Fréttablaðið - 19.08.2019, Side 48
Það þarf að vera
meira svigrúm til
leiks í náminu. Það
myndi auk þess bæta
hegðun.
Það eru líklega mörg börn sem bíða
með eftirvæntingu eftir að skólinn
byrji á nýjan leik.
Grunnskólar verða settir að nýju fimmtudaginn 22. ágúst. Þá hefst skólastarf
að nýju eftir sumarfrí. Gott er að
undirbúa börnin á næstu dögum
því svefnvenjur vilja oft fara for-
görðum yfir sumartímann. Rétt
væri að byrja strax í dag að breyta
svefnhegðun, fara snemma í rúmið
og vakna fyrr. Rúmlega 15 þúsund
nemendur stunda nám í grunn-
skólum Reykjavíkur í vetur, þar af
um 1.500 sem eru að hefja skóla-
göngu í fyrsta sinn.
Það er væntanlega mikil til-
hlökkun og jafnframt kvíði í
hugum barna sem eru að stíga
sín fyrstu skref í skólagöngunni.
Í grunnskóla reynir meira á sjálf-
stæði barna en á leikskóla. Þess
vegna þarf að leiðbeina börnunum
að takast á við nýtt verkefni,
umhverfi og að mæta nýjum and-
litum. Börnin þurfa að læra að fara
eftir fyrirmælum kennara og hlýða
þegar bjallan hringir. Velja þarf
skólatösku við hæfi barnsins, hún
á ekki að vera of stór eða of þung.
Ekki síst þarf foreldri að kenna
barninu góða leið í og úr skóla og
fara yfir leiðbeiningar sem varða
umferðaröryggi. Fyrst í stað skal
fylgja barninu og kenna því um
leið. Veljið örugga gönguleið.
Að byrja í skóla
Samkvæmt norskri rannsókn eru framhaldsskólanem-endur margir mjög stressaðir
í námi. Stúlkur eiga frekar við
streitu að etja en strákar. Útlit er
einn stressþáttur ungmennanna.
Margir upplifa lítinn stuðning
heima fyrir eða finna fyrir aldurs-
árekstrum um ýmsa þætti í lífi
þeirra. Góðir vinir skipta miklu
máli og það þarf að vera tími til að
hitta þá.
Of mikill heimalærdómur eykur
stress og getur komið í veg fyrir
eðlilegt félagslíf. Ef nemandi með
metnað er undir væntingum í
prófum getur það leitt til mikillar
streitu. Þrýstingur frá foreldrum
getur líka aukið stress og dregið úr
námsánægju.
Stuðningur frá kennara er mjög
mikilvægur ekki síður en foreldra.
Það þykir jákvætt að fólk er
opnara fyrir vandamálum sínum
og umræða um streitu er meiri
en áður þekktist. Fyrir 30 árum
var geð heilsa ungmenna ekki í
umræðunni. Hins vegar er viður-
kennt að kröfur ungs fólks til eigin
útlits og hæfileika hafa aukist
mikið með tilkomu samfélags-
miðla.
Unglingar glíma
við stress
Það þarf að huga að andlegri líðan
unglinga á framhaldsskólastigi.
Leikur og nám ætti að vera til staðar
fyrir börn sem eru að byrja í skóla.
Þegar börn byrja í skóla 5-6 ára eru þau ekki orðin nægilega þroskuð til að sitja kyrr í
heila kennslustund. Norskur pró-
fessor sem er sérfræðingur á sviði
líkamsræktar, segist hafa áhyggjur
af mikilli setu ungra barna. „Það
þarf að vera meira svigrúm til
leiks í náminu. Það myndi auk
þess bæta hegðun. Þar utan telur
hann að meiri samvinna ætti að
vera á milli leikskóla og grunn-
skóla. Börnin ættu að fara oftar
í útileiki. Þannig væri hægt að
sameina lærdóm og hreyfingu. Sex
ára börn hafa þörf fyrir hreyfingu.
Kennarar hafa hins vegar svarað
því til að gerðar séu kröfur á þá um
lestrar- og skriffærni barna strax á
fyrsta skólaári. Ekki sé gefinn tími
í skólatöflunni til að leika.
Það er ljóst að í framtíðinni
verður skólastarfið rafrænna. Þess
vegna er mjög mikilvægt að leggja
áherslu á að börnin verði gagnrýn-
in, virk og skapandi. Skólastarfið
þarf að horfa til breytinga í fram-
tíðinni og auka sköpunargleðina.
Framtíðarskólinn verður rafrænn.
Stafræn tækni gerir kleift að búa
til skapandi og nýstárlegt nám.
Framtíðin er stafræn
Viltu gerast vinur JSB?
Danslistarskóli JSB er á facebook
Danslistarskóli JSB er samstarfsaðili
að Frístundakorti Reykjavíkurborgar
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • jsb@jsb.is • www.jsb.is
Nám og kennsla
Danslistarskóli JSB er viðurkenndur af Mennta- og menningarmálaráðuneytinu sem listdansskóli á grunn- og
framhaldsskólastigi. Nánari upplýsingar um nám við skólann er að finna á www.jsb.is undir Danslistarskóli JSB.
Kennslustaður: Danslistarskóli JSB í Reykjavík, Lágmúla 9.
E
F
L
IR
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
Kennsla hefst 4. september
Rafræn skráning er á jsb.felog.is. Nánari upplýsingar í síma 581 3730.
Jazzballett
Skemmtilegt og fjölbreytt dansnám fyrir stelpur
og stráka frá 6 ára aldri.
Í boði eru byrjenda- og framhaldshópar á
aldrinum 6-7 ára, 8-9 ára, 10-12 ára, 13-15 ára
og 16 ára og eldri.
Uppbyggileg dansþjálfun sem veitir nemendum
útrás fyrir dans- og sköpunargleði. Unnið er með
fjölbreytta tónlist í tímum. Frábært dansnám sem
eflir og styrkir nemendur, bæði líkamlega
og andlega.
Forskóli fyrir 3-5 ára
Skemmtilegt og þroskandi dansnám fyrir börn
á aldrinum 3-5 ára. Dansgleði og hreyfifærni
nemenda virkjuð í gegnum dans og leiki.
Kennt er 1x í viku.
Vertu með í vetur!
Innritun fyrir haustönn stendur yfir á www.jsb.is
16 KYNNINGARBLAÐ 1 9 . ÁG Ú S T 2 0 1 9 M Á N U DAG U RSKÓLAR OG NÁMSKEIÐ
1
9
-0
8
-2
0
1
9
0
5
:2
0
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
9
A
-6
8
7
4
2
3
9
A
-6
7
3
8
2
3
9
A
-6
5
F
C
2
3
9
A
-6
4
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
6
4
s
_
1
8
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K