Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 04.06.2014, Blaðsíða 13

Fréttir - Eyjafréttir - 04.06.2014, Blaðsíða 13
° ° 13Eyjafréttir / Miðvikudagur 4. júní 2014 Það var vel til fundið að minnast Ása í Bæ á sjómannadaginn en 100 ár voru frá fæðingu hans 27. febrúar sl. Var það gert í Sagnheimum. Þar flutti Leikhúsbandið nokkur lög og texta eftir Ása og Sigurgeir Jónsson sagði af kynnum sínum af Ása og sögur þar sem hann kemur við sögu. Leikhúsbandið skilaði sínu af mikilli prýði og frásögn Sigurgeirs var bæði skemmtileg og fræðandi. Gestir voru á milli 60 og 70. Sigurgeir byrjaði á að velta því upp hvernig lífshlaupið hefði orðið hjá Ása ef hann hefði aldrei stundað sjó. „Ætli við værum þá á hverri þjóðhátíð og raunar á mannamótum almennt að syngja lög og texta eftir hann? Ætli við værum yfirhöfuð að minnast þess á þessu ári að hundrað ár eru frá því hann leit dagsins ljós?,“ spurði Sigurgeir og svaraði sjálfur þessum spurningum. Allt hefði orðið öðru vísi „Líklega væri það en á annan hátt. Sennilega væru textarnir eitthvað öðru vísi, nálægðin við sjóinn og fiskinn og mannlífið í kringum fiskinn ekki jafn mikil. Eflaust hefðu bækurnar hans líka orðið öðru vísi, efniviðurinn annar. Við þessu fáum við aldrei svar og kannski er það bara ágætt. Ég held nefnilega að við séum öll bærilega sátt við minninguna um Ása í Bæ eins og við þekktum hann,“ sagði Sigurgeir. Ási byrjaði snemma til sjós með föður sínum en fékk um fermingu beinátu í hægri fót og lá vegna þess í heilt ár milli heims og helju. Hann var staðráðinn í að verða sjómaður en þarna leit út fyrir að svo yrði ekki. „Síðar meir skrifaði hann um þá lífsreynslu sína, þegar hann staulaðist niður á bryggju á tveimur hækjum eftir heilsárs sjúkralegu,“ sagði Sigurgeir og hafði eftir Ása: „Síðla vertíðar tókst mér að vega mig niður á bryggju. Það var gott að finna lyktina af sjónum, fiskinum og bátunum og gaman að sjá sjómennina að störfum, en á þeirri stundu fylltist ég trega af því að geta aldrei tekið þátt í þessu salta lífi hafsins eins og maður með mönnum.“ Á annarri löppinni „En raunin átti eftir að verða önnur,“ sagði Sigurgeir. „Með fádæma hörku tókst honum að gera sjómennskuna að lífsstarfi sínu eins og hugurinn hafði alltaf staðið til; á annarri löppinni“ eins og hann orðaði það sjálfur. Ég er ekki viss um að allir geri sér grein fyrir því þvílíkt afrek það hefur verið. Nógu erfið getur sjómennskan verið þeim sem báða fætur hafa heila, að við bætist að stíga ölduna á öðrum fæti. En þetta gerði Ási í Bæ og sjósókn var starfsvettvangur hans megnið af ævinni, lengst af á eigin farkost- um.“ Handfærið varð hið eina sanna veiðarfæri í huga Ása í Bæ og kunni hann á því tökin. „Árið 1957 var Hersteinn sem Ási átti hluta- hæsti vertíðarbátur í Vestmanna- eyjum og líkast til yfir landið en Hersteinn var á færum alla vertíðina. Ég veit ekki hvort það var þá vertíð sem bróðursonur Ása, Ólafur Sigurjónsson, ævinlega kenndur við móður sína og kallaður Óli Tótu, varpaði fram þessari vísu til Ása og var þá búinn að umreikna hlutinn í fljótandi form: Þannig fór í þetta sinn þorskurinn með okkur, hluturinn er Ási minn, áttahundruð bokkur. Þar var hamingjan mest Sigurgeir kom víða við en endaði á að segja frá ferð í Bjarnarey sem hann fór ásamt Katrínu Magnús- dóttur, eiginkonu sinni sem þá var gengin sex mánuði með frumburð- inn Jarl. Þar dvöldust þau í góðu yfirlæti og góðri veiði í tvo daga en gamanið kárnaði þegar kom að því að halda heim. „Þá hafði nefnilega kulað af austri og orðið ófært að austan. Því urðum við að fara niður á Hvannahillu og þótt sú leið sé engin sérstök þrekraun fyrir flesta, þá er niðurgangan ekki beinlínis hönnuð fyrir konur sem komnar eru sex mánuði á leið. En hún Katrín lét sig hafa það að fara á bandi niður á hilluna. Og þar við steðjann beið Ási í Bæ á trillunni sinni og tók okkur traustum handtökum. Þetta var vissulega minnisstæð ferð. En minnisstæðast er mér, einhverjum vikum seinna þegar við hittumst á góðri stund og hann sagði: „Drengur minn. Þú hefur upplifað mestu sælu sem hægt er að upplifa í þessu mannlífi. Að eyða heilli helgi með óléttri konu úti í Bjarnarey. Meiri hamingju er ekki hægt að finna.“ Ási í Bæ ljóslifandi í frásögn Sigurgeirs Jónssonar: Hvað ef Ási hefði aldrei stundað sjó? :: Ætli við værum þá á hverri þjóðhátíð og raunar á mannamótum almennt að syngja lög og texta eftir hann? spurði Sigurgeir Fjölmennt var á bryggju Sagnheima þar sem sagðar voru sögur af sjómanninum Ása í Bæ og lög hans flutt. Tyrkja-Gudda í hæstu hæðum í Höllinni á föstudaginn: Virðulegasta fólk steig villtan dans á borðum uppi :: Söng með í miklum jötunmóð :: Hljómsveit og söngvarar létu sitt ekki eftir liggja :: Úr varð ein allsherjar rokkveisla Rokkinu má líkja við lest sem geysist áfram og ekkert fær stöðvað. Það er bara spurning í hvaða vagni þú lendir, tónlistin sem þú elst upp við verður þín um aldur og ævi. Það sýndi sig á frábærum tónleikum Tyrkja- Guddu í Höllinni á föstudags- kvöldið. Tónlistin keyrð áfram af miklum krafti af frábæru tónlistarfólki sem tókst að hrífa gesti sem fylltu húsið. Flestir í kringum fertugt, dagfarsprútt fólk dagsdaglega og virðulegt. En því var öllu kastað aftur fyrir bak og fólk gaf sig á vald tónlistinni, dansaði með og þegar best lét var rólegasta fólk komið upp á borð, söng með og dansaði í miklu jötunmóð. Hljómsveit og söngvarar létu sitt ekki eftir liggja og úr varð ein allsherjar rokkveisla þar sem það sem innbyrt var rann jafnóðum út og endaði í svitakófi sem lá yfir salnum. Þeir sem lentu inni á rokkvagn- inum á níunda áratug síðustu aldar og upplifðu „eighties“ tónlistina, glysið, sýndu að þeir kunnu að meta það sem í boði var. Á hlaðborðinu var líka sótt í perlur sjöunda áratugarins sem gladdi eldri rokkhjörtu. En gott rokk er tímalaust og kannski var hið löngu sígilda verk Deep Purple, Child in Time í meðförum Eyþórs Inga toppurinn á kvöldinu? Uppáhald, af hverju? Allir eiga sitt uppáhald í tónlistinni sem þarf ekki endilega að vera það besta heldur laglína sem tengist minningu eða atburði, góðri stemmningu á þjóðhátíð eða balli eða bara einhverju sem skiptir engu máli. Er bara þarna einhvers staðar í minningunni, neisti sem verður að báli við réttu aðstæðurnar. Það átti svo sannarlega við um tónleika Tyrkja-Guddu. Hljómsveitina skipa: Birgir Nielsen á trommur, Einar Þór Jóhannsson á gítar, Ingimundur Benjamín Óskarsson á bassa, Stefán Íkorni Gunnlaugsson á hljómborð, Sigurgeir Sigurgeirsson á gítar og Ragnar Már Gunnarsson á gítar. Söngvararnir eru: Magni, Eyþór Ingi, Biggi Haralds í Gildrunni, Pétur Jesú og Alma Rut. Allt frábærir listamenn, hver með sinn stíl og hafa hæfileika, vilja og getu til að ná til fólks. Það sýndu þeir og sönnuðu og tónleikarnir gengu eins og smurð vél þar sem einn söngvari tók við af öðrum. Ekki einu sinni talið í, allir vissu upp á hár hvað átti að gera og enginn sló af. Útkoman varð einhverjir skemmtilegustu tónleikar sem undirritaður hefur farið á lengi og það var ekki annað að sjá en að aðrir gestir væru á sama máli. Tónleikar af stærri gerðinni eru orðnir fastur liður í dagskrá sjómannadagsins og sýnir góð aðsókn að sjómenn eins og aðrir kunna að meta það sem vel er gert. Eyþór Ingi, einn af okkar bestu söngvurum olli ekki vonbrigðum frekar en fyrri daginn. Biggi Haralds hefur verið lengi í bransanum og kann þetta allt. Ómar GarðarSSon omar@eyjafrettir.is Ómar GarðarSSon omar@eyjafrettir.is

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.