Fréttir - Eyjafréttir - 10.04.2013, Síða 6
°
°6 Eyjafréttir / Miðvikudagur 10. apríl 2013
Stjórn ÍBV-íþróttafélag :: Þau tíðkast nú hin breiðu spjótin:
Fimm af sjö stjórnarmönnum
í hár saman
:: Annar armurinn sakar hinn um að ganga erinda deilda á kostnað heildarhagsmuna
:: Hinn segir ágreining um framkvæmd þjóðhátíðar.
Komin er upp skrýtin staða í
stjórn ÍBV-íþróttafélags þar sem
fimm af sjö stjórnarmönnum
takast opinberlega á. Formaður
og gjaldkeri ásaka aðra í
stjórninni um að ganga erinda
annað hvort fótbolta eða hand-
bolta á kostnað heildarhags -
muna félagsins. Varaformaður
og meðstjórnandi vísa þessu á
bug og segja ágreining í
stjórninni um framkvæmd þjóð -
hátíðar.
Í yfirlýsingu frá formanni og gjald-
kera í gær segir að við þessar
aðstæður treysti þau sér ekki til að
halda áfram í stjórninni. Varafor-
maður og meðstjórnandi vísa þessu
til föðurhúsanna og í yfirlýsingu
segja þeir ágreininginn vera um
framkvæmd þjóð hátíðar. Því svarar
formaður þjóð hátíðar nefndar fullum
hálsi og segir gífuryrði og sleggju -
dóma sjaldan hjálpa og skella oft á
endanum í andliti eigenda.
Línur hljóta að skýrast á aðalfundi
félagsins í næstu viku þar sem
reikningar verða lagðir fram. Þetta
upphlaup í stjórninni er félaginu ekki
til framdráttar en það má eflaust að
einhverju leyti rekja til erfiðrar
fjárhagsstöðu félagsins sem hefur átt
í erfiðleikum með að standa við
fjárhagslegar skuldbindingar frá
síðasta hausti. Þar koma líka fram
tölur um afkomu þjóðhátíðar og
upplýst verður hvort hún er að skila
viðunandi afkomu fyrir félagið.
Heildarhagsmunir að leiðar -
ljósi
Aðalfundur félagsins verður 18. apríl
nk. og þangað til í gær var ekki
annað að sjá en að hann kæmi til
með að fara fram í ró og spekt. Búið
að skipa í þjóðhátíðarnefnd og nýr og
öflugur framkvæmdastjóri kominn
til starfa. En eindrægni og friður var
ekki til staðar í aðalstjórn og sauð
upp úr í gær þegar Jóhann Pétursson,
formaður ÍBV-íþróttafélags undan-
farin ár, og Guðný Hrefna Einars -
dóttir, sem hefur lengst af starfað
sem gjaldkeri í stjórninni, gáfu út að
þau hefðu ákveðið að gefa ekki kost
á sér til áframhaldandi starfa. Þau
segja ástæðuna vera að ekki ríki full -
ur vilji innan stjórnar að gæta fyrst
og síðast að heildarhagsmunum fé -
lags ins umfram sérhagsmuni deilda.
Í yfirlýsingu Jóhanns og Guðnýjar
Hrefnu til félaga í ÍBV-íþróttafélagi
segjast þau lengi hafa starfað fyrir
félagið og komið að margs konar
verkefnum fyrir það í gegnum tíðina.
Guðný frá 2003 og Jóhann sem for-
maður frá 2005. „Leiðarljós okkar í
því starfi hefur verið að gæta að
heildarhagsmunum félagsins, hlúa að
starfinu og öllum deildum jafnt, án
þess að gengið sé á hlut annarra,“
segja þau og bæta við:
„Við höfum, í gegnum tíðina,
starfað með mörgu góðu fólki í aðal-
stjórn sem hefur deilt þessum mark-
miðum með okkur. Margar ákvarð -
anir hafa verið teknar og fordæmi
sett í góðri samvinnu allra aðalstjórn-
armanna með málefnalegri umræðu
og aðalstjórn því notið trausts og
viðurkenningar alls félagsins.“
Þau segja stjórnarmenn verða að
bera heildarhagsmuni félagsins fyrir
brjósti þó áhugi fólks sé annaðhvort
á fótbolta eða handbolta. „Aðalstjórn
getur aldrei orðið sameiningartákn
félagsins að öðrum kosti,“ segja þau.
Sérhagsmunir látnir ráða
Þau segja síðasta starfsár hafi ekki
verið með þeim hætti, aðalstjórn
félagsins hafi ekki verið það sam -
einingartákn og vettvangur sam vinnu
og samstarfs sem stjórnin á að vera.
„Að mati okkar ríkir ekki fullur vilji
meðal allra aðalstjórnarmanna að
gæta fyrst og síðast að heildar -
hagsmunum félagsins umfram sér -
hags muni deilda.“
Bæði segjast þau hafa haft áhuga á
að sitja lengur í stjórninni en ástand -
ið sé óviðunandi, jafnt fyrir aðal-
stjórn sem og félagið í heild sinni.
„Eðlilegt er, ef gæta á að sérhags -
munum deilda í aðalstjórn umfram
heildarhagsmuni félagsins, þá sé
aðalstjórn skipuð mönnum og
konum úr viðkomandi deildum sem
koma þá að starfinu á þeim for -
sendum. Við undirrituð erum ekki
reiðubúin til að gefa kost á okkur til
endurkjörs í aðalstjórn á þessum
grundvelli,“ segja Jóhann og Guðný
sem eru mjög sátt við hvernig til
hefur tekist í stjórnartíð þeirra.
Margt hafi áunnist, mikil uppbygg -
ing hafi átt sér stað, t.a.m. risið
knattspyrnuhús og stúka við aðalvöll
félagsins. Þá hefur verið lagður
sterkur grunnur að góðri þjóðhátíð
með markvissri uppbyggingu í
Herjólfsdal. „Einna stoltust erum
við þó af því sterka barna- og ung -
linga starfi sem félagið hefur lagt
áherslu á undanfarin ár. Er ÍBV þar í
fararbroddi á landsvísu og varð á
síðasta ári fyrirmyndarfélag ÍSÍ.
Til framtíðar teljum við mikil -
vægast að vinna að skuldalækkun
félagsins en sú vinna er hafin, m.a.
með aðkomu Vestmannaeyjabæjar.
Við teljum hins vegar að það verk -
efni verði mjög erfitt ef heildar -
hagsmunir félagsins eru ekki
leiðarljósið innan aðalstjórnar.
Við vitum að uppbygging félags
eins og ÍBV-íþróttafélags gerist ekki
nema vegna mikillar og fórnfúsar
vinnu margra sem leggja mikið á sig
og viljum að lokum þakka öllu því
frábæra fólki sem við höfum unnið
með hjá ÍBV-íþróttafélagi í gegnum
tíðina. Við erum að sjálfsögðu ekki
hætt að leggja þar hönd á plóg þó á
öðrum vettvangi verði,“ segja Guðný
Hrefna og Jóhann í niðurlagi yfir-
lýsingar sinnar.
Páll Magnússon og Stefán Örn Jónsson:
Ágreiningur um framkvæmd
þjóðhátíðar ekki deildir
Stjórnarmennirnir, Páll Magnús-
son, varaformaður og Stefán
Örn Jónsson vísa á bug full -
yrðingum Jóhanns og Guðnýjar
Hrefnu. Segja rétt að talsvert
hafi skort á eindrægni innan
stjórnarinnar á síðasta starfsári.
Þær deilur hafi þó ekki snúist
um hagsmunabaráttu milli ein-
stakra deilda innan félagsins,
eins og skilja megi á yfirlýsingu
sem Guðný og Jóhann sendu frá
sér. Ágreiningur sé um þjóð -
hátíð en ekki deildir.
„Það er rétt hjá þeim Jóhanni og
Guðnýju Hrefnu að talsvert hefur
skort á eindrægni innan stjórnar
ÍBV-íþróttafélags á síðasta starfsári.
Þær deilur hafa þó ekki snúist um
hagsmunabaráttu milli einstakra
deilda innan félagsins, eins og
skilja má af fyrrgreindri yfirlýsingu,
- enda fara hagsmunir deildanna
saman að okkar mati en eru ekki
andstæðir,“ segja Páll og Stefán.
„Gagnrýni okkar tveggja innan
stjórnarinnar hefur fyrst og fremst
beinst að þeirri stefnu sem tekin
hefur verið með Þjóðhátíð Vest -
mannaeyja undanfarin ár, sem er
mikilvægasti einstaki þátturinn í
fjármögnun á starfsemi ÍBV-
íþróttafélags. Segja má að þessi
ranga stefna, að okkar mati, hafi
náð ákveðnu hámarki í fyrra þegar
aðsókn og tekjur af þjóðhátíð voru
með miklum ágætum en fjárhags -
legur ávinningur ÍBV þrátt fyrir það
sáralítill – og miklu minni en var
t.d. kynntur á almennum félags-
fundi í vetur. Þetta mun allt koma
nánar fram á aðalfundi félagsins
innan tíðar.
„Um þetta hefur ágreiningurinn
staðið, eins og lesa má í fundar -
gerðum stjórnarinnar, en ekki um
átök milli handbolta og fótbolta
sem við könnumst ekki við að hafi
verið á vettvangi stjórnar.
Það er síðan fremur dapurlegt að
stjórnarformaður ÍBV-íþróttafélags
skuli væna meðstjórnarmenn sína
um að hafa ekki heildarhagsmuni
félagsins að leiðarljósi í störfum
sínum,“ eru lokaorð Páls og
Stefáns.
Þjóðhátíð er ein helsta tekjulind félagsins. Þessi mynd var tekin á setningu hátíðarinnar í fyrra.
Páll Scheving Ingvarsson, for-
maður þjóðhátíðarnefndar,
svarar nafna sínum Magnússyni
og Stefáni Jónssyni fullum hálsi
en hvetur um leið til málefna -
legrar umræðu um málefni
félagsins sem hann segist ekki
óttast.
„Þungar ávirðingar eru bornar á
þjóðhátíðarnefnd í yfirlýsingu Páls
Magnússonar, varaformanns ÍBV-
íþróttafélags og Stefáns Jónssonar,
fulltrúa í stjórn félagsins. Stundum
bera tilfinningar skynsemina ofur -
liði. Það er þekkt í mannlegum
samskipt um. Gífuryrði og sleggju -
dómar hjálpa sjaldan og skella oft á
endan um í andliti eigenda. Fram -
undan er aðalfundur félagsins. Ég
hvet félagsmenn til þess að fjöl-
menna á fundinn og taka þátt í
málefnalegri umræðu. Það gagnast
félaginu best. Ég óttast ekki slíka
umræðu,“ segir Páll.
Páll Scheving, for-
maður þjóhátíðar -
nefndar:
Sérstök fram-
setning hjá
Páli og Stefáni
Gagnrýni okkar tveggja innan stjórnarinnar
hefur fyrst og fremst beinst að þeirri stefnu
sem tekin hefur verið með Þjóðhátíð Vest-
mannaeyja undanfarin ár, sem er mikilvæg -
asti einstaki þátturinn í fjármögnun á
starf semi ÍBV-íþróttafélags. Segja má að
þessi ranga stefna, að okkar mati, hafi náð
ákveðnu hámarki í fyrra þegar aðsókn og
tekjur af þjóðhátíð voru með miklum
ágætum en fjárhagslegur ávinningur ÍBV
þrátt fyrir það sáralítill.
”
ÓMAR GARÐARSSON
omar@eyjafrettir. is
Eðlilegt er, ef gæta á
að sérhagsmunum
deilda í aðalstjórn
umfram heildar -
hagsmuni félagsins,
þá sé aðalstjórn
skipuð mönnum og
konum úr viðkom -
andi deildum sem
koma þá að starfinu
á þeim forsendum.
Við undirrituð erum
ekki reiðubúin til að
gefa kost á okkur til
endurkjörs í aðal-
stjórn á þessum
grundvelli
”