Fréttablaðið - 19.08.2019, Side 57
BÆKUR
Átta sár á samviskunni
Höfundur: Karl Ágúst Úlfsson
Útgefandi: Benedikt
Blaðsíður: 176
Átta sár á samviskunni er einstak-
lega skemmtilegt safn smásagna
sem ætti að falla í kramið hjá f lest-
um. Sögurnar eru átta talsins og er
efni þeirra afar fjölbreytt en þær
eiga það allar sameiginlegt að bera
keim af einstakri kímnigáfu Karls
Ágústs sem hefur kitlað hlátur-
taugar landsmanna síðustu áratugi.
Smásagnaformið virðist henta
Karli vel og í gegnum það tekst
honum að miðla fyndnum og oftar
en ekki fáránlegum hugmyndum
sínum á einfaldan og skemmtileg-
an hátt. Þannig byggjast sögurnar
oftar en ekki á einni spaugilegri
pælingu eða einni undarlegri svip-
mynd sem maður getur séð fyrir sér
að skjóti upp í kolli höfundar sem
síðan skrifar söguna utan um hana.
Þannig má sjá fyrir sér að sagan
Abraham og Ísak í Ikea hafi orðið til
en hún byggist í raun öll í kringum
þessa einu mynd sem lesandi sér
mjög skýrt fyrir sér af öldungnum
Abraham sem byggir altari í Ikea-
versluninni með hjálp sonar síns
Ísaks. Sem dæmi af hinum pólnum
mætti nefna söguna Trúnó sem
fjallar um öllu alvarlegra málefni,
alkóhólisma, á nýstárlegan og
skemmtilegan hátt.
Það mætti segja að þessar tvær
ólíku sögur séu best heppnuðu
sögur safnsins sem sýnir fjölhæfni
höfundarins. Hinar sögurnar bera
frjóu ímyndunaraf li hans einnig
vitni og skapar hann aðalpersónur
af ýmsum gerðum. Þannig kynn-
ist lesandinn til dæmis sjómanni
með söfnunaráráttu, meðvirkum
maraþonhlaupara og trúuðum
lagermanni.
Sögurnar geta verið afar snið-
ugar en í þeim öllum leynist alvar-
legur undirtónn. Sumar eru marg-
ræðar og skilja lesanda jafnvel eftir
í óvissu. Stíllinn er einfaldur og lát-
laus sem hentar gamansömum text-
anum vel og skapar gott f læði við
lesturinn. Allt í allt mynda þessar
átta sögur heildstætt og skemmti-
legt verk sem hver sem er ætti að
geta haft gaman af að lesa.
Óttar Kolbeinsson Proppé
NIÐURSTAÐA: Vel
heppnað smásagna-
safn með fyndnum
og þægilegum
sögum. Umfjöllun-
arefnið getur verið
afar hlægilegt en
þó kveður oftast við
alvarlegan undir-
tón. Hver sem
er ætti að geta
fundið alla-
vega eina
sögu við sitt
hæfi í þessu
fjölbreytta
safni.
Alvarlegur
undirtónn
Nýtt gallerí, Stokkur Art Galler y, er nýopnað á Stokkseyri. Eigendur þess
eru Stefán Hermannsson og Arn-
fríður Einarsdóttir sem hafa verið
búsett á Eyrarbakka um skeið. Þau
eru mikið áhugafólk um menningu,
listir, fólk og samfélag.
Stokkur Art Gallery stendur
einnig fyrir viðburðum eins og
tónleikum, upplestrum úr bókum,
myndlistarnámskeiðum og ýmis-
legu öðru sem eigendum þess dettur
í hug.
Galleríið hefur starfsemi með
einkasýningu Margrétar Lofts-
dóttur. Þar verða útskriftarverk
Margrétar úr University of Cumbria
ásamt nýjum verkum. Sýningin
mun standa til 18. september. Yfir-
skrift hennar er Framtíðin.
Margrét Loftsdóttir (f. 1992) er
nýkomin heim úr námi frá Bret-
landi. Hún lauk diplómagráðu frá
Málaradeild Myndlistaskólans í
Reykjavík 2018, í framhaldi af því
bætti hún við sig BA-gráðu (Fine
Art) frá University of Cumbria.
Stokkur á Stokkseyri
Flaggað við Stokk Art Gallery á Stokkseyri.
Reykjavík • Mörkin 3 • 563 6900 | Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900
MÖGNUÐ
TILBOÐ
NÝ
VERSLU
N
Í MÖRK
INNI 3
REYKJA
VÍK
OG UND
IRHLÍÐ
2
AKURE
YRI
OPNUNAR
MEÐAN BIRGÐIR ENDAST
19. ágúst 2019 • B
irt m
eð fyrirvara um
breytingar, innsláttarvillur og m
yndabrengl
MEÐAN BIRGÐIRENDAST
50%
Afsláttur
LENOV
O
Yoga 5
30 me
ð i5
og 25
6GB S
SD dis
k
119.9
90
VERÐ
ÁÐUR
139.9
90
MEÐAN
BIRGÐ
IR
ENDAST
20.000
Afsláttu
r
VEISLA
ALLA V
IKUNA
Fjöldi o
pnunar
tilboða
og ljúff
engur L
urkur f
rá
Emmes
sís í bo
ði:)
LENOV
O
Yoga C
N23 m
eð
snerti
skjá
24.99
5
VERÐ
ÁÐUR
49.99
0
MEÐAN B
IRGÐIR
ENDAST
50.000
Afsláttur
AFSLÁTTURAF YFIR 1000 VÖRUM
ALLT AÐ
50%
LEGION
Y530
Leikja
fartölv
a, i5, 1
6GB
minni
og lei
kjaskj
ákort
149.9
90
VERÐ
ÁÐUR
199.9
90
AFSLÁT
TUR AF
FARTÖLV
UM
ALLT AÐ
60
ÞÚSUND
SNERTISKJÁR
M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 21M Á N U D A G U R 1 9 . Á G Ú S T 2 0 1 9
1
9
-0
8
-2
0
1
9
0
5
:2
0
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
9
A
-9
E
C
4
2
3
9
A
-9
D
8
8
2
3
9
A
-9
C
4
C
2
3
9
A
-9
B
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
6
4
s
_
1
8
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K