Fréttir - Eyjafréttir - 04.06.2014, Blaðsíða 10
°
°
10 Eyjafréttir / Miðvikudagur 4. júní 2014
Stúdentar Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum setja upp hvítu kollana við útskrift á vorönn 2014.
Útskrift af vorönn Framhalds-
skólans í Vestmannaeyjum fór
fram laugardaginn 24. maí
síðastliðinn. Alls voru sextán
stúdentar útskrifaðir, auk þeirra
fjórir sjúkraliðar, tveir úr grunn-
deild rafiðnaðar og þrír voru
útskrifaðir af starfsbraut.
Helga Kristín Kolbeinsdóttir,
aðstoðarskólameistari fór yfir
önnina í starfsskýrslu skólans en
vorönn hófst með skólasetningu
mánudaginn 6. janúar og hófst
kennsla daginn eftir. Í máli Helgu
kom fram að nemendur hafi tekið
þátt í ýmsum verkefnum utan við
hefðbundið nám. „Sunnudaginn 12.
janúar tóku nemendur þátt í Gettu
betur spurningakeppninni í útvarpi
en töpuðu fyrir liði frá Menntaskól-
anum í Kópavogi, niðurstaðan
17:11. Söngkeppni FIV var haldin í
skólanum 29. janúar. Dómnefndin
átti erfitt val, en niðurstaðan var að
Helga Sóley Aradóttir og Una
Þorvaldsdóttir unnu og tóku þátt
fyrir hönd skólans í söngvakeppni
Framhaldsskólanna á Akureyri 5.
apríl síðastliðinn. Nemendur tóku
þátt í Snilldarlausnum Marels og
þrjú lið sendu inn tillögur. Þeir sem
tóku þátt í ár sóttu allir tíma í
FAB- LAB hjá Frosta Gíslasyni,
tekst honum vel að virkja nemendur
til að hugsa út fyrir rammann og
kunnum við honum bestu þakkir
fyrir. Keppnin hófst formlega 7.
febrúar og fólst í því að auka virði
flösku. Eitt af liðunum þremur, sem
var skipað þeim Arnari Sveini
Guðmundssyni, Aroni Mána
Símonarsyni og Baldvini Búa
Wernerssyni fékk verðlaun og ekki
bara ein heldur tvenn, sem vinsæl-
asta lausnin og sú lausn sem þykir
líklegust til framleiðslu. En
félagarnir breyttu flösku í hleðslu-
tæki sem styrkir vöðva líkamans
um leið og hún hleður raftæki í
gegnum USB. Breytir hreyfiorku í
raforku,“ sagði Helga.
Ráðuneytið ánægt
Helga kom einnig inn á að hún og
Ólafur H. Sigurjónsson, skóla-
meistari hafi sótt árlegan fund í
Mennta- og menningarmálaráðu-
neyti um skólastarfið, skólasamn-
inga og sjálfsmat skólans. „Ráðu-
neytið lýsti yfir ánægju sinni með
það starf sem fram fer í skólanum,
markmiðssetningar og mat. Hvet ég
þá sem hafa áhuga á að kynna sér
það betur með því að fara á
heimasíðu skólans en þar má finna
samninga og skýrslur um skóla-
starfið.“
Vínuefnanotkun lítil
Helga sagði jafnframt að eðli
málsins samkvæmt hefði kenn-
araverkfall sett strik í reikninginn,
m.a. varðandi skapandi daga og hafi
nemendur og kennarar því sam-
mælst um að hafa skapandi daga
færri en áður, til að komast lengra í
námsefninu. „Eftir hádegi 26.
febrúar var hafist handa við
skapandi störf og stóð hæst árshátíð
nemenda sem var haldin að kvöldi
28. febrúar. Þvílík veisla, svo vel að
öllu staðið og nemendur til mikillar
fyrirmyndar. Ljóst var að þeir höfðu
aldeilis nýtt tímann vel. 3. mars
kom Maríta fræðslan og var með
forvarnarfræðslu fyrir alla nem-
endur skólans.
Á önninni fengum við niðurstöður
úr rannsóknum meðal framhalds-
skólanema á Íslandi 2013, könnunin
var lögð fyrir alla nemendur í
nóvember í fyrra. Niðurstöðurnar
eru tvenns konar, annars vegar um
líðan nemenda og hins vegar um
vímuefnanotkun. Í stuttu máli þá er
vel hægt að gleðjast yfir niður-
stöðum þessarar könnunar.
Nemendum í Framhaldsskólanum
líður vel, vímuefnanotkun er lítil.
Hlutfall nema í FÍV, sem hafði verið
ölvaður síðastliðna 30 daga áður en
könnunin var tekin, var það næst
lægsta í öllum framhaldsskólum
landsins. Einnig eru marktækt fleiri
sem stunda íþróttir með íþrótta-
félagi. Forvarnirnar eru að bera
árangur og Íþróttaakademían sem
við erum með í samstarfi við ÍBV
hefur svo sannarlega sannað gildi
sitt.“
Kennt á frídögum
„Mánudaginn 17. mars hófst
verkfall framhaldsskólakennara og
stóð í 3 vikur,“ sagði Helga næst.
„Meðan á verkfallinu stóð var
skólinn opinn og nýttu sumir
nemendur sér það, lásu náms-bæk-
urnar og gerðu verkefni. En allir
voru fegnir að verkfallið var ekki
lengra og nú þurfti að taka á því til
að ljúka mætti náminu. Bætt var við
kennsludögum á hefðbundnum
frídögum og kennt lengra fram í
maí en upphaflegar áætlanir höfðu
gert ráð fyrir. Dimmisjón var síðan
25. apríl. Þann 9. maí var runninn
upp síðasti kennsludagurinn á
önninni. Strax daginn eftir hófust
próf og voru laugardagarnir einnig
nýttir til prófa. Föstudaginn 16. maí
færðum við prófin frá hefðbundnum
prófatíma sem er klukkan 9:00 til
klukkan 13:00 þar sem fjöldi
nemenda fór og fylgdi okkar liði á
úrslitaleik í Hafnarfirði.
Sjúkrapróf voru síðasta fimmtu-
dag, en prófsýning verður á
mánudaginn kemur. Það breytir
samt ekki því að þó að önnin sé
ekki alveg búin fyrr en eftir helgi þá
slær skólameistari botn í hana hér á
eftir. En það verður nóg um að vera
hérna í húsinu í sumar. Í júní verður
Ráðherrafundur EFTA haldinn
hérna í skólanum, yfir 100 manna
fundur með ráðherrum ríkjanna.
Strax á eftir er Shellmót og nokkur
lið fá aðstöðu fyrir sína liðsmenn í
skólanum.
Langflestir á
stúdentsbrautum
Helga sagði að í byrjun annar hafi
261 nemandi verið skráður til náms
en að 227 hafi tekið próf. „65%
nemenda eru á stúdentsprófsbraut-
um, rúm 10% á vélstjórnarbraut,
sami fjöldi á almennum náms-
brautum en auk þess eru nemendur
á sjúkraliðabraut, grunndeild
rafiðna og starfsbraut fyrir fatlaða.
Mætingar nemenda voru undir
eftirliti og voru send yfirlit til
nemenda og forráðamanna þeirra
sem eru undir 18 ára með reglu-
bundu millibili. Nemendur fá
einingu fyrir mætingu ef þeir eru
með yfir 90% raunmætingu (en þá
er ekki tekið tillit til neinna forfalla)
og voru 62 nemendur sem náðu því
á þessari önn og þarf af voru 4 með
100% mætingu, Það voru Ásta Lilja
Gunnarsdóttir, Finnbogi Halldórs-
son, Gunnar Freyr Hafsteinsson og
Matthías Páll Harðarson. Í umbun
fyrir þessa frábæru mætingu þurfa
þessir nemendur ekki að greiða
innritunargjald í skólann fyrir
haustönn 2014. Ásta Lilja er að
útskrifast og því fær hún endur-
greidd innritunargjöld síðustu
annar.“
Litlar starfsmannabreytingar
á milli anna
„Í skólanum eru auk nemenda um
40 starfsmenn, ýmist í fullu starfi
eða hlutastarfi. Þar af eru 27
einstaklingar sem koma að
kennslunni. Einu breytingarnar sem
urðu á kennaraliðinu á vorönninni
voru að Ólafur Friðriksson sem var
stundakennari á haustönn var ekki
að kenna á vorönn enda var ekki
verið kenna hönnun skipa á
vélstjórnarbraut en hann hefur verið
okkur innan handar þegar kenna
þarf þann áfanga.
Starfsmennirnir tóku þátt í
lífshlaupinu og tóku allir þátt,
árangur var einnig glæsilegur þar
sem við lentum í þriðja sæti af
vinnustöðum í okkar stærð og
fengum að launum betra form og
áritaðan skjöld frá ÍSÍ. Sambærileg
keppni er fyrir framhaldsskólanema
á haustin og við skorum á nem-
endur að taka þátt næsta haust,“
sagði Helga að lokum og óskaði
viðstöddum gleðilegs sumars.
Helga Kristín Kolbeinsdóttir, aðstoðarskólastjóri FÍV við útskrift af vorönn:
Nemendum líður vel
í skólanum
:: Forvarnir bera árangur og íþróttaakademían hefur sannað gildi sitt :: Lífleg önn að baki