Fréttir - Eyjafréttir - 10.04.2013, Qupperneq 23
Eyjafréttir / Miðvikudagur 10. apríl 2013 23
°
°
Knattspyrna
Eyjapeyi í her-
búÝir ÍBV
Eyjapeyinn Gunnar Þorsteinsson,
sem hefur undanfarin misseri verið
á mála hjá enska félaginu Ipswich,
er genginn í raðir ÍBV. Gunnar er
sonur Þorsteins Gunnarssonar, sem
lék í marki ÍBV á árum áður en
Gunnar er 19 ára miðjumaður og á
tvo leiki að baki í efstu deild með
Grindavík. Gunnar hefur verið í
unglingaliði Ipswich en fær ekki at -
vinnumannasamning hjá félaginu.
Jafnt gegn
Fylki
ÍBV sótti Fylki heim í Árbæinn í
síðasta leik sínum í 1. riðli Lengju-
bikarsins á mánudag. Eyjamenn
áttu afar veika von um að komast í
úrslit keppninnar og þurftu nauð -
synlega á sigri að halda, auk þess
sem úrslit úr öðrum leikjum þurftu
að falla með liðinu. ÍBV byrjaði
vel, skoraði fyrstu tvö mörkin en
Fylkir náði að jafna metin og loka -
tölur því 2:2. Mörk ÍBV gerðu
þeir Aaron Spear og Gunnar Már
Guðmundsson.
ÆfingaferÝ til
Englands
Karlalið ÍBV hélt í æfingaferð til
Englands í gær, þriðjudag. Liðið
mun lék gegn varaliði Bourne -
mouth í dag, miðvikudag, en úrslit
leiksins voru ekki kunn þegar
blaðið fór í prentun. Næstkomandi
þriðjudag mun liðið svo leika gegn
C-deildarliði Portsmouth á
heimavelli liðsins, Fratton Park en
leikurinn er jafnframt góðgerðar-
leikur fyrir hið fjárvana félag. Þeir
Hermann Hreiðarsson og David
James léku saman með Ports -
mouth á sínum tíma.
Gunnar meÝ
tvö í tveimur
Gunnar Heiðar Þorvaldsson heldur
áfram uppteknum hætti frá því í
fyrra þegar hann varð næstmarka -
hæsti leikmaður sænsku deildar -
innar. Gunnar hefur nú skorað tvö
mörk í jafn mörgum leikjum í
tveimur fyrstu umferðum sænsku
deildarinnar. Gunnar skoraði í 2:1
sigri Norrköping á Mjallby og
bætti svo um betur um síðustu
helgi þegar hann skoraði fyrsta
markið og lagði upp það síðara í
sigri á Gefle. Norrköping er á
toppi sænsku deildarinnar ásamt
IFK Gautaborg.
Framundan
Fimmtudagur 11. apríl
Kl. 18:00 Fylkir 1-ÍBV
3. flokkur kvenna, handbolti.
Föstudagur 12. apríl
Kl. 20:00 Fram-ÍBV
Úrslitakeppni kvenna, handbolti.
Laugardagur 13. apríl
Kl. 14:00 ÍBV-Þór/KA
Lengjubikar kvenna, fótbolti.
Kl. 14:00 Ísbjörninn-KFS
Lengjubikar karla, fótbolti.
Kl. 13:00 ÍBV-Hörður 1
4. flokkur karla, handbolti.
Sunnudagur 14. apríl
Kl. 15:00 ÍBV-Fram
Úrlitakeppni kvenna, handbolti.
Kl. 17:30 Haukar 1-ÍBV
4. flokkur karla, handbolti.
Mánudagur 15. apríl
Kl. 16:00 Fram 1-ÍBV
3. flokkur karla, handbolti.
Íþróttir
Úrslitakeppni kvenna:
Knattspyrna
Tveir nýir leik-
menn í ÍBV
Kvennalið ÍBV í knattspyrnu hefur
samið við Nadiu Lawrence um að
spila með liðinu í sumar. Nadia er
24 ára sóknarmaður frá Cardiff en
hún kemur að mestu á eigin
vegum. Þá hefur félagið einnig
samið við sóknarmanninn Rosie
Sutton frá Ástralíu en Rosie er 23
ára og kemur frá félaginu Perth
Glory.
Jón Ólafur Daníelsson, þjálfari
ÍBV, segist stefna á að bæta
tveimur leikmönnum til viðbótar
við liðið enda hefur félagið séð á
eftir níu leikmönnum sem léku
stórt hlutverk síðasta sumar þegar
ÍBV endaði í öðru sæti Íslands -
mótsins. Þetta eru þær Danka
Podovac, Berglind Björg Þorvalds-
dóttir, Julie Nelson, Andrea Ýr
Gústavsdóttir, Anna Þórunn Guð-
mundsdóttir, Elínborg Ingvars -
dóttir, Kristín Erna Sigurlásdóttir,
Svava Tara Ólafsdóttir og Hlíf
Hauksdóttir.
Svava Tara
ekki meÝ í
sumar
Kvennalið ÍBV hefur orðið fyrir
enn einu áfallinu því varnar-
maðurinn efnilegi, Svava Tara
Ólafsdóttir, mun ekkert leika með
liðinu í sumar. Kristín Erna Sig-
urlásdóttir sleit krossband í hné og
mun ekki heldur leika með liðinu í
sumar. Svava Tara fór í aðgerð
vegna liðbands í hné en meiðslin
hafa verið að plaga hana undan-
farin ár. Vonir stóðu til að hægt
væri að bíða með aðgerðina fram
á sumar en ekki reyndist unnt að
bíða lengur.
Snóker:
Jóhann Ólafs
Kiwanis -
meistari
Jóhann Ólafsson tryggði sér á
föstudaginn sigur í Meistaramóti
Kiwanismanna í snókar. Í úrslita -
leik mætti hann Hlyn Stefánssyni
og hafði betur 3:1. Júlíus G. Inga-
son hafði áður tryggt sér þriðja
sætið í mótinu. Það virðist sem
öldungarnir í snókernum séu því
að standa sig þessa dagana eins og
sjá má annars staðar á íþrótta -
síðunni. Mótið markar lok keppn -
istímabilsins í snókernum enda
margir farnir að taka fram golf -
kylfurnar með hækkandi sól
Íþróttir
VerÝum aÝ vinna saman
:: segir Ingibjörg Jónsdóttir, leikreyndasti leikmaÝur Íslandsmótsins
Kvennalið ÍBV er komið í undan -
úrslit Íslandsmótsins eftir að hafa
lagt FH að velli í tveimur leikjum.
FH gerði Eyjaliðinu þó erfitt fyrir,
því fyrri leikur liðanna endaði í
framlengingu þar sem ÍBV hafði
að lokum betur, 29:26. Eyjaliðið
hafði betri tök á síðari leiknum og
vann hann 19-25. Þar með er ÍBV
komið í undanúrslit þar sem liðið
mætir Fram, öðru af tveimur
bestu liðum í kvennaboltanum
undanfarin ár. Liðin mætast fyrst
í Reykjavík á föstudag en svo aftur
í Eyjum á sunnudag. Vinna þarf
þrjá leiki til að komast í úrslita -
rimmuna en í hinni viðureigninni
eigast við Valur og Stjarnan.
Ingibjörg Jónsdóttir, sem tók fram
skóna á ný eftir að Ivana Mladenovic
þurfti að yfirgefa landið, segir að
leikirnir gegn FH hafi verið mjög
grófir. „Þeir voru það og leikmönn -
um FH var hleypt of langt í að spila
fast. Þær voru bara grófar og brotin
hreinlega hættuleg. Ég man ekki
eftir því að þetta hafi verið svona
mikið þegar ég var sem mest í þessu.
Við Björgvin Eyjólfsson vorum að
rifja það upp að þetta var svona þegar
Judith Estergal var hérna í kringum
1990 en ekki mikið eftir það. Mark-
miðið hjá FH var greinilega að
tuddast í okkur og slá okkur út af lag-
inu. Það tókst hjá þeim í fyrri
leiknum. Við hörfuðum en við héld -
um þessu með góðri vörn og unnum
svo í framlengingunni. En í seinni
leikn um höfðum við betri tök á
þessu. Við náðum góðri forystu sem
FH náði reyndar að minnka niður í
eitt mark en það var fyrst og fremst
vegna þess að við slökuðum á.
Svavar tók þá leikhlé, náði upp ein-
beitingu og um leið og boltinn fékk
að ganga, hættum að rembast ein og
ein, þá gekk þetta. Þetta eru engin
geimvísindi, við verðum að vinna
þetta saman.“
Spennandi verkefni
Hvernig líst þér á að mæta Fram í
undanúrslitum?
„Þetta er mjög spennandi verkefni.
Ef við hittum á leik eins og gegn Val,
þar sem vörnin var góð og við
vorum samstilltar, þá hef ég ekki
áhyggjur af þessu. Við erum enn að
stilla saman strengina eftir að ég kom
inn í þetta og við Sandra Gísladóttir
erum að hjálpast að við að leysa
línustöðuna. Við erum á réttri leið.“
Er ekki öll pressan á Fram?
„Staðan í deildinni segir að þær eigi
að vinna okkur. En við mætum
ákveðnar til leiks og ætlum okkur að
vinna alla leiki. Mér skilst að
stelpurnar hafi spilað mjög vel gegn
Fram á útivelli í síðasta leik og það
þarf ekki mikið til þess að þær
brotni.“
Skytturnar kannski of
snöggar
Ingibjörg hefur sýnt það að lengi býr
í gömlum glæðum en þrátt fyrir að
vera 43 ára gömul, er hún í fanta -
formi og gefur yngri leikmönnum
ekkert eftir. Þess má til gamans geta
að 28 ára aldursmunur er á yngsta
leikmanni ÍBV og þeim elsta en Arna
Þyrí Ólafsdóttir er 15 ára. Ingibjörg
segir að leikmenn liðsins hafi tekið
sér vel og að stuðningurinn gefi
henni mikið.
„Það var ekkert óskastaðan að koma
aftur inn í þetta, ofan á fulla vinnu og
heimilishald. En á meðan hægt er að
nota mig, þá er ég til í slaginn fyrir
félagið. Stelpurnar hafa tekið mér
mjög vel og stuðningurinn, bæði
innan og utan vallar, hefur gefið mér
mikið sjálfstraust. Leikformið hefur
oft verið betra og skotin gætu verið
betri en maður gerir bara sitt besta.
Meira get ég ekki gert.“
Þú þekkir ágætlega til Framliðsins
eftir að hafa spilað gegn þeim með
B-liðinu og skorað níu mörk gegn
þeim?
„Já, þær mötuðu mig svo vel, gömlu
skytturnar í B-liðinu. Kannski eru
skytturnar í ÍBV of snöggar fyrir
mig, ég veit það ekki,“ sagði Ingi -
björg að lokum og hló. Hún skoraði
jafnframt á Eyjamenn að fjölmenna
á heimaleikinn á sunnudag og styðja
við bakið á liðinu.
Ingibjörg í kunnuglegri stellingu í fyrri leiknum gegn FH.
Handbolti:
Snóker:
Páll Pálmason tryggði sér um helg -
ina Íslandsmeistaratitil í snóker 67
ára og eldri. Mótið fór fram í
Reykjavík en tveir Eyjamenn tóku
þátt í mótinu, Páll og Kristján Egils-
son. Þeir félagar æfa saman snóker í
Kiwanis og sú æfing skilar greinilega
árangri því Kristján varð í öðru sæti
í mótinu.
Á myndinni má sjá þá Pál, í miðju
og Kristján til vinstri ásamt Lúðvík
Norgulen, sem varð þriðji.
Páll Íslands -
meistari
Drífa og
Teddi áfram
hjá ÍBV
Þau Drífa Þorvaldsdóttir og Theodór
Sigurbjörnsson skrifuðu á föstu -
daginn undir nýja samninga hjá ÍBV.
Drífa er samningsbundin ÍBV næstu
tvö tímabil en Theodór næstu þrjú.
Bæði hafa þau, þrátt fyrir ungan
aldur, verið lykilmenn í sínum liðum
og bæði eiga þau fjölmarga ung -
linga landsleiki að baki. Drífa er 19
ára en Theodór 21 árs. Drífa og Theodór, ásamt Sindra Ólafssyni, formanni handknattleiksráðs.
Jóhann með sigurverðlaunin,
myndarlegan bikar.