Fréttir - Eyjafréttir - 10.04.2013, Page 21
°
° Eyjafréttir / Miðvikudagur 10. apríl 2013 21
VG fundaði í Eyjum :: Láta ekki mótbyr slá sig út af laginu:
Eyjamenn eiga dyggan stuðnings-
mann í Ögmundi
:: Það sagði Arndís Soffía, oddviti listans í umræðu um samgöngumál
Það blæs ekki byrlega fyrir
Vinstri grænum sé að marka
síðustu skoðanakannanir og litl -
ar líkur á að flokkurinn haldi
manni sínum í Suðurkjördæmi.
Þau Arndís Soffía Sigurðardóttir,
Inga Sigrún Atla dóttir og Þór-
bergur Torfason, sem skipa þrjú
efstu sætin á lista flokksins í
Suðurkjördæmi, báru sig samt
vel á framboðsfundi á Kaffi Kró
á sunnudaginn. Þau segja
flokkinn eiga fullt erindi við
landsmenn og nú hljóti leiðin að
liggja upp á við fram að kosn -
ingum.
Það sem háir kosningabaráttu VG í
Suðurkjördæmi er hvað þau Arndís
Soffía, Inga Sigrún og Þórbergur
eru lítið þekkt í kjördæminu. Það
geta þau þakkað Atla Gíslasyni,
alþingismanni, sem yfirgaf flokk -
inn í upp hafi þessa kjörtímabils en
sat áfram á þingi. En þau eru öll af
vilja gerð og á meðan þau stoppuðu
í Eyjum bönkuðu þau upp á hjá
stórum hluta heimila í Eyjum til að
kynna sig. Aðferð sem oft hefur
dugað og er örugglega í fullu gildi.
Ábyrgð, jöfnuður og almannaheill
eru þungamiðjan í stefnu flokksins í
ríkisfjármálum og ríkisbúskap
næstu fjögur árin. Þau vilja byggja
á árangri yfirstandandi kjörtímabils
og segja að svigrúmið sem skapast
á næsta kjörtímabili vegna núver -
andi stefnu í ríkisfjármálum verði
upp á 50 til 60 milljarða með auk -
inni landsframleiðslu og auknum
tekjum af auðlinda- og umhverfis-
gjöldum.
Áherslan hjá VG á næsta kjörtíma-
bili eru bætt kjör, menntamál, heil-
brigðismál og velferðarmál og út-
skýrðu þau hvernig það verður gert.
Þau vilja efla heilsugæslu, bæta
stöðu barnafjölskyldna, efla barna-
og vaxtabótakerfið, stuðning við
skuldsett heimili og nýju húsnæðis -
kerfi, sem tryggir öllum öruggt
heimili, verði komið á laggirnar.
Eins og á öðrum pólitískum
fundum í Vestmannaeyjum voru
samgöngur og Landeyjahöfn mál
málanna þegar umræður hefjast.
Arndís Soffía sagði að Vestmanna -
eyingar ættu dyggan stuðnings-
mann í Ögmundi Jónas syni,
innanríkisráðherra, sem vill sjá að
Landeyjahöfn verði sú samgöngu -
bót sem ætlað var í upphafi og að
nýtt skip sem hentar verði komið í
gagnið 2015 og síðasta lagi 2016.
Stefnuskrá VG
Í stefnuskrá Vinstri grænna, sem
þeir kalla Stórsókn að bættum lífs -
kjörum, segir m.a. að á næstu árum
sé raunhæft að hefja stórsókn að
bættum lífs kjörum á Íslandi. „Þar
vill Vinstrihreyfingin – grænt fram-
boð setja uppbyggingu heilbrigðis-
mála, menntamála og velferðarmála
í forgang. Þetta er grundvöllurinn í
kosningaáherslum Vg.
Þetta er hægt með áframhaldandi
ábyrgri stjórn ríkisfjármála og
áherslu á fjölbreytta og sjálfbæra
atvinnuuppbyggingu sem mun
skapa svigrúm hjá ríkissjóði á næsta
kjörtímabili. Áætlun Vinstri grænna
fyrir ríkisfjármál á næsta kjörtíma-
bili gerir ráð fyrir að á bilinu 50-60
milljarða króna svigrúm verði til
sóknar í heilbrigðis-, mennta- og
velferðarmálum auk þess sem hægt
verður að hefja niðurgreiðslur
skulda ríkissjóðs. Áætlunin byggir á
þjóðhagsspá Hagstofunnar, að
skattkerfið verði óbreytt auk þess að
auðlindarenta vegna nýtingar á jarð-
varma og vatnsföllum skili sér í
auknum mæli til ríkissjóðs í sam-
ræmi við tillögur Auðlindastefnu -
nefndar. Engar skattahækkanir eða
frekari niðurskurður í heilbrigðis-,
mennta- og velferðarmálum er
áætlaður.
Stefnuskrá VG má lesa í heild
sinni á heimasíðu flokksins,
www.vg.is
Eyjamenn sáttir eftir Aldrei fór ég suður
:: Magnaðir Off venue tónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja og Fjallabræðra
:: Blind Bargain ánægðir með viðbrögð eftir framkomuna
Lúðrasveit Vestmannaeyja og
Fjallabræður héldu magnaða
tónleika á Ísafirði á skírdag, eða
daginn áður en tónlistarhátíðin
Aldrei fór ég suður var haldin
þar í bæ. Tónleikarnir heppn -
uðust einstaklega vel og voru
um eitt þúsund manns í
Íþróttahúsinu við Torfnes, þar
sem tónleikarnir voru haldnir.
Eyjasveitin Blind Bargain kom
svo fram á sjálfri hátíðinni.
Jarl Sigurgeirsson, stjórnandi
Lúðrasveitarinnar, sagði í samtali
við Eyjafréttir að um hefði verið að
ræða svokallaða „Off venue“ tón-
leika tónlistarhátíðarinnar en aldrei
áður hafa verið haldnir jafn stórir
tónleikar. „Öll umgjörð tónleik -
anna var stórglæsileg, drapperingar
þöktu veggi íþróttasalarins, lýsing
og hljóð var með besta móti. Það
var í raun ótrúlegt að taka þátt í
undirbúningi tónleikanna því við
tæmdum tvo 40 feta gáma af dóti
daginn fyrir tónleikana, settum upp
svið, stóla fyrir áhorfendur, lýsingu
og hljóð og svo hefði verið hægt að
halda körfu boltaæfingu á miðnætti
eftir tónleikana. Það var ekki verið
að dvelja neitt við hlutina,“ sagði
Jarl.
„Við tókum öll helstu lögin, s.s.
þjóðhátíðarlagið 2012, Ísland er
land þitt, Thunderstruck og bættum
svo við tveimur nýjum lögum,
Freyju eftir Magnús Þór og Leið -
inni okkar allra með Hjálmum. Við
höfum alltaf bætt nýjum lögum við
lagalist ann þegar við komum fram
en samstarf Fjallabræðra og Lúðra -
sveitar Vestmannaeyja má rekja
aftur til ársins 2011 þegar við
komum fram með þeim á þjóðhátíð.
Á mánudags morgninum eftir þjóð -
hátíð vorum við Halldór Gunnar,
stjórnandi Fjalla bræðra, að ræða
málin og vorum sammála um að við
yrðum að vinna meira saman. Úr
varð að við spiluðum undir í þjóð -
hátíðarlaginu og í öðru lagi, Ísland
sem Halldór Gunnar er að vinna að.
Við komum auk þess fram á þjóð -
hátíð í fyrra með Fjallabræðrum þar
sem frumflutn ingur þjóðhátíðar-
lagsins var að margra mati einn af
hápunktum hátíðarinnar. Hug -
myndin var að halda tónleika á Ísa -
firði og í Vestmannaeyjum. Núna
erum við búnir á Ísafirði og næst
langar okkur að halda stóra tónleika
hér í Eyjum,“ sagði Jarl að lokum.
Ævintýraleg lífsreynsla
Eyjasveitin Blind Bargain var
einnig á Ísafirði þessa sömu helgi
en sveitina skipa þau Sunna Guð -
laugsdóttir, söngur, Hannes Már,
gítar og söngur, Skæringur Óli,
gítar, Þorgils Árni, bassi, Kristberg
Gunnars, trommur og Sveinn Ares,
básúna.
Sveitin kom fram á föstudegi
hátíðarinnar en Skæringur Óli sagði
í samtali við Eyjafréttir að þeir
væru mjög ánægðir með hátíðina.
„Þetta var ævintýraleg lífsreynsla
að koma fram á þessari stóru tón -
listarhátíð. Þarna er bara eitt svið
og allir koma fram þar, spila í 20-25
mínútur í senn og allir fá jafn
langan tíma. Við vorum mjög
ánægðir með umgjörð ina og það
var þó nokkur fjöldi þegar við
komum fram. Tónleikahaldarar
voru sniðugir og fengu Mugison til
að opna hátíðina, þannig að áhorf -
endur komu strax. Það var reyndar
pínu kalt uppi á sviðinu en það var
fljótt að fara úr manni,“ sagði
Skæringur en Sunna gat ekki verið
með þeim fyrir vestan, þar sem hún
tekur þátt í uppfærslu Leikfélagsins
á Grease.
„Við erum mjög ánægðir með
viðbrögðin sem við fengum. Við
sjáum aukna umferð á facebook
síðuna okkar og höfum orðið varir
við eitt og eitt myndband frá tón-
leikunum okkar á youtube og face-
book. Þetta er fínt veganesti inn í
sumarið,“ sagði Skæringur að
lokum.
Þess má geta að á vefsíðunni
gusti.is má sjá myndir, bæði frá tón-
leikum Lúðrasveitarinnar og
Fjallabræðra, auk mynda frá sjálfri
hátíðinni.
Frá tónleikum Lúðrasveitar Vestmannaeyja og Fjallabræðra. Mynd: Ágúst Atlason/gusti.is.
JÚLÍUS G. INGASON
julius@eyjafrettir. is
ÓMAR GARÐARSSON
omar@eyjafrettir. is