Fréttir - Eyjafréttir - 10.04.2013, Page 20
20 Eyjafréttir / Miðvikudagur 10. apríl 2013
°
°
Vel heppnuð æfingaferð
til Valencia
:: Unnu Valencia Cup og Bryndís Jóhannesdóttir valin leikmaður mótsins.
Kvennalið ÍBV fór á dögunum til
Spánar í æfingaferð, nánar tiltekið til
Valencia. Þar æfði liðið tvisvar á dag
en tók svo þátt í Valencia Cup, sem
er knattspyrnumót kvennaliða og er
haldið í borginni. 2. flokkur ÍBV lék
þrjá leiki í mótinu, fyrst gegn
Segorbe frá Spáni sem endaði 4:0
fyrir ÍBV. Næst var leikið gegn Val -
encia, þar sem heimaliðið hafði betur
1:3 en að lokum töpuðu stelpurnar
fyrir Aurrera 0:4.
Meistaraflokkur byrjaði á því að
vinna Benageber 2:0 og Maritim 3:2.
Í síðasta leik riðilsins völtuðu stelp -
urnar svo yfir Chimena 11:2 og voru
þar með komnar í undanúrslit. Þar
lögðu Eyjastelpur Aurrera 4:0. Í
úrslitaleik mætti ÍBV svo Valencia en
staðan í hálfleik var 0:0. Sigríður
Lára Garðarsdóttir tryggði ÍBV svo
sigurinn með marki á lokamínútu
leiksins.
Í mótslok var Bryndís Jóhannes -
dóttir valin leikmaður mótsins. Hópurinn sem spilaði fyrir hönd ÍBV, bæði meistaraflokkur og 2. flokkur, ásamt þjálfurum og fararstjórum.
Elísa Viðarsdóttir, fyrirliði ÍBV tekur við sigurverðlaununum
eftir úrslitaleikinn.
Bryndís Jóhannesdóttir,
besti leikmaður mótsins.
Guðný Óskarsdóttir fagnaði afmæli sínu úti á Spáni
og fékk auðvitað afmælisköku frá stelpunum.
Þótt hótelgarðurinn hafi ekki verið stór, þá er ekki að sjá annað en þær
Selma, Svava Tara og Bjartey kunni ágætlega við sig í sólinni. Jón Ólafur Daníelsson les yfir hausamótunum á yngra liðinu í einum af leikjum liðsins í Valencia Cup.
Hressandi
tónleikar Meik
Hljómsveitin MEIK hélt tónleika í
Höllinni á föstudagskvöld. Sveitin
flytur eingöngu tónlist bandarísku
rokksveitarinnar KISS en nafn
hinnar íslensku sveitar er einmitt
dregið af andlitsmálningu sveitar -
innar sem allir þekkja. MEIK-liðar
komu einmitt fram málaðir eins og
goðin gerðu svo oft áður fyrr, og
reyndar á síðustu árum þegar KISS
hefur komið fram á tónleikum.
Tónleikarnir í Höllinni á föstu -
daginn voru bráðskemmtilegir og
ekki að sjá annað en að þeir tæplega
200 áhorfendur sem mættu hafi
skemmt sér konunglega. Nokkrir
mættu í bolum merktir KISS í bak
og fyrir á meðan aðrir bættu um
betur og mættu málaðir að hætti
KISS. Sveitin sjálf er skipuð
afburðar tónlistarmönnum og sló
varla feilnótu á tónleikunum.
Hljómsveitin MEIK á sviði
í Höllinni, vel meikaðir og
í góðum gír.