Fréttir - Eyjafréttir - 10.04.2013, Qupperneq 24
°
°
Sími 481-1300 | frett i r@eyjafrett i r. is
FRÉTTIREYJA VIKUTILBOÐ
11. -17. apríl
Sushi frá Osushi
Kemur til okkar
föstudaga kl. 17.30
Tökum niður pantanir !
B
ir
ti
st
m
eð
fy
ri
rv
ar
a
um
in
ns
lá
tt
ar
vi
ll
ur
o
g
m
yn
da
br
en
gl
OPNUNARTÍMI:
Mán. - Föst.
kl. 7.30 - 19.00
Laugardaga
kl.10.00 - 19.00
Sunnudaga
kl.11.00 - 19.00
SS Grand Orange lambafille
verð nú kr 4998,-
verð áður kr 5998,-
Cocoa Puffs 335 gr
verð nú kr 448,-
verð áður kr 558,-
Capri Sonne safi 10x200 ml
verð nú kr 298,-
verð áður kr 598,-
MS Engjaþykkni
verð nú kr 118,-
verð áður kr 145,-
Kotasæla 500 gr
verð nú kr 388,-
verð áður kr 448,-
SS Hamborgarar 10 stk
verð nú kr 1098,-
verð áður kr 1398,-
SS Súpukjöt
verð nú kr/kg 798,-
verð áður kr/kg 1098,-
Kvennalið ÍBV er komið í undanúrslit Íslandsmótsins eftir að hafa lagt FH að velli í tveimur leikjum. Í næstu
umferð mætir liðið Fram en vinna þarf þrjá leiki til að komst í úrslit. Guðbjörg Guðmannsdóttir var
markahæst í báðum leikjunum gegn FH og á myndinni hér að ofna svífur hún inn úr horninu og skorar eitt af
mörkum sínum.
Bolfiskvertíð stendur sem hæst :: Landa tvisvar í viku:
Vestmannaey VE 22
klukkutíma að fylla
:: Mikil vinna í frystihúsunum :: Mikið af góðum þorski
Nú stendur vertíð sem hæst og
eru bolfiskskipin, bæði togskip
og netabátar, að koma að landi
með góðan afla og togskipin oft -
ast eftir stutta túra. Mikil vinna er
í frystihúsunum þar sem fiskur -
inn er saltaður, valin stykki send
fersk á markað erlendis og hluti
frystur. Verð á mörkuðum hefur
verið á niðurleið en er þó enn
viðunandi. Ástæðan fyrir lægra
verði eru erfiðleikar í okkar
helstu viðskiptalöndum. Mikill
þorskur er á miðunum og stund -
um of mikill fyrir skip með lítinn
kvóta í þorski.
Hjá Berg-Hugin fengust þær upplýs -
ingar að þar hefði aflinn verið mjög
góður undanfarið. Bergey VE og
Vestmannaey VE eru að landa tvisvar
í viku, oftast fullfermi. Óskar Pétur,
ljósmyndari Eyjafrétta, brá sér í túr
með Vestmannaey og stóð hann í
nákvæmlega 22 klukkutíma frá
bryggju að bryggju. Er það gott
dæmi um fiskiríið síðustu daga. „Við
fórum út klukkan átta á sunnudags -
kvöldið og vorum komnir að klukkan
sex kvöldið eftir. Þeir voru með nán -
ast fullfermi, 140 tonn eða á milli 65
og 70 tonn eftir tæpan sólarhring.
Eina vandamálið var of mikill þorsk -
ur á miðunum,“ sagði Óskar Pétur.
Hjá Ísfélaginu landaði Þorsteinn ÞH í
dag 305 körum eða um 90 tonnum.
Var aflinn að mestu ufsi.
Suðurey VE landaði á mánudaginn
253 körum sem eru um 75 tonn og
var það að mestu þorskur. Er mikil
vinna í Ísfélaginu við að verka
fiskinn.
Vinnslustöðin gerir út fjóra báta á
bolfisk, togskipin Jón Vídalín VE og
Drangavík VE á troll og Kristbjörg
VE og Brynjólfur VE eru á netum.
Anna Sigríður Hjaltadóttir, fram-
leiðslustjóri í Vinnslustöðinni, hefur
haft í mörg horn að líta í bolfisk -
vinnslunni síðustu daga og vikur þar
sem unnið er tólf tíma á dag. „Það
hefur verið mjög góð veiði hjá
skipunum okkar eftir að veðrið fór að
lagast fyrir tveimur vikum eða svo.
Þetta er mest þorskur, stór millifiskur
sem er unninn í salt, frost og hnakka -
stykkin sendum við út fersk,“ sagði
Anna Sigríður.
„Við höfum verið að salta á fullu frá
því loðnuvertíð lauk og erum búin að
framleiða um 500 tonn af flöttum
fiski. Okkar helsti markaður fyrir
saltfisk er í Portúgal og það eru víðar
erfiðleikar en hér á Íslandi. Það á við
um Portúgal þar sem lægra verð fæst
fyrir dýra vöru eins og saltfiskurinn
er. Það er þó viðunandi en ekki eins
gott og þegar best lét.“
Mikil vinnsla er einnig í frystingu
og ferskum fiski sem er mest ferskir
hnakkar á Frakkland. „Það er mest
þorskur en smávegis af ufsa sem við
flytj um út með skipum, 20 til 25 tonn
á viku. Sporðstykkin eru lausfryst en
svo erum við líka að vinna í blokk og
salta þunnildi. Þá er líka mikil vinna
í ufsa og karfa hjá okkur,“ sagði
Anna en hvað vinna margir við
vinnsluna hjá henni?
„Það eru á milli 140-150 manns en
hluti þeirra er núna að leika sér úti á
Tenerífe og aðrir eru á leið til Berlín -
ar. Það er nauðsynlegt að geta litið
upp annað slagið og komist í nýtt
umhverfi,“ sagði Anna Sigríður en
ferðirnar eru á vegum Starfsmanna -
félagsins.
Við höfum verið að salta á fullu frá því loðnu-
vertíð lauk og erum búin að framleiða um 500
tonn af flöttum fiski. Okkar helsti markaður
fyrir saltfisk er í Portúgal og það eru víðar erf -
iðleikar en hér á Íslandi. Það á við um Portú-
gal þar sem lægra verð fæst fyrir dýra vöru
eins og saltfiskurinn er. Það er þó viðunandi
en ekki eins gott og þegar best lét.
”
OMAR GARÐARSSON
omar@eyjafrettir. is