Fréttir - Eyjafréttir

Issue

Fréttir - Eyjafréttir - 10.04.2013, Page 19

Fréttir - Eyjafréttir - 10.04.2013, Page 19
° ° Eyjafréttir / Miðvikudagur 10. apríl 2013 19 Í síðustu viku voru framsóknar- menn með fund í Eyjum hjá Einsa kalda þar sem oddviti flokksins í Suðurkjördæmi, Sig- urður Ingi Jóhannsson, alþingis- maður, var mættur ásamt Páli Jóhanni Pálssyni, útvegsbónda í Grinda vík, sem er í þriðja sæti listans. Gestir voru á milli 15 og 20 og eftir framsögu Sigurðar Inga og Páls Jóhanns þar sem þeir fór yfir helstu málin var líflegt spjall. Framsókn er í mikilli sókn samkvæmt skoðana - könnunum og sé að marka nýjustu kannanir nær Framsókn fimm þing- mönnum inn í Suðurkjördæmi sem ekki hefur gerst áður. Sigurður Ingi sagði þetta draumi líkast og stundum þyrfti hann að klípa sig í handlegginn til að sannfærast um að þetta væri staðreynd. Um leið benti hann á að þetta eru skoðanakannanir en ekki úrslit kosninganna. Þeir Sigurður Ingi og Páll Jóhann fóru yfir víðan völl þar sem staða heimilanna og atvinnumálin voru fyrirferðarmikil. Í spjalli eftir fund voru samgöngumálin, fiskveiði - stjórnunarkerfið ásamt skuldum heimila það sem helst brann á fundargestum. Þeir svöruðu af - dráttarlaust og höfðu góð orð um að vinna að þessum málum á næsta kjörtímabili. Þeir voru hissa á hvað dýrt er að ferðast með Herjólfi, sérstaklega í Þorlákshöfn og voru sammála um það mál þyrfti að skoða. Í ályktun síðasta landsþings Fram- sóknarflokksins segir svo um afnám verð tryggingar og leiðréttingar stökk breyttra verðtryggðra hús- næðislána heimilanna: „Heimilin eru undirstaða og drifkraftur þjóðfélagsins. Enn vantar mikið upp á að bankar og önnur fjár- málafyrirtæki hafi unnið úr þeim erfiðu skuldamálum sem heimilin eiga við að glíma, ekki síst vegna lagalegrar óvissu um ýmis mikilvæg mál, doða og ráðaleysis stjórnvalda. Brýnt er að lausn fáist sem fyrst í dómsmál varðandi skuldir heimil - anna en ólíðandi er hve langan tíma hefur tekið að greiða úr málum, því skal tryggja flýtimeðferð slíkra mála. Framsóknarflokkurinn vill að stökkbreytt verðtryggð húsnæðislán verði leiðrétt. Framsóknarflokkurinn hefur lagt fram ítarlegar tillögur til lausnar skuldavanda heimila. Af - staða Framsóknarflokksins er ein- dregið sú að ekkert geti réttlætt að lánþegar verðtryggðra húsnæðislána sitji einir uppi með afleiðingar þess að lánin stökkbreyttust af völdum efnahagshruns.“ Í ályktun um atvinnumál segir að atvinna sé undirstaða vaxtar og velferðar. Forgangsverkefni sé að fjölga störfum í landinu. „Lítil og meðalstór fyrirtæki gegna þar lykil - hlutverki. Hlutverk ríkisins er fyrst og fremst að skapa hagstæða um - gjörð um atvinnulífið, meðal annars með einföldun skattkerfis og reglu- verks atvinnurekstrar. Koma þarf í veg fyrir að fyrirtæki búi við íþyngj - andi kröfur sem ekki þjóna tilgangi sínum. Þung skattbyrði og tíðar breytingar á regluumhverfi fyrirtækja draga máttinn úr atvinnulífinu. Fram- leiðni þarf að aukast og þar með hagkvæmni hagkerfisins.“ Þar segir líka að Framsóknar - flokkurinn leggi mikla áherslu á að ná sem víðtækastri sátt um stjórn fiskveiða meðal þjóðarinnar, jafnt ólíkra pólitískra afla sem hags - munaaðila innan sjávarútvegsins. „Til að nauðsynleg sátt og stöðug - leiki náist, þarf að móta skýra stefnu til lengri tíma. Þess verði gætt að sú hagkvæmni og hagræðing sem náðst hefur með fiskveiðikerfinu verði áfram tryggð svo efnahagslegt fjöregg þjóðarinnar standist til framtíðar. Stjórnun fiskveiða verði blönduð leið, annars vegar á grunni aflahlutdeildar á skip og hins vegar við úthlutun veiðileyfa sem taki mið af sértækum byggðaaðgerðum, auk hvatningar til nýsköpunar og til þess að auðvelda aðgengi nýrra aðila að útgerð. Tryggja verður sameign þjóðarinnar á sjávarauðlindum, m.a. með ákvæði í stjórnarskrá. Framsóknarflokkurinn vill að greitt verði fyrir nýtingar - réttinn með árlegu veiðigjaldi. Gjaldið verði hóflegt og tengt af - komu greinarinnar. Framsóknar - flokkurinn hafnar sértæku veiðigjaldi og núverandi útfærslu þess. Fram- sóknarflokkurinn vill að almenna veiðigjaldið renni að hluta til þess landsvæðis þar sem það verður til. Að hluta til nýsköpunar, rannsókna og markaðsstuðnings innan greinar- innar og að hluta í ríkissjóð. Fram- sóknarflokkurinn vill efla nýsköpun og enn frekari nýtingu hráefnis til að skapa meiri verðmæti og auka arð - semi sjávarútvegs. Framsóknarmenn vilja að hrint verði í framkvæmd atvinnuátaki sem miðar að því að nýta betur vannýttar tegundir, t.d. skelfisk og sjávarþörunga.“ Framsókn með fund í síðustu viku :: Fjármál heimilanna og atvinnu - málin efst á baugi: Gott gengi í skoðanakönn- unum kemur þeim á óvart Sigurður Ingi Jóhannsson, varaformaður Framsóknarflokksins, leiðir lista þeirra í Suðurkjördæmi. Með honum á myndinni eru þeir Jónatan G. Jónsson, sem er í áttunda sæti og Páll Jóhann Pálsson í því þriðja. XG-Hægri grænir, flokkur fólksins, hefur fyrir margt löngu birt stefnu sína um leiðréttingu verðtryggðra húsnæðislána sem hann vill koma á með setningu neyðarlaga strax og hann kemst til nægilegra áhrifa og vill þá gera það eigi síðar en 17. júní í ár. Miða þarf leiðréttinguna við 1. nóvember 2007, þegar almenn verð - tryggð húsnæðislán urðu ólögleg hér á landi, þegar MiFID reglugerð EES/ESB var lögleidd. Þetta þýðir að allir, sem áttu verðtryggð hús- næðislán eftir þessa dagsetningu munu fá leiðréttingu til dagsins í dag í réttu hlutfalli. Það á líka við um þá, sem tóku lán sín fyrr eða þá, sem greiddu upp lán sín eftir þann tíma. Allir munu fá leiðréttingu sinna mála frá 01.11.2007 þegar vísitala neyslu- verðs var 278,1 stig. Undan- bragðalaust. Bankarnir eða fólkið Seðlabankinn mun stofna sérstakan sjóð innan sinna eigin veggja, sem kaupir öll verðtryggð húsnæðislán og skuldbreytir þeim eða endurgreiðir hina ólöglegu ofgreiðslu í tilfelli þeirra, sem þegar voru búnir að gera upp. Hann mun gefa út ný skuldabréf skuldunautum til handa til langs tíma til þess að stilla greiðslubyrðina af við greiðslugetuna. Nýju bréfin verða færð niður til þess, sem þau hefðu verið 01.11.2007 og munu bera 7,65% fasta vexti. Með því að Seðlabankinn láni sjóðnum á 0,01% vöxtum mun það taka sjóðinn 9 ár að komast í jafnvægi. Það er vaxta- munurinn, sem mun greiða upp þessa leiðréttingu. Þannig rennur þessi mismunur því til fólksins en ekki til bankanna, sem hefði verið ef ekkert væri að gert. Stimpil- og upp - greiðslu gjöld vegna aðgerðanna verða afnum in og aðgerðum sýslu - manna frestað í tvö ár á meðan leiðréttingin gengur yfir. Ekki verðbólguhvetjandi Hinn nýi sjóður mun greiða lánar - drottnunum, eigendum gömlu bréf - anna, bréfin að fullu. Þannig fá þeir allt sitt strax og er vandi ÍLS þar með leystur, en með því að þeim er gert með sérstakri bindiskyldu að geyma fé sitt í Seðlabankanum, þá mun það fé ekki fara í umferð fyrr en Seðla- bankanum þóknast það með stjórn sinni á peningamagni í umferð til þess að ráða við verðbólguna. Þetta er eina haldbæra lausnin Það þarf ekki að skoða eða leita eða kortleggja eitt eða neitt. Það er búið að gera það. Þetta er þaulreynd og þekkt aðferð, sem t.d. lesa má um á Wikipedia.com undir „TARP“, „HAMP“ og „Quantative easing“ eða á www.xg.is undir Kynslóða - sáttin. Þetta er eina lausnin sem er fær eða til er án þess að hækka skatta á alla alþýðu manna eða að það kosti stórfé sem annaðhvort er ekki til eða þarf að nota í svo margt annað. Það er afar mikilvægt að fólk skilji og geri sér fulla grein fyrir þessu stór- máli, sem svo margir þjást undan og ef það vill að þessum leið réttingum verði komið á fyrir sig, þá verður það að kjósa Hægri græna með því að setja X við G 27. apríl nk. Það er lífsspursmál fyrir fólkið. Handbolti: Kári Krist ján atvinnu- laus? Mál Kára Kristjáns Kristjáns sonar, handknatt leiks - manns frá Vest - manna eyjum hefur vakið mikla athygli undan farið. Kári Kristján lék með íslenska landsliðinu í tveimur leikjum gegn Slóveníu en fram að leikjunum, hafði hann verið á sjúkralista þýska liðsins Wetzlar. Forráðamenn félagsins telja að Kári hafi ekki haft leyfi til að spila lands leikina, enda á sjúkralista og riftu því samningi við leikmanninn. Kári segir hins vegar að hann hafi óskað eftir því við lækna félagsins að vera tekinn af sjúkralista og fá að hefja æfingar með liðinu. Hann taldi sig því í fullum rétti til að spila með landsliðinu og taka svo upp þráðinn með félagsliðinu. Forráðamenn Wetzlar segja Kára Kristján ljúga þessu og fram - kvæmda stjóri félagsins bætti um betur og meinaði honum aðgang að æfingu félagsins í gær, þriðjudag. Málið virðist því vera komið í algjöran hnút en Kári Kristján er búinn að semja við danska félagið Bjerringbo/Silkeborg um að leika með því næsta vetur. Um það hefur verið rætt að hugsanlega sé þýska félagið að spara sér útgjöld með að rifta samningi við Kára. Félög í Þýska- landi tryggja sína leikmenn, þannig að þegar þeir meiðast, þá greiða tryggingafélög laun þeirra. Þess vegna hafi þeir verið ófúsir til að taka hann af sjúkralista, til að spara sér launa kostn aðinn. Þetta hefur skiljanlega ekki fengist staðfest en lögfræðingur Kára Kristjáns, Stephen Pfeiffer, er með málið á sinni könnu og á Vísi.is kemur fram að Pfeiffer vonist til að hægt verði að leysa málið. „Við vonum fyrst og fremst að hægt verði að finna lausn á þessu máli sem verði bæði íþróttinni og Kára sjálfum til heilla. Ef þetta verður að dómsmáli munum við skýra frá málstað okkar í dómsalnum.“ Skuldastaða Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja hefur aldrei verið verri. Hópur á vegum velferðar- ráðuneytisins mun á næstunni fara yfir reksturinn með stjórnendum stofnunarinnar. Þetta kemur fram á vef RÚV. Gunnar K. Gunnarsson, forstjóri, segir að stofnunin sé í vanskilum við flesta birgja sína. Margir hafi sýnt óhemjumikla þolinmæði en það séu takmörk fyrir öllu. Forstjórinn gat grynnkað á skuld - unum eftir að stofn unin fékk nýlega 15 milljóna króna aukafjármagn frá velferðarráðuneytinu. „En það er í raun og veru aðeins til þess að hjálpa okkur svona rétt að anda í einn mánuð eða svo,“ sagði Gunnar. Hann segir jafnframt að annað- hvort fái stofnunin meira fjármagn til reksturs eða að þjónustan verði skert. Sú ákvörðun sé póiltísk og verði að koma úr ráðu neytinu. RÚV: Sjúkrahúsið skuldar 100 milljónir KJARTAN ÖRN KJARTANSSON Varaformaður Hægri grænna Þetta er eina lausnin sem er fær eða til er án þess að hækka skatta á alla alþýðu manna eða að það kosti stórfé sem annaðhvort er ekki til eða þarf að nota í svo margt annað. Það er afar mikilvægt að fólk skilji og geri sér fulla grein fyrir þessu stór- máli, sem svo margir þjást undan og ef það vill að þessum leið réttingum verði komið á fyrir sig, þá verður það að kjósa Hægri græna með því að setja X við G 27. apríl nk. ” Öll verðtryggð húsnæðislán eftir 01.11.2007 leiðrétt ÓMAR GARÐARSSON omar@eyjafrettir. is

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.