Fréttir - Eyjafréttir - 10.04.2013, Qupperneq 2
°
°
Eftirprentun, hljóðritun, notkun ljósmynda og
annað er óheimilt nema heimilda sé getið.
Útgefandi: Eyjasýn ehf. 480278-0549.
Ritstjóri: Júlíus Ingason - julius@eyjafrettir.is.
Blaðamenn: Ómar Garðarsson - omar@eyjafrettir.is.
og Sæþór Þorbjarnarson. - sathor@eyjafrettir.is.
Ábyrgðarmenn: Júlíus Ingason og Gísli Valtýsson.
Prentvinna: Eyjasýn/ Eyjaprent.
Ljósmyndir: Óskar Pétur Friðriksson og blaðamenn.
Aðsetur ritstjórnar: Strandvegur 47,
Vestmannaeyjum.
Símar: 481 1300 og 481 3310.
Netfang: frettir@eyjafrettir.is.
Veffang: www.eyjafrettir.is
EYJAFRÉTTIR koma út alla miðvikudaga. Blaðið er
selt í áskrift og einnig í lausasölu á Kletti, Tvistinum,
Toppn um, Vöruval, Herjólfi, Flughafnar versluninni,
Krónunni, Ísjakanum, Kjarval og Skýlinu.
EYJAFRÉTTIR eru prentaðar í 2000 eintökum.
EYJAFRÉTTIR eru aðilar að Samtökum bæjar-
og héraðsfréttablaða.
FRÉTTIREYJA
2 Eyjafréttir / Miðvikudagur 10. apríl 2013
Herjólfur :: Fargjöld kosta sitt:
Ekki eins há og
haldið er fram
:: Kostar 13.440 krónur fyrir
fjögurra manna fjölskyldu að fara í
Þorlákshöfn fram og til baka ::
4.550 krónur í Landeyjahöfn
Eins og alltaf eru samgöngumál
ofarlega á baugi hjá Vestmanna -
eyingum og fá stjórnmálamenn
sem koma í heimsókn að kynn -
ast því. Stóra málið er Landeyja -
höfn en fargjöld með Herjólfi
brenna líka á fólki. Sérstaklega
svíður hvað kostar að sigla í Þor-
lákshöfn. En umræðan er að
nokkru leyti á villigötum og eru
ótrúlega háar upphæðir nefndar
í því sambandi.
Samkvæmt upplýsingum frá Herjólfi
kostar fjögurra manna fjölskyldu að
fara í Þorlákshöfn fram og til baka
26.880 á fullu verði en 16.128 krónur
með 40 prósent afslætti sem er í
boði. Fullt fargjald í Landeyjahöfn
er 9.100 krónur en 5460 krónur með
afslætti.
„Ljóst er að það kostar meira að
ferð ast með fjölskylduna milli Vest-
mannaeyja og Þorlákshafnar þann
tíma sem við höfum þurft að sigla
þangað, samanborið við siglingu til
Landeyjahafnar en umræðan er oft
ansi ósanngjörn,“ segir Gunnlaugur
Grettisson, rekstrarstjóri Herjólfs
sem að beiðni Eyjafrétta tók saman
hver kostnaðurinn raunverulega er.
Munar miklu hvort greitt er fullt
fargjald eða hvort fólk nýtir sér 40
prósenta afsláttinn. Til að geta nýtt
afsláttinn þarf að greiða 34.500
krónur fyrir afsláttarkort og fá við
það 57.500 króna inneign. Mörgum
finnst það mikið en sama kerfi hefur
verið við lýði í eina tvo áratugi.
Gunnlaugur tók saman tölur um
hvað það kostar fjögurra manna fjöl-
skyldu, með átta og tíu ára börn, að
fara fram og til baka með bíl og
klefa. Annars vegar í Þorlákshöfn og
hins vegar í Landeyjahöfn með og án
afsláttar. Í Landeyjahöfn er ekki gert
ráð fyrir klefa.
Gunnlaugur gerði meira, því hann
reiknaði líka út heildarkostnaðinn
með bensíni og er munurinn nálægt
50 prósentum. Kostar 18.656 krónur
að fara í Þorlákshöfn og 12.250
krónur í Landeyjahöfn.
Fargjöld fyrir fjögurra manna
fjölskyldu með Herjólfi
Þorláksh. Land eyja h.
Fullorðinn 3.360 1260
Yngri en 12 ára 0 0
Bifreið 3.360 2.030
2ja manna klefi 3.360 0
Alls 13.440 4.550
Fram og til baka 26.880 9.100
Afsláttarkort-40% 16.128 5.460
Frá Þorlákshöfn til Reykjavíkur eru
102 kílómetrar en 274 kílómetrar frá
Landeyjahöfn. Kostnaður, ef reiknað
er með 10 lítra bensíneyðslu á hverja
100 km er þá 2.528 kr. ef keyrt er frá
Þorlákshöfn en 6.790 kr. frá Land -
eyjahöfn.
Alls er kostnaður við ferð í gegnum
Þorlákshöfn því 18.656 krónur en
12.250 ef farið er í gegnum Land -
eyjahöfn.
Loks þarf að hafa í huga að það eru
u.þ.b. 71 km til Þorlákshafnar (aðra
leiðina) en bara 24 til Landeyja -
hafnar, þ.e. 3x lengra í Þorlákshköfn.
Upptökumannvirki Vestmannaeyjahafnar lítið notuð:
Endurbætur kostuðu
370 milljónir króna
:: Tekjurnar 7,4 milljónir á tveimur árum :: 13 skip
verið tekin upp
Í júlí næstkomandi verða tvö ár
frá því að upptökumannvirki
Vestmannaeyjahafnar, Eyja -
slippsins, voru tekin í notkun
eftir viðgerð og endurbætur. Var
þar verið að svara kalli útgerðar -
manna í Vestmannaeyjum sem
sögðu ófært að hér væri ekki
búnaður til að taka upp skip.
Fleiri sáu hag í því að verkefni
við viðhald og viðgerðir á
skipum færu ekki annað.
Niðurstaðan var að endur byggja
lyftuna og fóru 370 milljónir í
verkið. En áhugi útgerðarmanna
reyndist minni en ætlað var og
hafa fá skip verið tekin upp
tekjurnar langt undir því að
réttlæta fram kvæmdina.
Þetta hefur verið rætt í fram -
kvæmda- og hafnarráði og á síðasta
fundi greindi Ólafur Snorrason,
framkvæmdastjóri umhverfis- og
framkvæmdasviðs, frá stöðu mála
og frá svörum sem fengust hjá út-
gerðarmönnum í Vestmannaeyjum
vegna þjónustu Eyjaslippsins. Var
Ólafi falið að undirbúa kynningu á
þjónustu Eyjaslippsins meðal við -
skipta manna innanbæjar og utan.
Tekur tíma að koma sér
aftur inn á kortið
Eyjaslippurinn var tekinn í notkun í
júlí 2011. Frá þeim tíma hafa verið
tekin upp 13 skip og tekjurnar verið
7,4 milljónir. „Það er ljóst að nýt -
ing in hefur ekki verið með þeim
hætti sem vonast var til en gert var
ráð fyrir að taka upp tólf skip á ári,“
sagði Ólafur í samtali við Eyjafrétt -
ir. „Þess má þó geta að alltaf mátti
reikna með að einhvern tíma tæki
að koma sér aftur inn á kortið hjá
útgerðum utan Vestmannaeyja eftir
að slipp urinn hafði verið ónothæfur
í þetta langan tíma,“ bætti hann við.
Hann sagði að í könnuninni hefðu
ekki komið fram afgerandi ástæður
hjá útgerðarmönnum hvers vegna
þeir nota ekki Eyjaslippinn. „Sumir
sögðu að verð og þjónusta væri
sambærileg við aðra staði á meðan
öðrum fannst verðið sambærilegt en
ekki þjónusta á meðan enn öðrum
þótti verð ekki sambærilegt en
þjónusta sambærileg. Einnig kom
fram að verð á annarri þjónustu sem
fylgir slipptöku sé ekki sam -
keppnis hæft. Flestir útgerðarmenn
reiknuðu með að nýta sér þjónustu
slippsins í framtíðinni en fram kom
að vöntun á sérfræðiþjónustu væri
meðal þeirra atriða sem litið væri til
þegar ákveðið er hvar skip eru tekin
upp,“ sagði Ólafur.
Mikil vonbrigði
Hann nefndi líka að kannski hefði
góð verkefnastaða iðnaðarmanna í
Vestmannaeyjum eitthvað með
þetta að gera en niðurstaðan sé al-
gjörlega óviðunandi. „Í öllu falli er
ljóst að það eru mikil vonbrigði ef
heimamenn nýta sér ekki þessa
þjónustu sem Vestmannaeyjahöfn
býður upp á. Alls voru lagðar 370
milljónir í að lagfæra upptöku -
mannvirkin til að þjónusta hér skip
og báta. Háværar raddir voru uppi
um þá hneisu að ekki væri hægt að
taka upp skip í stærstu verstöð Ís-
lands. Í sumum tilfellum hefur ekki
einu sinni verið leitað eftir þessari
þjónustu hér í Eyjum heldur skipin
farið beint til Reykjavíkur eða
Hafn arfjarðar í slipp með til heyr -
andi kostnaði sem fylgir siglingu og
uppihaldi starfsmanna,“ sagði
Ólafur.
Getur tekið upp 17 skip
í Eyjaflotanum
Skip, sem hægt er að taka upp í
Vestmannaeyjum, eru: Kristbjörg
VE, Portland VE, Glófaxi VE, Kap
II VE, Frár VE, Stígandi VE,
Brynjólfur VE, Maggý VE, Suðurey
VE, Bylgja VE, Drangavík VE,
Lóðsinn VE, Vestmannaey VE,
Bergur VE, Bergey VE, Gullberg
VE og Dala-Rafn VE.
Af þessum skipum hafa Krist -
björg VE, Portland VE, Glófaxi VE,
Kap II VE, Frár VE, Maggý VE,
Drangavík VE, Lóðsinn og Dala-
Rafn VE verið tekin upp og sum
oftar en einu sinni. Það er þó enga
uppgjöf að heyra á Ólafi. „Suðurey
á pantað 3. júní og verið er að
skoða með Bylgju og Kap II. Auk
þess hefur Skandia verið tekin upp
hér til viðgerða. Allt þetta hefur
gengið áfallalaust fyrir sig og ekki
staðið á slippnum og teljum við
verðið vera sambærilegt og annars
staðar. Ég vil fá svör frá fleiri út-
gerðarmönnum hér. Á næstunni er
fyrirhugað að kynna slippinn fyrir
útgerðarmönnum á Hornafirði, í
Þorlákshöfn og jafnvel víðar,“ sagði
Ólafur að endingu.
Bergey VE er eitt þeirra skipa sem hægt er að taka upp í skipalyftuna en Jón Vídalín VE er of stór.
Aufúsugestir í Herjólfsdal
Þrjár álftir hafa dvalið í Herjólfsdal undanfarna daga. Álftirnar hafa
notið veðurblíðunnar í Eyjum, rölt um golfvöllinn, étið mikið og
svamlað í tjörninni í Herjólfsdal og hafa fjölmargir gert sér ferð í Dalinn
til að kíkja á þessa aufúsugesti. Ingvar Sigurðsson, hjá Náttúrustofu
Suðurlands, segir það þekkt að álftir dvelji hér í Eyjum um skamma
hríð en í fæstum tilvikum dvelja þær hér sumarlangt.
ÓMAR GARÐARSSON
omar@eyjafrettir. is
ÓMAR GARÐARSSON
omar@eyjafrettir. is
Háværar raddir voru uppi um þá hneisu að
ekki væri hægt að taka upp skip í stærstu
verstöð Íslands. Í sumum tilfellum hefur ekki
einu sinni verið leitað eftir þessari þjónustu
hér í Eyjum heldur skipin farið beint til
Reykjavíkur eða Hafnarfjarðar í slipp með
tilheyrandi kostnaði sem fylgir siglingu og
uppihaldi starfsmanna.
”