjöldasöngur.
Við buðum upp á heitt súkkulaði
og stemmingin var frábær,“ segir
Ásrún. „Tónleikarnir gengu undir
nafninu UNDIR HLYNI þar sem
við erum með verðlaunahlyn hér í
garðinum,“ segir hún.
Ásrún minnir á að seinni
partinn í ágúst fari fram áheyrnar-
prufur hjá Söngskólanum. „Þá er
hlustað eftir því hvort röddin er
óskemmd og með góða þroska-
möguleika á söngsviðinu. Einnig
þarf gott tóneyra. Undirbúnings-
menntun hjálpar til þótt hún sé
ekki skilyrði fyrir inngöngu.
Margir nemendur Söngskólans
hafa skapað sér stóran sess í
óperuheiminum og má meðal
annars nefna Kristin Sigmunds-
son, Garðar Thór Cortes og Þóru
Einarsdóttur. Einnig hafa margir
þekktir söngvarar í rytmísku
deildinni stundað nám við Söng-
skólann eins og Emilíana Torrini,
Eivör Pálsdóttir, Kristjana Stefáns-
dóttir, Sigríður Thorlacius og
Svavar Knútur.
Nánar má fræðast um starf
skólans á heimasíðunni www.
songskolinn.is. Skrifstofan er opin
frá 10-16 og síminn er 552 7366.
að setja ætti lög í landinu sem
banna farsíma í skólum. Fjórir af
fimm skólastjórnendum sögðu
að börnin fengju símann í hendur
ef erindið væru mjög áríðandi.
Nær allir sögðu að foreldrar væru
jákvæðir á bannið.
Sveitarstjórnarkosningar verða
í Noregi í september en bæði Erna
Solberg forsætisráðherra og Jan
Tore Sanner menntamálaráðherra
hafa talað um að farsímabann
í skólastofum verði eitt af þeim
málum sem munu koma upp í
kosningabaráttunni. Ekki eru
þó allir sáttir við algjört bann
með lögum. Sumir vilja meina
að komið geti upp tilvik þar sem
síminn gæti verið hjálpartæki við
námið. Skólastjórnendur ættu að
hafa valdið til að banna símana
þótt stjórnmálamenn séu ekki að
skipta sér af því, segja aðrir.
Í Frakklandi, þar sem nú ríkir
algjört bann við farsímanotkun í
skólum, er vonast til að það komi
í veg fyrir einelti, áreitni, þjófnað
og of beldi á skólalóðinni. Að auki
er banninu ætlað að koma í veg
fyrir sendingar á kynferðislegum
myndum. Um 90% franskra barna
eiga farsíma.
Hér á landi hefur umræða
komið upp um farsímanotkun
barna á skólatíma. Nokkrir skólar
hafa þegar tekið upp algjört far-
símabann í skólanum. Búast má
við að umræðan verði meiri nú
þegar skólarnir taka til starfa á
nýjan leik.
12 KYNNINGARBLAÐ 1 9 . ÁG Ú S T 2 0 1 9 M Á N U DAG U RSKÓLAR OG NÁMSKEIÐ
1
9
-0
8
-2
0
1
9
0
5
:2
0
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
9
A
-8
F
F
4
2
3
9
A
-8
E
B
8
2
3
9
A
-8
D
7
C
2
3
9
A
-8
C
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
6
4
s
_
1
8
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K