Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 10.04.2013, Qupperneq 11

Fréttir - Eyjafréttir - 10.04.2013, Qupperneq 11
Eyjafréttir / Miðvikudagur 10. apríl 2013 11 ° ° að gefa út bók. Fór í tölvunám til að geta unnið bókina sjálf og brotið um efnið. Og hún er með reynsluna síðan hún hélt úti tískuþætti í Morgunblaðinu og hugmyndaflugið skortir ekki. „Þetta á að vera prjónabók en samt engin venjuleg bók. Í henni verða pistlar þar sem ég segi söguna á bak við verkin mín, gef ráð og líka mataruppskriftir. Svo er það draum - urinn að þessi búð mín geti borið sig en minn vaxtarbroddur er í gegnum netið,“ segir Ásdís sem kemur svo að þriðja verkefninu. Ásdís tekur myndir úti í náttúrunni, myndir sem hún vinnur úr og lætur prenta á efni sem hún saumar svo úr tískufatnað. „Það er fyrirtæki í Bandarík junum sem ég komst í sam- band við í gegnum netið sem prentar á efnið fyrir mig, einnig hef ég fengið að nota myndir frá Tóa Vídó sem verða svo að silkiblússum“ segir Ásdís og sýnir blaðamanni sýnis - horn. Útkoman er sérstök en falleg. Vestmannaeyjar á vorin og London á haustin Þú nefnir London og Vestmannaeyjar sem eiga ekki margt sameiginlegt. „Hér er best að vera á vorin þegar náttúran er að vakna og London er frábær á haustin. Það er kannski klisja en staðreynd engu að síður að umhverfið og náttúran hefur áhrif á það sem maður er að gera. Þess vegna er gott fyrir mig að vera hér. Í London eru það byggingalistin, sagan og söfnin sem heilla, báðir staðir veita mér innblástur.“ Nú gætu margir haldið að þú værir í hálfgerðri útlegð hér í Eyjum. Er það svo? „Ég hef flækst víða, átt lögheimili á 25 stöðum og það hélt áfram eftir að ég gifti mig. Vest - mannaeyjar eru eini staðurinn þar sem ég á heima. Frá því að ég hætti að koma hingað á sumrin í vinnu um tvítugt og þangað til ég flutti hingað fyrir 16 mánuðum hafði ég ekki heimsótt Eyjar nema í örfá skipti. Mér fannst alltaf svo erfitt að fara héðan, það reif upp gömlu sárin. Hér líður mér vel. Ég er kannski ekki mikið úti á meðal fólks en þó að ég sé ein er ég ekki ein. Tölvutæknin sér til þess. Þetta hentar mér líka ágætlega. Þegar ég var krakki gat ég verið ein og út af fyrir mig. Átti til dæmis minn stað í Helgafelli sem ég sótti í,“ segir Ásdís sem kvartar ekki yfir viðtökunum í Eyjum. Ákveðin í að koma aftur „Fólk brosir til mín og stundum ímynda ég mér að fólk sé spá hvað í ósköpunum ég sé að gera hingað! Sjálf horfi ég á fólk og spái í hverra manna það sé. Vestmannaeyjar eru draumur og ekki draumur og héðan fór ég ung en ákveðin í að einn dag kæmi ég aftur til að lifa það upp sem mér fannst slitna þegar ég fór. Við hjónin þurftum að endurstilla okkur eftir áföll í kjölfar hrunsins og þá var lag að koma hingað. Hér er heimili mitt í dag og það er ekkert útibú frá einhverju öðru heimili. Hér er ég líka ég sjálf eins og ég er þegar ég er í London.“ Þegar Ásdís er spurð út í reksturinn á sjálfri búðinni segir hún að vissu - lega mætti salan vera meiri en hún á von á að hún aukist með hækkandi sól og fleiri ferðamönnum. „Það gekk vel hjá mér í fyrrasumar og núna er ég á betri stað þannig að ég er bjartsýn á sumarið. Öll viljum við lifa á ferðamönnum og ég held að búðin mín sé góð viðbót við það sem fyrir er og ég er ekki að taka frá öðrum. Þú þarft alltaf að sanna þig og ég lít á þetta sem langhlaup. Einnig eiga margir heimamenn eftir að kíkja til mín en þeir koma,“ segir Ásdís. Heimavinnandi í nokkur ár Eins og áður hefur komið fram hefur Ásdís komið ótrúlega víða við á ævinni en þrítug kúplaði hún algjör- lega um. „Þá eignaðist ég mitt fyrsta barn og á þrjú börn á fimm árum, allt stelpur og var heimavinnandi hús- móðir í nokkur ár. Þannig var ég gamaldags en um leið svolítið öðru vísi sem er hluti af því að vera sjálf- stæður. Ég lagði þó mitt til heimil- isins með því meðal annars að sauma öll föt og sjá um börn og bú,“ segir Ásdís sem enn hefur ekki náð að koma eiginmanninum, Guðmundi Sigurbjörnssyni, til Eyja. Dæturnar eru Aðalheiður Steina 24 ára, Jóna Margrét 23 ára og Berglind Ósk 19 ára. Frá því hún flutti hefur hún verið hér ein, dæturnar dreifðar um landið en eiginmaðurinn í Noregi. „Hann er kominn til Íslands en næsta verkefni er að koma honum til Eyja. Hann segir öllum að hann eigi lögheimili í Vestmannaeyjum þannig að hann er á leiðinni,“ segir Ásdís sem óttast ekki að þeim eigi ekki eftir að líða vel í Eyjum. „Við erum bæði lands - byggð arfólk, hann frá Akureyri þar sem við bjuggum í nokkur ár og ég frá Vestmannaeyjum. Ég er komin í Kvenfélagið Líkn, m.a.s. í stjórn þar sem ég þriðji ættliðurinn í félaginu.“ Fellur ekki oft verk úr hendi Eftir að dæturnar komust á legg hófst nýr kafli í lífi Ásdísar sem hún segir að muni vara þangað til dæturnar koma með barnabörn handa henni að dekra við. „Ég upplifi þetta ekki ósvipað og fram að þrítugu, áður en ég gifti mig, ákveðið frjálsræði. Dæturnar flognar úr hreiðrinu og ég get gert það sem mig langar til. Ég hef líka nóg að gera við að prjóna lopapeysur, hanna og sinna viðskipt - unum. Þetta er það sem ég vil gera og hér líður mér vel,“ segir hún og þegar litið er yfir vörurnar í versl - uninni er ekki að sjá að henni falli oft verk úr hendi. Smáar Gæðavagn til sölu Toyota Corolla, árgerð 2005, ekinn 120 þúsund, reyklaus. Verð: Tilboð. Upplýsingar í s. 481-1009. --------------------------------------------- Íbúð eða herbergi óskast Óska eftir herbergi eða íbúð til leigu, helst í eða við miðbæinn. Upplýsingar í síma 869-8436. --------------------------------------------- Til sölu VW Caravelle 2005 dísel. 9 manna, m/hjólastóla aðgengi. Ná- nari uppl. í s. 694 2117 eftir kl: 13. --------------------------------------------- Óska eftir nothæfri borðtölvu Þarf bara sjálfa tölvuna, ekki fyl- gihluti. Upplýsingar í s. 861-1541. --------------------------------------------- Nennir þú ekki í sund En þráir að eiga heitan pott. Nú er tækifærið, æðislegur kanadískur rafmagnspottur til sölu. 6 manna. Tugir nuddstúta. Tröppur og auka - sía fylgja með. Tveggja ára gamall, alltof lítið notaður og geysilega vel með farinn. Nýr á 1368 þús, þessi fer á hálfvirði. Uppl. í s. 861-8901. --------------------------------------------- Hjólkoppar tapaðir Tveir hjólkoppar af Honda Jazz hafa tapast.Hafi einhver fundið þá vinsamlega hafið samband í síma 891 8016. --------------------------------------------- Herbergi óskast Óska eftir herbergi til leigu, skoða allt, upplýsingar gefur Hjalti í síma 697-6960. AA fundir eru haldnir sem hér segir að Heimagötu 24: Miðvikudagur: kl.20.30 Fimmtudagur: kl.20.30 Föstudagur: kl. 20.30 Laugardagur: kl.20.30 opinn fundur Sunnudagur: kl.11.00 Athugið, allir fundir reyklausir Móttaka nýliða hálfri klst. fyrir hvern auglýstan fundartíma. Ath.símatíma okkar, sem eru hvern dag, hefjast 30 mín. fyrir ákveðinn fundartíma og eru 2 klst. í senn. Sími 4811140 Er áfengi vandamál í þinni fjölskyldu? Al-Anon fyrir ættingja og vini alkóhólista Fundir á þriðjudögum kl. 20.30 Byrjendafundir kl. 20.00 að Heimagötu 24 Tónfundir Tónlistarskólans Haldnir í skólanum alla miðvikudaga kl. 17.30. Allir velkomnir Framlagning kjörskrár vegna alþingiskosninga 27. apríl 2013 Kjörskrá mun liggja frammi almenningi til sýnis á bæjarskrifstof - unum í Ráðhúsinu frá og með 17. apríl til og með föstudagsins 26. apríl á almennum skrifstofutíma. Kjörskráin miðast við skráð heimilisfang hjá þjóðskrá 23. mars 2013. Athugasemdir við kjörskrána berist bæjarstjórn Vestmannaeyja Ráðhúsinu, 902 Vestmannaeyjum. Bæjarstjórinn í Vestmannaeyjum 8. apríl 2013 Elliði Vignisson -------------------------------------------------------------------------------------- Breyting á Aðalskipulagi Vestmannaeyja 2002-2014 Breyting á legu háspennustrengja frá Skansfjöru að tengihúsi Landsnets á Skansi. Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti þann 21. mars 2013 tillögu af óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Vestmannaeyja 2002-2014 samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í því að ný lagnaleið háspennustrengja liggur frá Skansfjöru með vegslóða sem liggur að Strandvegi og þaðan í lagnaskurði meðfram götunni að tengihúsi Landsnets á Skans - innum. Breytingin hefur verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar. Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til skipulagsfull- trúa Vestmannaeyjabæjar. Elliði Vignisson Bæjarstjóri. -------------------------------------------------------------------------------------- Sumarafleysingar Starfsfólk vantar til sumarafleysinga í eldhús Hraunbúða. Upp - lýsingar hjá forstöðumanni eldhúss á staðnum eða í síma 488- 2605 eða 864-1577. -------------------------------------------------------------------------------------- Málun – tilboð Vestmannaeyjabær, Umhverfis- og framkvæmdasvið, óskar eftir tilboðum í málun á eftirtöldum mannvirkjum: Boðaslóð 8-10 (Rauðagerði), Búhamar 17, Dalhraun 1 (Kirkjugerði) og Sólhlíið 19. Um er að ræða málun húsanna að utan, samkvæmt útboðs- lýsingu. Ekki er gerð krafa um að boðið sé í öll verkin. Tilboðum skal skila á skrifstofu Þjónustumiðstöðvar Vestmanna - eyjabæjar, Heiðarvegi 14, í seinasta lagi þriðjudaginn 23. apríl n.k. kl. 11.00, merkt: Málun Boðaslóð 8-10 – tilboð. Málun Búhamar 17 – tilboð. Málun Dalhraun 1 – tilboð. Málun Sólhlíð 19 – tilboð. Útboðsgögn má nálgast á skrifstofu Þjónustumiðstöðvar Vest- mannaeyja. Eftirlitsmaður fasteigna. Ráðhúsinu | 902 Vestmannaeyjum | kt. 690269-0159, sími 488 2000 | fax 488 2001 | www.vestmannaeyjar.is Vestmannaeyjabær AÐALFUNDUR ÍBV-íþróttafélags Aðalfundur ÍBV-íþróttafélags verður haldinn fimmtudaginn 18. apríl n.k. Fundurinn verður í Týsheimilinu og hefst klukkan 20:00. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf. Aðalstjórn ÍBV-íþróttafélags EYJAFRÉTTIR.is

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.