Fréttir - Eyjafréttir - 10.04.2013, Qupperneq 12
12 Eyjafréttir / Miðvikudagur 10. apríl 2013
°
°
Tveir þekktustu leikmenn Ís -
lands mótsins í knattspyrnu eru
hjá ÍBV. Eins og fram kom í
síðustu viku, skrifaði David
James, fyrrverandi landsliðs-
markvörður Englands, undir
samning hjá ÍBV. Auk þess er
þjálf ari liðsins, Hermann Hreið -
arsson, líklega einn þekktasti
íslenski knatt spyrnumaðurinn
enda fyrrum lands liðsfyrirliði og
atvinnumaður í Englandi um ára-
bil. Þetta hefur sett jákvæða
athygli á félagið og kannski ekki
vanþörf á því.
Hermann tók við ÍBV eftir síðasta
tímabil en gengið var frá ráðningu
hans áður en síðasta tímabil var úti.
Hermann sagði í samtali við Eyja -
fréttir að það hafi aldrei annað komið
til greina en að koma til ÍBV til að
ljúka ferlinum. „Ég er Eyjamaður í
húð og hár og hafði bara búið í
Eyjum áður en ég flutti út í ágúst
1997. Ég hafði bara spilað með ÍBV,
upp alla yngri flokkana og þetta er sá
klúbbur sem skiptir mig máli. Það
var því ekkert annað sem kom til
greina en að koma heim. Annars var
ég ekkert á leiðinni aftur til Íslands.
Ég ætlaði alltaf að vera eitt ár í
viðbót úti í Englandi því ég hef verið
að klára þau þjálfararéttindi sem ég
er að vinna í. Samhliða því ætlaði ég
að finna mér þjálfarastarf úti í Eng-
landi og vera jafnvel spilandi að -
stoðarþjálfari.
En síðasta sumar vorum við mikið
saman fjölskyldan hér á Íslandi og
það má segja að upp frá því tókum
við þá ákvörðun um að flytja aftur
heim. Til þessa hefur þetta verið
þannig að krakkarnir hafa verið í
skóla fram í miðjan júlí úti í Eng-
landi en þá hefur undirbúningstíma-
bilið verið að byrja hjá mér í
boltanum. Þannig að við höfum
ekkert getað verið saman hér á
sumrin nema í stuttan tíma. En þarna
var kominn þannig hugur í mann -
skapinn að nú væri tímabært að flytja
aftur til Íslands og við erum búin að
koma okkur ágætlega fyrir hér á
höfuð borgarsvæðinu.“
ÍBV gríðarlega spennandi lið
Hermann var síðast á mála hjá
Coventry en náði aðeins að spila tvo
leiki áður en hann meiddist og var frá
út veturinn.
„Eftir síðasta leik úti, þegar ég sleit
allt í öxlinni, þá dró það svolítið úr
áhuganum að spila áfram. Ég var
ekki orðinn nógu góður í öxlinni í
ágúst á síðasta ári, áður en strák arnir
í knattspyrnuráði komu að máli við
mig. Síðan þá hefur öxlin lagast en
á þessum tímapunkti hafði það eitt -
hvað að segja, að geta ekki spilað
þarna í ágúst. Planið var alltaf að
koma heim, spila og vera aðstoðar -
þjálfari. En ÍBV er afar spennandi
lið og ég hugsaði sem svo að það
væri gott að hafa nóg að gera, fyrst
við vorum að flytja til landsins.
Henda sér bara í djúpu laugina og
það var ekki til betra starf en að taka
við ÍBV.“
Hermann á að baki 590 deildarleiki
með ÍBV og sjö enskum félögum en
í þessum leikjum hefur hann skorað
32 mörk. Hermann segist vera mjög
sáttur með 15 ára atvinnumannaferil
sinn.
„Já það er ekki spurning. Ég fór á
sínum tíma með þriggja ára samning
í vasanum til Crystal Palace og
hugsaði sem svo að þetta væri tæki -
færi til að bæta mig sem knatt -
spyrnumaður, ég ætlaði einfaldlega
að reyna ná sem mestu út úr þessum
þremur árum eins og ég gat. En
þegar upp er staðið hef ég spilað í 15
ár sem atvinnumaður í Englandi,
langmest í úrvalsdeildinni sem er ein
sterkasta deild í heiminum. Það eru
forréttindi. Ég get ekki verið annað
en sáttur með ferilinn og hápunkt -
urinn var auðvitað bikarmeistaratit-
illinn með Portsmouth 2008. Ég
starfaði líka undir stjórn margra
góðra knattspyrnustjóra og með
mörgum frábærum leikmönnum. Ég
hef lært mikið á þessum fimmtán
árum og vonandi næ ég að koma
þeirri reynslu til skila hjá ÍBV.“
Þróun í hárrétta átt
Hermann segist sjá gífurlega mikinn
mun á íslensku deildinni nú og þegar
hann fór út 1997. „Það er himinn og
haf á milli þess hvernig íslenski
boltinn er nú og hvernig hann var
þegar ég fór út. Það er búið að kenna
ungum leikmönnum mun meira í dag
en þegar ég var ungur. Knattspyrnu -
þjálfun er tekin mjög alvarlega strax
í yngri flokkunum og gerð krafa um
menntun þjálfara. Þróunin í knatt -
spyrnunni á Íslandi hefur verið í hár-
rétta átt síðan ég var hérna og
tilkoma knattspyrnuhúsanna hefur
hjálpað gríðarlega mikið. Núna er
fyrsta kynslóð knattspyrnumanna,
sem hafa alist upp við þessi skilyrði,
að skila sér í landsliðið og þeir eiga
eftir að verða fleiri í framtíðinni. Ég
tel að þjálfun á Íslandi í dag sé á
heimsmælikvarða og eins góð og hún
getur verið.
Fótboltinn í dag í efstu deild er líka
orðinn mun betri. Betri tækni leik-
manna býður upp á ýmsa möguleika,
eins og t.d. að leika sig út úr pressu.
Mönnum datt það ekkert í hug hér
áður fyrr. Þá sparkaði markmaður -
inn bara langt í burtu, svo var það
bara að ná boltanum og finna eitt -
hvað út úr þessu,“ sagði Hermann og
hló.
Sjö leikmenn úr
byrjunarliðinu farnir
Mjög margir leikmenn hafa yfirgefið
félagið fyrir átökin í sumar. Sterkir
leikmenn, eins og Tryggvi Guð-
mundsson, Rasmus Christiansen,
Andri Ólafsson, Abel Dhaira, Guð-
mundur Þórarinsson, Þórarinn Ingi
Valdimarsson og Christian Olsen,
sem allir voru byrjunarliðsmenn
síðasta sumar. Að missa sjö leik-
menn úr byrjunarliðinu er varla
óskastaða fyrir nýjan þjálfara.
„Auðvitað hefði maður vilja halda
þessu liði sem var búið að vera
saman í svolítinn tíma og var hörku-
gott fótboltalið. Ég fylgdist vel með
liðinu síðasta sumar og sá að menn
voru með sín hlutverk á hreinu og
taktíkin var góð. En þetta er hluti af
fótboltanum á Íslandi, við leysum
þetta bara í sumar og þetta er staða
sem ÍBV þekkir vel. Við erum enn
að vinna í leikmannahópnum og
erum að skoða leikmenn. Við höfum
áhuga á að bæta við okkur leik -
mönnum fyrir sumarið, hugsanlega
sóknarmanni en það á allt eftir að
skýrast.“
Hermann Hreiðarsson, þjálfari karlaliðs ÍBV í knattspyrnu er spenntur fyrir sumrinu:
Lykillinn að árangri liðsins
í sumar er Hásteinsvöllur
:: Sáttur með 15 ára feril í Englandi :: Fáránlegt að fá David James til ÍBV
:: Verðum spurningarmerki í sumar
Hermann eftir að hafa skrifað undir samning hjá ÍBV. Með honum á myndinni eru Hannes Gústafsson og Óskar Örn Ólafsson úr knatt -
spyrnuráði, Ragna Lóa Stefánsdóttir og dæturnar, Thelma Lóa til vinstri og Ísa Marín til hægri.
JÚLÍUS G. INGASON
julius@eyjafrettir. is
Það er himinn og haf á milli þess hvernig íslenski boltinn er nú og
hvernig hann var þegar ég fór út. Það er búið að kenna ungum leik-
mönnum mun meira í dag en þegar ég var ungur. Knattspyrnuþjálfun
er tekin mjög alvarlega strax í yngri flokkunum og gerð krafa um
menntun þjálfara. Þróunin í knattspyrnunni á Íslandi hefur verið í hár-
rétta átt síðan ég var hérna og tilkoma knattspyrnuhúsanna hefur
hjálpað gríðarlega mikið. Núna er fyrsta kynslóð knattspyrnumanna,
sem hafa alist upp við þessi skilyrði, að skila sér í landsliðið og þeir eiga
eftir að verða fleiri í framtíðinni. Ég tel að þjálfun á Íslandi í dag sé á
heimsmælikvarða og eins góð og hún getur verið.
”