Fréttablaðið - 19.08.2019, Síða 46
Það er mjög sjald-
gæft að maður sjái
spunalið sem saman-
stendur eingöngu af
stelpum eða bara að
helmingurinn af liðinu
séu stelpur.
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun@frettabladid.is
Getum bætt við nemendum á haustönn
NÁMSKEIÐ FYRIR BÖRN OG
FULLORÐNA
JL HÚSINU VIÐ HRINGBRAUT
MIÐBERGI Í BREIÐHOLTI
KORPÚLFSSTÖÐUM
SKRÁNING ER HAFIN
Þetta er námskeið, bara fyrir stelpur, sem hafa lokið þremur grunnnámskeiðum í
Haraldinum,“ segir Björk.
Haraldurinn eru spunanám-
skeið sem haldin hafa verið reglu-
lega undanfarin ár og segir Björk
að í Haraldshópnum á Facebook,
hóp fyrir þá sem hafa tekið eitt eða
fleiri Haraldsnámskeið, séu um
það bil 700 manns og hópurinn fer
stækkandi.
„Okkur Steineyju fannst mikil
vöntun á námskeiði fyrir stelpur
þar sem þær fá nóg pláss. Við
þurfum alltaf að sanna okkur
miklu meira. Sanna að við séum
fyndnar og að við sem konur
höfum rétt á því að gera eitthvað
fyndið,“ segir Björk um ástæðu
þess að þær ákváðu að halda þetta
námskeið.
„Við erum að kenna nýtt form og
nýjar æfingar sem hafa ekki verið
kenndar á Haraldsnámskeiðum
áður. Við erum báðar búnar að
læra úti. Ég í New York og LA og
Steiney í LA. Þannig að okkur lang-
aði að deila því sem við höfum lært
með öðrum,“ segir Björk.
Námskeiðið heitir Set bitch free
og Björk segir að hugsunin með því
sé að skapa umhverfi fyrir konur
til að vera eins og hún orðar það
„boss ass bithces“ eða til að hleypa
tíkinni út eins og mætti orða það á
íslensku.
Bransinn er mjög karllægur
„Úti í LA þá er bransinn mjög karl-
lægur eins og alls staðar annars
staðar. Það er mjög sjaldgæft að
maður sjái spunalið sem saman-
stendur eingöngu af stelpum, eða
bara að helmingurinn af liðinu séu
stelpur. Við Steiney vorum farnar
að upplifa þetta smá á Íslandi líka.
Okkur langar að sýna fram á að
stelpur hafa áhuga á spuna. Það er
alls ekki satt sem sumir segja að
stelpur hafi bara ekki áhuga, þess
vegna séu svona fáar stelpur að
sýna spuna,“ segir Björk.
Björk segir að færri hafi komist
að á námskeiðinu hjá þeim en
vildu. En námskeiðið er nýfarið af
stað. „Það eru liðnar tvær vikur af
því en það er fjórar vikur í heild,
tvisvar sinnum í viku. Við verðum
örugglega með svona námskeið
aftur. Það er augljóst að stelpur
eru fyndnar. Þær vilja læra og vilja
verða betri svo þetta er fáránleg
afsökun að segja að stelpur hafi
ekki nógu mikinn áhuga.“
Að sögn Bjarkar dugar þó
ekki fyrir stelpur að vera dug-
legar ef það er ekki pláss fyrir
þær í spunanum. „Kerfið þarf að
breytast. Það þarf að koma til móts
við okkur og búa til pláss. Okkur
Steineyju langar að gera meira af
því. Okkur langar til dæmis að búa
til spunahóp þar sem meirihlutinn
er stelpur.“
Námskeiðið hvatning fyrir
konur
Björk segist vonast til að þær
konur sem eru á námskeiðinu hjá
þeim núna skrái sig í áheyrnarpróf
fyrir sýningarhóp Improv Ísland
og þannig jafnist kynjahlutfallið
á sýningum hjá félaginu sem hafa
verð sýndar við miklar vinsældir í
Þjóðleikhúskjallaranum undan-
farin ár yfir vetrartímann og í
Tjarnarbíó á sumrin.
„Um 30 prósent þeirra sem
hafa verið að sýna í sýningarhópi
Improv Ísland síðustu ár eru konur
og það verður að breytast. Ég vona
að námskeiðið verði hvatning fyrir
konur til að mæta í prufurnar og
rústa þeim. Þessi hópur sem við
erum með er ótrúlega flottur. Þetta
eru ótrúlega skemmtilegar og
fyndnar stelpur. Ég er mjög spennt
að sjá framhaldið. Spunasamfélag-
ið er alltaf að stækka. Vonandi eiga
eftir að bætast við fleiri spuna-
hópar sem innihalda meirihluta
stelpna, það væri óskandi.“
Augljóst að
stelpur eru
fyndnar
Spunaleikkonurnar Björk Guðmunds-
dóttir og Steiney Skúladóttir hafa
lært spunaleik í New York og Los
Angeles. Þær halda þessa dagana
námskeið í spuna fyrir konur. Nám-
skeiðið er á vegum Improv Ísland.
Þær Steiney og Björk vilja fjölga konum sem sýna á spunaleiksýningum.
14 KYNNINGARBLAÐ 1 9 . ÁG Ú S T 2 0 1 9 M Á N U DAG U RSKÓLAR OG NÁMSKEIÐ
1
9
-0
8
-2
0
1
9
0
5
:2
0
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
9
A
-7
C
3
4
2
3
9
A
-7
A
F
8
2
3
9
A
-7
9
B
C
2
3
9
A
-7
8
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
6
4
s
_
1
8
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K