Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 04.06.2014, Blaðsíða 20

Fréttir - Eyjafréttir - 04.06.2014, Blaðsíða 20
° ° S ími 481-1300 : : f re t t i r@ey ja f re t t i r. i s Eyjafréttir B ir ti st m eð fy ri rv ar a um in ns lá tt ar vi ll ur o g m yn da br en gl Opið Mán-fös kl. 7.30-19.00 / Lau. kl. 10-19 / Sun kl. 11-19 VikutiLBoð susHi frá osushi Kemur til okkar föstudaga kl. 17.30 Tökum niður pantanir ! 4.-10. júní 2014 Homeblest kex verð nú kr 268,- verð áður kr 338,- Maryland kex verð nú kr 158,- verð áður kr 198,- kjarnafæði reykt folaldakjöt verð nú kr 1098,- verð áður kr 1588,- Toffy Pops kex verð nú kr 158,- verð áður kr 198,- SS Lambalæri frosið verð nú kr/kg 1198,- verð áður kr/kg 1898,- SS Ítalskt lambalæri verð nú kr 1698,- verð áður kr 2298,- Milt fyrir Barnið 2 kg verð nú kr 1998,- verð áður kr 2678,- Glitra uppþvottavélapillur verð nú kr 798,- verð áður kr 1098,- Grillmatur í úrvali !! Hallgrímur og Díana Dögg með Fréttabikarana. Lokahóf ÍBV-íþróttafélags: Hallgrímur og Díana Dögg fengu Frétta- bikarana Lokahóf ÍBV-íþróttafélags fór fram í Höllinni í síðustu viku og eins og venjulega var mikið um dýrðir. Nánar er sagt frá lokahóf- inu á blaðsíðu 18 í blaðinu í dag þar sem sagt er frá öllum verðlaunahöfum lokahófsins. Eyjafréttir, og áður Fréttir hafa ávallt tekið þátt í að verðlauna íþróttafólk ÍBV með því að veita efnilegasta fólkinu svokallaða Fréttabikara. Í ár fengu þau Hallgrímur Júlíusson og Díana Dögg Magnúsdóttir Fréttabikar- ana. Þau Hallgrímur og Díana Dögg voru valin best í 2. flokki karla og 3. flokki kvenna en Díana Dögg er gríðarlega efnilegur leikmaður sem nýlega var valin í lokahóp U-18 ára landsliðs kvenna sem tekur þátt í Opna Evrópumótinu í Svíþjóð í sumar. Díana er fjölhæfur leikmaður sem lék lykilhlutverk í unglingaflokki en hún getur spilað á miðjunni, skyttu og í horni. Hún er einnig byrjunar- liðsleikmaður í meistaraflokki kvenna þar sem hún skilaði sínu hlutverki afar vel. Styrkleiki Díönu er óbilandi dugnaður og kraftur, hún er yfirleitt fyrst fram í hraðaupphlaup og nýtir færin, sem hún skapar iðulega sjálf, afar vel. Hún er leikmaður sem mun ná langt í handbolta og mun innan fárra ára veita leikmönnum A-landsliðs kvenna harða keppni. Hallgrímur hefur spilað mjög vel fyrir 2. flokk í vetur. Hallgrímur er mjög efnilega skytta og hefur hann mikla hæfileika sem handboltamaður. Hann er líkamlega sterkur og með góð skot. Hans líkamlegi styrkur nýtist líka vel í vörninni. Ef hann er tilbúinn að leggja mikið á sig er klárt mál að hann getur spilað stórt hlutverk í m.fl. í framtíðinni. Hann veit það best sjálfur að hann þarf að leggja hart að sér til að taka skrefið úr því að vera efnilegur í það að verða góður leikmaður. Seljaprestakall: Sóknar- börn vilja Eyjamann- inn Ólaf Jóhann en biskup ekki Sérstök staða er komin upp í Seljaprestakalli í Reykjavík þar sem Eyjamaðurinn séra Ólafur Jóhann Borgþórsson hefur starfað sem prestur. Sóknar- prestur safnaðarins, séra Valgeir Ástráðsson er að láta að störfum og sóttu sjö um embættið, þar á meðal tvær konur. Valnefnd, skipuð fulltrúum sóknarbarna auk prófasts, mælti með því að Ólafur fengi starfið en þar hefur hann starfað síðan 2007. Tíu voru í valnefndinni og greiddu níu með því að Ólafur yrði ráðinn en einn sat hjá. Agnes Sigurðardóttir, biskup Íslands tók hins vegar fram fyrir hendur valnefndar og eftir því sem fram kom í Morgunblaðinu, telur hún sig brjóta jafnréttislög ef Ólafur yrði ráðinn. Forsenda fyrir þessari niðurstöðu biskups er m.a. sú staðreynd að mun fleiri karlar eru í prestastétt en konur. Biskup ákvað því að auglýsa starfið að nýju en með skapast möguleikar fyrir sóknarbörnin að efna til almennra prestkosn- inga á milli þeirra sem þá sækja um. Niðurstaða kosninganna yrði svo bindandi. Undirskriftasöfnun er hafin til stuðnings Ólafi og miklar umræður hafa verið á facebook um málið og eru sóknarbörn Seljaprestakalls almenn ósátt við þetta útspil biskups. Styrkleiki Díönu er óbilandi dugnaður og kraftur, hún er yfirleitt fyrst fram í hraðaupphlaup og nýtir færin, sem hún skapar iðulega sjálf, afar vel. ”

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.