Fréttir - Eyjafréttir

Eksemplar

Fréttir - Eyjafréttir - 10.04.2013, Side 17

Fréttir - Eyjafréttir - 10.04.2013, Side 17
EYJAFRÉTTIR.is Eyjafréttir / Miðvikudagur 10. apríl 2013 17 ° ° Eitt af því sem fékk mig til þess að gefa mig að stjórnmálum var þetta ákall sem maður heyrði óma alla daga um breytt stjórnmál. Alls staðar, hvar sem maður kom, voru allir að tala um hversu ömurleg stjórnmálamenningin væri hér á landi. Hér réðu formenn flokka öllu og í kringum þá væri klíka og jábræður sem lytu valdi flokkselít - unnar í einu og öllu. Þetta var um- ræðan fyrir fjórum árum og þetta er umræðan ennþá. Í rannsóknar - skýrslu alþingis, sem furðu margir virðast hreinlega hafa gleymt, kemur þetta m.a. fram og í 8. bindi hennar, bls. 184, er vitnað í fyrrum stjórnmálamann með langa setu á alþingi og ráðherradóm að baki. Hann segir: „Auðvitað er það svo að flokks - ræð ið, nánast í öllum stjórnmála - flokk unum, hefur þróast í ofurvald foringjans og klíkunnar. Þess vegna er lýðræðið okkar svona brothætt og veikt og ég velti því fyrir mér hvort í rauninni þurfi ekki að stíga mörg sterk skref vegna þessarar reynslu til að tryggja sterkari stjórn- málamenn og minna foringjaræði.“ Hefur þetta ástand í stjórnmál - unum breyst síðan þetta var skrifað og gert opinbert? Að mínu viti hefur svo ekki gerst nema að mjög takmörkuðu leyti og þegar horft er til þeirra flokka sem setið hafa á alþingi síðasta kjörtímabil þá hefur foringjaræðið ráðið ríkjum. Eina sjáanlega breytingin hvað þetta varðar er hjá Reykjavíkurborg og hefur verið aðdáunarvert að fylgjast með hvernig þróunin hefur verið á þeim bæ frá síðustu sveitarstjórnar - kosningum. Lágstemmd pólitík þar sem stöðugt er unnið að breyt - ingum, íbúunum til heilla, og eru aðgerðir þeirra til aukins íbúalýð - ræðis einkar athyglisverðar. Björt framtíð hefur það sem eitt sitt meginmarkmið að reyna að breyta þeirri stjórnmálamenningu sem hér hefur verið ríkjandi og leitar m.a. í hugmyndasmiðju Besta flokksins í þeim efnum. En einnig leitum við í smiðjur fræðimanna sem láta sig samfélagsmál miklu varða og eru þar margir góðir sem til greina koma. Sá sem ég heillast hvað mest af er dr. Páll Skúlason, heimspekingur og fyrrum rektor Háskóla Íslands. Hann hefur skrifað margar góðar greinar um það hvernig farsællegast sé að iðka stjórnmál almenningi til heilla. Í erindi sem birtist í TMM 2009 og aðgengilegt er á heimasíðu Páls, segir hann þetta um það hvað hann telji vera meginhlutverk stjórnmála: Í fyrsta lagi: „að opinber umræða fari fram um sameiginleg mál okkar, í öðru lagi: að við mótum skynsamlegar leiðir til að taka ákvarðanir í sameiginlegum málum okkar, í þriðja lagi: að við vinnum markvisst að því að skapa samfélag þar sem fjölbreytt mannlíf fær dafnað og sátt ríkir um viss grund- vallargildi“. „Samkvæmt þessum skilningi er stjórnmálaflokkur samtök sem vilja hafa áhrif á það hvernig stjórnmálin eru stunduð, hvernig við ræðum um sameiginleg mál, hvaða leiðir við höfum til að taka ákvarðanir um þau og vinna að eflingu sam- félagsins. Þetta er í mínum huga það sem mestu skiptir til skilnings á hlutverki stjórnmála og þeirra sem taka þátt í þeim. Við lifum saman, deilum lífinu, og komumst ekki hjá því að hugsa um og ræða hvað er okkur sem heild fyrir bestu, hverjir séu okkar sameiginlegu hagsmunir, hver sé almannaheill“. Við í Bjartri framtíð erum full - komlega sammála nafna mínum í þessum málum og munum leggja okkur öll fram um að starfa samkvæmt þessu í framtíðinni. Ný pólitík eða gömul? Öflugt og gott samfélag verður að geta treyst á örugga grunnþjónustu. Á kjörtímabilinu hafa fjárframlög til grunnþjónustunnar verið skert svo um munar. Eyjamenn hafa ekki farið varhluta af því og fjölmörg dæmi samdráttar hafa bitnað illilega á samfélaginu. Þessu þarf að breyta og setja réttu hlutina í forgang. Hreint og klárt öryggisatriði Ég vil ekki heyra fleiri sögur eins og ég heyrði nýlega þegar fjöl - skyldufaðir í Eyjum varð vitni að grunsamlegum mannaferðum að næturlagi, hringdi eftir aðstoð og fékk þau svör að það væri ekki lögreglumaður á vakt í Eyjum á nóttunni. Í samfélagi eins og Vest- mannaeyjum, með rúmlega 4000 íbúa og mikla landfræðilega sérstöðu, er sólarhringsvakt lög - reglunnar hreint og klárt öryggis - atriði. Þetta vil ég færa til fyrri vegar og tryggja að fjölskyldur í Eyjum geti sofið rólega á nóttunni, vitandi af lögreglunni á vakt. Komumst hjá sársaukafullum aðgerðum Mér brá hreinlega þegar ég heim- sótti Heilbrigðisstofnun Vest - mannaeyja nú í mars. Ég leyfi mér að fullyrða að staða stofnunarinnar hefur sjaldan eða aldrei verið alvar- legri og nú er svo komið að ekki er til nægilegt fjármagn til að leysa út nauðsynleg lyf handa sjúklingum. Ég fann reiði og vanmátt starfs- fólksins sem hefur unnið þrekvirki við að halda þjónustunni uppi við erfiðar aðstæður síðustu ára. Hér verður að grípa inn í – við þetta verður ekki búið lengur. Samfélagið í Eyjum verður að geta treyst á að þegar sjúkdómar eða slys herja á, sé öruggt að þjónusta stofnunarinnar við það sé tryggð. Ég veit að við getum komist hjá niðurskurði og sársaukafullri þjónustuskerðingu með því að forgangsraða fjármun - um betur. Setjum það í forgang að tryggja örugga heilbrigðisþjónustu um allt land og leggjum áform um spítalabyggingar í Reykjavík til hliðar á meðan. Hlúum að FÍV Það er mikill gæðastimpill í rúm- lega 4000 manna samfélagi að hafa jafnöflugan og góðan skóla og Framhaldsskólinn í Vestmanna - eyjum er. Ungt fólk getur sótt menntun til stúdentsprófs í sinni heimabyggð og þarf ekki að dvelja fjarri fjölskyldum sínum með öllum þeim kostnaði sem því fylgir. Stöðugur niðurskurður í mennta - kerfinu kemur niður á fjölbreyti - leika námsins sem í boði er og unga fólkið er fljótt að sjá það ef tæki - færin eru betri annars staðar. Hlúa þarf að starfi skólans og honum þarf að tryggja skilyrði til að byggja áfram upp fjölbreytt námsúrræði. Áframhaldandi innspýting Góðar samgöngur eru ein forsenda blómstrandi mannlífs í Eyjum. Landeyjahöfn hefur verið mikil innspýting í samfélagið og um það verður ekki deilt. Áfram þarf að vinna að lausn mála í Landeyja - höfn og finna þarf framtíðarlausn fyrir nýjan Herjólf. Þetta þarf að gerast sem fyrst og í góðu samstarfi við heimamenn. Forgangsröðum rétt Nú er kominn tími til að for- gangsraða rétt og fara strax í þau verkefni sem ekki þola bið. Eyja- menn eiga svo miklu betra skilið, betri þjónustu og meiri skilning á þörfum sínum. Við sjálfstæðismenn erum til þjónustu reiðubúnir og hlökkum til að hefjast handa. Grunnþjónustuna í forgang – tryggjum öryggi íbúanna Lundakomuhátíð laugardaginn 20. apríl Lundinn kemur með sumarið :: Ljósmyndakeppni Eyjafrétta :: Hver nær fyrstu myndinni af lunda í ár Nú hefur endanlega verið ákveðið að halda svokallaða Lun- dakomuhátíð í ár en hátíðin fer fram laugardaginn 20. apríl. Hugmyndin er að byrja smátt en að hátíðin vaxi svo með hverju árinu og verði fyrsta veglega bæjarhátíð hvers sumars. Dagskráin hefst með golfmóti kl. 10 á laugardaginn en þátttakendur eiga að mæta til skráningar í golf- skálanum hálftíma áður. Þá verður skrúðganga klukkan 12:50 frá Safnahúsinu og að Vinaminni þar sem dagskrá hefst klukkan 13:00 utandyra. Þar verður Leikfélagið á staðnum, Marinó Sigursteinsson býður lundann velkominn, karlakór Rangæinga flytur tvö lög, Eyvindur og Jarl spila og syngja fyrir yngstu börnin og verðlaun verða veitt fyrir teiknikeppni GRV og ljósmynda - samkeppni Eyjafrétta. Þá mun Blítt og létt og Arnór, Helga og Davíð spila og syngja. Karlakór Rangæinga heldur svo tónleika klukkan 16 í Safnaðarheim- ili Landakirkju en um kvöldið verður boðið upp á veglega kvöldskemmtun að hætti Eyjamanna í Höllinni. Boðið verður upp á hátíðarhlaðborð, sjávarréttafantasíu Einsa kalda en Helgi og Hermann Ingi munu taka lagið. Húsið verður opnað kl. 20:15 en borðhald hefst klukkan 21:00. Tveimur tímum síðar hefjast svo Lunda hátíðar tónleikar og ball en fram koma Blítt og létt, Dans á Rósum, Stertimenni, Logar og Bjart- mar. Í tilkynningu frá Vestmannaeyjabæ kemur fram að rausnarleg verðlaun verða í boði í teikni- og ljósmynda - samkeppni. Í teiknikeppninni keppa nemendur í Grunnskóla Vestmanna - eyja um bestu lundateikninguna en einnig er keppt í fullorðinsflokki. Tíu bestu myndirnar verða svo settar í glugga hjá Eymundsson og verðlaun fyrir bestu myndirnar veitt 20. apríl. Í ljósmyndakeppni Eyja - frétta verður keppt um hver nær fyrstu og flottustu myndinni af lunda setjast upp í Vestmannaeyjum 2013. Myndum í keppnina skal skila í Eymundsson eða í afgreiðslu Ráð - húss í síðasta lagi 17. apríl næst - komandi. Í verðlaun verða vinningar frá Hótel Vestmannaeyjum, Herjólfi, Vilberg Kökuhúsi, Eyjafréttum, Seg- way, Höllinni, 900 Grillhúsi, Einsa kalda og Eymundsson. Þar sem lundinn er ljúfastur fugla. Margir telja að sumrið komi með lundanum í Vestmanna eyjum og því á að fagna með Lundakomuhátíð í ár. RAGNHEIÐUR ELÍN ÁRNADÓTTIR 1.sæti á l ista Sjál fstæðisf lokksins PÁLL VALUR BJÖRNSSON 1. sæti á l ista Bjartrar framtíðar Ég vil ekki heyra fleiri sögur eins og ég heyrði nýlega þegar fjölskyldufaðir í Eyjum varð vitni að grunsamlegum mannaferðum að næturlagi, hringdi eftir aðstoð og fékk þau svör að það væri ekki lögreglumaður á vakt í Eyjum á nóttunni. Í samfélagi eins og Vestmannaeyjum, með rúmlega 4000 íbúa og mikla landfræðilega sérstöðu, er sólarhringsvakt lögreglunnar hreint og klárt öryggisatriði. ”

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.