Fréttir - Eyjafréttir - 10.04.2013, Síða 13
Eyjafréttir / Miðvikudagur 10. apríl 2013 13
°
°
James kemur á réttum
forsendum
Segja má að koma enska landsliðs-
markvarðarins fyrrverandi, David
James, sé alfarið Hermanni að þakka,
enda beinlínis skipaði hann James að
koma til Eyja í sumar. Hermann
segir að stefnan sé að nýta komu
James sem best fyrir ÍBV. „Það er
frábært í alla staði að fá James til
okkar. Hann er líka að koma á rétt -
um forsendum því hann er ekki að
koma hingað til að fíflast eða slaka
á. Hann er að taka sín þjálfararétt -
indi og er mjög áhugasamur um að
bæta við sig þekkingu á því sviði.
Hann leit þannig á þetta að ÍBV sé
lið í efstu deild á Íslandi og í Evrópu -
keppni, þannig að hér gæti hann
öðlast mikilvæga reynslu upp á
framtíðina. Við erum báðir að taka
okkar fyrstu skref í þjálfun, þannig
að við bætum hvor annan upp.
En það er auðvitað alveg fáránlegt
að við skulum vera komnir með jafn
þekktan og sterkan leikmann inn í
liðið hjá okkur og í íslensku deildina.
Það eru ekki nema þrjú ár síðan hann
var að spila með enska landsliðinu á
Heimsmeistaramótinu. En nú er það
undir okkur komið að nýta hann eins
vel og við getum fyrir ÍBV. Koma
hans ein og sér skilar sér í auknum
áhuga en við viljum líka nýta hans
miklu reynslu og fá hann til að þjálfa,
ekki bara í meistaraflokki heldur líka
eitthvað í yngri flokkunum. Svo má
ekki gleyma því að hann er enn í
toppformi og ekki slæmt að fá svona
góðan markvörð inn í liðið. Hann er
klárlega einn af betri markvörðum
deildarinnar og lætur auk þess vel í
sér heyra þannig að varnarleikurinn
verður betri.“
Hvað með þig sjálfan. Ætlarðu að
spila?
„Ég hef aðeins verið að sprikla með
á æfingum og ég held að ég sé ekkert
að fara að byrja leikina í sumar.
Annars erum við svo hrikalega
heppnir að vera með mjög færan
knattspyrnu stjóra sem hefur mikla
trú á sóknar hæfileikum mínum. Það
er alveg kominn tími til að slá þetta
markamet í deildinni, þannig að ég
geri ráð fyrir að detta inn í sóknina í
einhverjum leikjum,“ sagði Hermann
hlæjandi.
Markmiðið að ná í lið
Hver eru ykkar markmið fyrir sum -
arið?
„Við erum búnir að ná markmiðinu
og það var að ná í lið,“ grínaðist Her-
mann. „En að öllu gríni slepptu, þá
erum við enn að vinna í leikmanna -
hópnum og því erfitt að meta styrk -
leika liðsins. Ég held ég geti sagt
með vissu að við verðum stórt
spurningarmerki, ekki bara fyrir
okkur sjálfa heldur fyrir önnur lið.“
Nú er aðeins tæpur mánuður í fyrsta
leik en 5. maí tekur ÍBV á móti ÍA á
Hásteinsvelli í opnunarleik Íslands -
mótsins. Hermann segir að loka -
undir búningur fyrir átökin í sumar sé
að hefjast og hluti af honum sé
æfingaferð til Englands. „Við förum
í tíu daga til Englands og munum æfa
þar við mjög góðar aðstæður á
æfinga svæði Bournemouth. Við
spilum við varalið Bournemouth og
svo er það leikurinn gegn
Portsmouth,“ sagði Hermann en ÍBV
mun mæta Portsmouth í góðgerðar-
leik á heimavelli félagsins, Fratton
Park.
„Það verður mjög gaman að fara
aftur á Fratton Park og spila fyrir
framan fólkið þar sem maður átti
sínar bestu stundir í Englandi. Það
verður líka ekki leiðinlegt fyrir
strákana í liðinu að fá að upplifa
þessa stemmningu því mér skilst að
sala miða á leikinn hafi gengið mjög
vel enda er þetta góðgerðarleikur, þar
sem allur ágóði leiksins rennur beint
til Portsmouth sem á í verulegum
fjárhagsvanda. En við munum nota
þessa ferð til að slípa hópinn saman,
skoða einn eða tvo leikmenn og svo
er ekki útilokað að við spilum fleiri
leiki. Ég er mjög spenntur fyrir
þessari ferð því við höfum verið að
æfa á tveimur stöðum, í Eyjum og í
höfuðborginni og svo eru leikmenn
sem eru að koma til liðs við okkur.
Það verður gott að vera með allan
hópinn á einum stað enda styttist í
fyrsta leik og lokaspretturinn
framundan. Við verðum að nýta
tímann vel og þessi ferð er kærkomin
til að leggja lokahönd á undir -
búninginn.“
Stuðningurinn
mikilvægur í sumar
Hermann bætir því við að það sé
ekki úr vegi fyrir Eyjamenn nær og
fjær að fara undirbúa sumarið, eins
og leikmennirnir enda sé stuðningur
við liðið mikilvægur og Hermann
vill sjá sterkan heimavöll.
„Lykillinn að árangri liðsins í sumar
er Hásteinsvöllur. Við verðum að
búa til alvöru gryfju heima og ef
bestu stuðningsmenn landsins
flykkjast á völlinn, láta í sér heyra og
styðja við bakið á liðinu, þá hef ég
engar áhyggjur af því að stigin skili
sér ekki í hús á heimavelli í sumar.
Svo eigum við besta stuðnings -
mannahópinn á útivöllum, sem hafa
jafnvel breytt erfiðustu útivöllunum í
heimavöll. Við verðum að fá þennan
góða stuðning, bæði á heimavelli og
útivelli. Þá verður eftirleikurinn
auðveldari inni á vellinum,“ sagði
Hermann að lokum.
Ferill Hermanns á knattspyrnu-
vellinum inniheldur bæði hæðir
og lægðir. Hermann byrjaði
1993 að spila með ÍBV, þá
aðeins á nítjánda ári en hann
spilaði tvo leiki með liðinu það
sumar. Næstu ár var Hermann
hins vegar orðinn fastamaður í
liði ÍBV, byrjaði sem bakvörður
en Atli Eðvaldsson færði Her-
mann í stöðu miðvarðar eftir að
hann tók við liðinu 1995. Sú
ákvörðun vakti nokkra athygli
enda lék Dragan Manjolovic þá í
stöðu miðvarðar og þótti
nokkuð öflugur sem slíkur. En
Atli vissi hvað hann var að gera,
enda blómstraði Hermann í
hjarta varnarinnar hjá ÍBV og er í
dag einn farsælasti atvinnu-
maður sem íslensk knattspyrna
hefur alið af sér.
Alls lék Hermann 67 leiki í Ís-
landsmótinu og skoraði í þeim 5
mörk áður en hann hélt út í byrjun
ágúst 1997, nánar tiltekið á fimmtu -
degi fyrir þjóðhátíð. Eftir tímabilið
1996 var Hermann orðaður við hin
ýmsu lið og fjölmargir höfðu áhuga
að skoða þennan sterka varnarmann
frá eldfjallaeyjunni Heimaey. Her-
mann fór m.a. til Crystal Palace í
janúar 1997, en þá var Palace í
toppbaráttu 1. deildar og stefndi
hraðbyri á úrvalsdeildina. Hermann
valdi hins vegar að vera áfram hjá
ÍBV, skrifaði undir nýjan samning
og sýndi Eyja liðinu þannig mikla
tryggð. En Steve Coppel, sem þá
var stjóri Crystal Palace, lét það
ekki stoppa sig og keypti Hermann
sumarið 1997. Hermann lék með
ÍBV framan af sumri en um haustið
tryggði ÍBV sér Íslandsmeistara -
titilinn í annað sinn í sögu félagsins.
Hermann átti stóran þátt í því, þótt
hann hafi ekki fengið að fagna
titlinum með liðinu í mótslok það
sinnið.
Á milli félaga fyrstu árin
Hermann lét fljótlega að sér kveða
hjá Crystal Palace og lét sjálfur hafa
það eftir sér eftir að hafa byrjað
fyrsta leikinn á varamannabekkn -
um, að hann hafi verið eini vara-
maðurinn sem hefði brosað út að
eyrum, slík var upplifunin að vera á
leik í enska boltanum. En þegar
upp var staðið, var Hermann einn af
betri leikmönnum liðsins en þar
mátti m.a. finna leikmenn eins og
Ítalann Attilio Lombardo og hinn
sænska Thomas Brolin.
Palace féll hins vegar úr úrvals-
deild um vorið og í september 1998
fór Hermann niður í ensku 3. deild-
ina þar sem hann lék með Brent-
ford. Með Brentford fór Hermann
upp um deild en fyrir tímabilið
1999-2000 keypti Wimbledon hann
á 2,5 milljónir punda. Wimbledon
féll hins vegar þá um vorið og enn á
ný var komið að vistaskiptum hjá
Hermanni. Nú voru það nýliðar í
úrvalsdeild, Ipswich Town, sem
keyptu Hermann frá Wimbledon á
4,5 milljón pund. Fyrsta tímabilið
gekk vel hjá félaginu, sem endaði í
fimmta sæti og komst í Evrópu -
keppni. Liðinu gekk hins vegar
herfilega næsta tímabil og féll vorið
2002. Fyrir tímabilið 2002 var Her-
mann orðaður við nýliða West
Brom wich Albion í úrvalsdeild. En
í stað þess að hella sér í botn baráttu
úrvalsdeildar á ný, hélt Hermann
áfram að spila með Ipswich í næst-
efstu deild.
Hermann var svo seldur frá Ips -
wich í mars 2003 til Charlton Ath-
letic. Kaupin voru gerð utan
hefð bundins félagsskiptaglugga
vegna fjárhags örðugleika Ipswich.
Hermann var lykilmaður í liði
Charlton næstu árin en liðið féll svo
vorið 2007. Í kjölfarið skipti Her-
mann yfir í Ports mouth.
Bikarmeistari með 2008
Hjá Portsmouth náði Hermann
sínum besta árangri innan vallar
þegar hann vann bikarmeistara -
titilinn með félaginu 2008 eftir 1:0
sigur á Cardiff á Wembley.
Hermann lék áfram með félaginu í
úrvalsdeild en í lok mars 2010 varð
hann fyrir sínum fyrstu alvarlegu
meiðsl um á ferlinum þegar hann
sleit hásin í leik gegn Tottenham og
missti þar með af úrslitaleik FA
bikarkeppninnar 2010, þar sem
Portsmouth tapaði fyrir Chelsea
1:0. Þarna má segja að vandræði
Ports mouth hafi byrjað því félagið
féll úr úrvalsdeild og var í veru -
legum fjárhagsvanda. Vegna þess
var félaginu bannað að taka þátt í
Evrópu keppninni, þrátt fyrir að hafa
unnið sér sæti í keppninni, þar sem
Chelsea fór í Meistaradeildina.
Hermann var á mála hjá félaginu
síðasta vetur en færði sig svo yfir til
Coventry. Bæði lið féllu í C-deild
síðasta vor og byrjaði Portsmouth
með tíu stig í mínus í vetur vegna
fjárhagsörðugleikanna.
Hermann á ansi vafasamt met í
ensku deildarkeppninni því enginn
hefur fallið oftar úr úrvalsdeild.
Hann hefur fallið fimm sinnum úr
úrvalsdeild, með fimm liðum, Crys-
tal Palace, Wimbledon, Ipswich
Town, Charlton Athletic og Ports -
mouth.
Eins og áður hefur komið fram
þjálfar Hermann ÍBV í sumar.
Hann á að baki um 600 leiki með
félagsliðum sínum í íslensku og
ensku deildarkeppninni og hefur
skorað í þeim 32 mörk. Auk þess
lék Hermann 89 landsleiki fyrir Ís-
lands hönd, skoraði í þeim fimm
mörk og var um tíma fyrirliði
liðsins. Hermann getur enn bætt
við leikjum og á vafalaust eftir að
loka ferlinum í hvítu treyjunni á
Hásteinsvelli í sumar. Það er sjálf-
sagt draumur hans, og eflaust
margra stuðningsmanna ÍBV líka.
Frábær ferill með hæðum og lægðum
Hermann hefur ekki komið við sögu í mörgum leikjum ÍBV í vetur en lék þó með liðinu í Futsal.
Félagarnir David James og Hermann Hreiðarsson en saman urðu þeir bikarmeistarar með Portsmouth 2008.